Leita í fréttum mbl.is

Allir eins klæddir

Kópavogskirkja.Ég fór í jólamessuna með litlu fjölskyldunni minni í gær, aðfangadag. Við fórum í Kópavogskirkju að þessu sinni þar sem hún er mitt á milli heimila dætra minna. Ég var send á undan til að taka frá sæti og mætti kl 17,30 og reyndi að verja bekkinn með kjafti og klóm, sálmabókum og veski, með sjálfa mig fyrir miðju. Rétt fyrir kl. 18:00, þegar hátíðin var að detta á, birtist mín fríða fjölskylda í gættinni, allir skælbrosandi, vitandi það að ég væri u.þ.b. að sleppa mér úr stressi. Þeir voru allir eins klæddir strákarnir bæði sá 17 ára , 12 ára,  3ja ára og 1,5 árs. Svört jakkaföt, hvít skyrta og svart bindi. Ég brosti á móti og var afar ánægð að þau skyldu ná í tæka tíð. Við kyrjuðum messusvör og sálma með kórnum en presturinn var ekki að slá í gegn hjá mér allavega. Á eftir var farið í jólarjúpur hjá eldri dótturinni en seinna um kvöldið í kaffiboð og heimalagaðan ís hjá þeirri yngri. Það er alltaf fullt út úr dyrum hjá yngra fólkinu enda vilja allar ömmur og afar sjá kútana sína í gjafahamnum. Þeir voru enn á fullu spani þegar ég fór kl. 23:00 um kvöldið. En þetta er hátíð barnanna þannig að það er vonandi að þau njóti þess sem best. Þetta er í fyrsta sinn í 40 ár sem ekki er eldaður matur á aðfangadag á mínu heimili. Svona breytist allt hjá manni, líka jólahefðirnar. Ekki að ég sakni þess að elda mat. Veit margt skemmtilegra en tilhugsunin svolítið spes.


Pósturinn

jólaboðskapur verslunarinnarÞá er kominn tími til að keyra út jólapakkana. Þetta er eini siðurinn sem ég held uppá í jólahaldinu. Það var alltaf þannig í mínu ungdæmi og öll mín hjónabandsár að farið var í að keyra út pakka og kort á aðfangadag, stundum í vitlausu veðri, snjó og skafrenningi. Stundum þurftu menn að hjálpast að við að ýta bílum sem voru fastir og það var meiriháttar gaman. Þá myndaðist þessi skemmtilega gleði og nánd sem jólaboðskapurinn byggir á að því mér skilst. Reyndar er ég alveg hætt að senda jólakort og það var mjög gott að losna frá því. Ég átti það til að verða óskaplega væmin og hjartanleg þegar ég var að skrifa kort. Pakkarnir hanga inni ennþá og það er svo sem allt í lagi. Allavega meðan ég fæ pakka sjálf ;) :)

Gleðileg jól kæru bloggfélagar og aðrir lesendur.


Meyfæðing, matur og gjafir

tommi21Nú er allt að verða tilbúið fyrir jólin. Ég er búin að vera á útopnu, eins og hálf þjóðin, við að uppfylla þessar hefðir sem búið er að innræta okkur í gegnum árin. Hver ætli hafi fundið upp á þessu? Af hverju þurfti endilega að hafa jólin á dimmasta og kaldasta tíma ársins? Tókum við kannski þessa trú af því það var svo hentugt að brjóta upp skammdegisdrungann með ljósum og gjöfum? Það er stórundarlegt að við skulum gagnrýnilaust taka þátt í þessari verslunarhátíð ár eftir ár. Sama má segja um það að við skulum hlusta klökk á  "jólaguðspjallið" ár eftir ár eins og meyfæðingin sé það sem mestu máli skiptir í trúnni. Mér finnst ekkert sérstakt við þá sögu hvorki áður né nú. Það held ég að konur á slóðum Jesú séu enn að fæða börn í útihúsum og hreysum. Ekki er óalgengt að þeim sé mörgum úthýst af hótelum og gistihúsum vegna peningaleysis. Algengt er að þær þurfi að taka saman við eldri menn til að sjá sér farborða. Ekki skrýtið að þær vilji ekki gefa upp barnsföður sinn og vita kannski ekki hver hann er. Furðulegt að Guð skuli ekki leggja meiri blessun yfir sögustaði Biblíunnar.Hvað ætli hann sé að pæla. Ég stóla á að hann fyrirgefi mér þessar pælingar þar sem hann er sagður bæði vitur, góður og fyrirgefandi. Ég er samt ekki ein um þessar hugleiðingar svo mikið er víst og ekki allir heilaþvegnir þó þeir sinni trúmálum.


Hringekja tímans

Jólin í Lille í FransEnn eru jólin að koma. Það er alveg að verða með ólíkindum hversu fljótt árið er að líða. Mér finnst eins og síðustu jól séu nýbúin. Ég hef stundum velt því fyrir mér hvers vegna ég upplifi tímann svona einkennilega. Þegar ég var ung var sagt að svona upplifun væri bara meðan menn skulduðu. Það kom til af því að þá var óðaverðbólga og menn gerðu sinn bissness þannig að greitt var með nokkrum afborgunum, kannski mánaðalega. Manni þótti því stutt á milli gjalddaga því það varð að vinna fyrir afborguninni og það gat verið svo stressandi að ná því. Nú er það ástand ekki fyrir hendi hjá mér en þetta bara versnar. Reyndar er ég mjög aktív og búin að setja mér fyrir verkefni langt fram í tímann og það kann að valda þessu. Allavega eru jólin orðin svona nokkuð hefðbundið kaos en hefur alltaf minna og minna stressandi áhrif á mig þó ég nái ekki að klára alla hefðbundna hluti. Ég verð líka rómantískari eftir því sem árin færast yfir og nýt jólaföstunnar miklu betur en jólanna sjálfra út af birtu og ljósadýrð sem eykst frá degi til dags og nær hátindi sínum á aðfangadag jóla. Annars á ég bara eftir jólagjafirnar þannig að þetta reddast. Vona að þú lesandi minn hafir ekki of þungar áhyggjur af jólastandinu.


Leiðarljós

Skipsflak og leiðaviti nærri GrindavíkUndanfarið hefur mér fundist dagskrá íslenska sjónvarpsins hálfleiðinleg. Það er æ oftar sem ég skelli mér á sænsku TV-stöðina og fylgist með vinum mínum, Svíunum, skemmta sér í söng- og gamanþáttum.  Það eru þó undantekningar á öllu og í kvöld var afar gaman að fylgjast með Kiljunni á Rúv. Mér fannst Kolbrún, nafna mín, sæt og krúttleg, Páll skemmtilegur og Bragi bóksali er alltaf góður með sitt ógeðslega neftóbak. Það sem hrærði við mér var viðtal Egils hárfagra við eðalhjón úr Grindavík. Ég tók eftir því að bæði nefndu, sem fyrsta kost við makann, að hann væri afar skemmtilegur en síðan komu aðrir kostir í upptalningunni. Þetta finnst mér styðja þá kenningu mína að góður húmor sé sá kostur sem skiptir mestu máli fyrir góð sambönd. Kostur sem eflir ástina og gefur fólki kraft. Kraft til að líta fram hjá erfiðleikunum, kraft til að sigra veikleika sína og kraft til þess að lifa lífinu lifandi.


Nú er skrattanum skemmt.

Tiger Wood

Var að hlusta á fréttir á BBC World news um að Tiger Woods sé nú að taka sér frí frá golfi til að sinna konu og börnum, vegna fréttafárs af heimiliserjum þeirra hjóna. Mér finnst það taka út yfir allan þjófabálk hvernig fjölmiðlar hafa blásið út hans einkamál. 

Það er umhugsunarefni hvernig stendur á því að konur skuli gefa sig fram með yfirlýsingar hver af annarri um að hafa verið ástkonur hans. Þetta er svo sem ekkert nýtt. Eins og menn vita þá hefur það verið þannig þegar frægir menn eða prestar sem ásakaðir hafa verið um kvennafar, kynferðislega áreitni eða framhjáhald eiga í hlut. Ég man ekki eftir að karlmenn hafi hagað sér svona. Mér er ómögulegt að trúa þessum konum þegar þær koma fram í hópum eða hver af annarri í kjölfar frétta en ekki þegar viðkomandi atburður átti sér stað. 

Það toppar svo vitleysuna að John Daly golfari og lífslúser kemur fram og er með ráðleggingar til hans á BBC-world news. Dæmigerður alki sem er stútfullur af ráðum til annarra þó hann geti þess í leiðinni að Tiger vilji ekkert við hann tala. Allt gert til að komast í sviðsljósið sjálfur. 

Auðvitað er þetta mikið markaðs- og peningamál bæði fyrir aðra golfara í toppbaráttunni og eins fyrir sportvörufyrirtækin. Ekki finnst mér spurning að þessir aðilar hafa áhrif á fréttaelítuna og kynda ofninn.

Ég vona bara að þetta gangi fljótt yfir hjá Tiger, hann komi heill til baka og veiti okkur golfurum þá unun sem fylgir því að horfa á þennan snilling spila golf.  

    

Lífsins lystisemdir

ÍslandÞað er að verða þannig með mig að ég verð æ næmari á fegurð eftir því sem árin færast yfir mig. Mér finnst ég sjá meira og meira af fallegum hlutum og fólki. Falleg börn og unglingar eða fagurt landsvæði hrífa mig og fylla mig mikilli gleði. Gleðinni fylgir aukin þörf fyrir að gera eitthvað fyrir aðra. Kannski bara sýna öðrum það sem ég dáist að, í það og það skiptið. Börnin langar mig að knúsa og leika við. Gaman væri líka að ræða við unglingana og benda þeim á rétta braut og vara við villustigum. Þetta er nú varla eðlilegt ástand. Ætli þetta séu einhverskonar kreppuviðbrögð. Kannski bara merki um að ég sé áhyggjulaus og aflöppuð manneskja sem gef mér tíma til að skynja umhverfi mitt á annan hátt en áður. Hvað sem það er þá líður mér rosalega vel með það.

Frambjóðendur brjóta lög

Frambjóðendur 2009         

 

 

 

 

 

 

Ég las það í Fréttablaðinu að frambjóðendur brjóti lög.. Nú stendur yfir skoðun á því hverjir fengu styrki og frá hverjum til að bjóða sig fram til Alþingis. Um er að ræða síðustu og þar síðustu kosningar. Getið var um það að Frjálslyndir frambjóðendur eða frambjóðendur fyrir Frjálslynda flokkinn væru þar á meðal. Það er vissulega tilbreyting að sá ágæti flokkur skuli nefndur með öðrum flokkum. Það er allavega ekki gert í skoðanakönnunum en hins vegar Hreyfingin sem á ekkert bakland núna en þrjá þingmenn og einn burt genginn. Svo virðist sem það sé sumum mikið kappsmál að við Frjálslynd séum ekki nefnd sem valkostur. Það er svo sem ekkert skrýtið enda höfum við verið að vara við þessu ástandi í þrjú til fjögur ár og talist nöldurs- og úrtöluseggir. Nú er verið að nota ýmsar leiðir sem við höfum bent á en því miður allt of fáar.

En hvað um það, það upplýsist hér með að ég skulda ekki skýringar á mínum málum þar sem ég var ekki í neinu prófkjöri. Nokkrir Frjálslyndir þurfa þess þ.e. þeir sem voru í prófkjöri í Norðvesturkjördæmi. Það er jafnframt upplýst hér að ég þáði ekki krónu í styrki frá einum eða neinum og bar mig ekki eftir því enda var ég á vegum flokksins eins og aðrir.  Hægt er að sjá á netinu www.rikisendurskoðun.is hverjir hafa skilað og hverjir ekki.

 


Komið og dansið

glæsilegt skotapilsSíðustu helgi eyddi ég á Örkinni í Hveragerði. Þar voru mættir 120 einstaklingar í þeim tilgangi að dansa og læra nýja dansa. Mæting var á föstudagskvöldið og hófst dans um kl 18 og var dansað í tvo tíma. Þá var kvöldverður og síðan dansað í nokkra tíma eftir það. Um kl 10 á laugardag var byrjað aftur og dansað í tvö tíma. Eftir hádegismat var farið í göngutúr um nágrennið og svo beint í heita pottinn. Aftur var farið að dansa kl 16.30 í tvo tíma og lærðir nýir norskir snúningar. Um kvöldið var síðan kvöldvaka sem samanstóð af kvöldverði og skemmtidagskrá. Að henni lokinni hófst dans að nýju og var það aðallega swing og línudans en einnig rólegri lög inn á milli eins og gengur. Dansað var af krafti til kl 2 um nóttina. Þá fóru flestir að halla sér en sumir voru komnir í partýstuð og ég meira að segja greip í gítar og gömlu dramasöngvana frá því í gamla daga. Mikið stuð og stemming. Á sunnudagsmorgun var fólk í rólegri kantinum en þó farið í sund og gufu áður en komið var að kveðjudansi milli kl.11-12. Þá var þetta búið nema fyrir þá sem voru á byrjendanámskeiðinu.  Þetta var frábært námskeið og er dans tvímælalaust skemmtilegasta líkamsrækt sem  hægt er að stunda auk þess gott og græðandi fyrir sálina.

Mæli hiklaust með Komið og dansið.


Golfsumarið 2009

Hola í höggi 2009Þá er þessu yndislega sumri lokið og þar með golfspilamennsku að mestu þar til vorar á ný. Ég er afar ánægð með hvað ég náði að bæta mig og spila mikið. Ég náði markmiðum mínum og rúmlega það. Nýja sveiflan virðist ætla að gera sig. Ég keppti í meistaramótinu og náði því að verða öldungameistari kvenna í GKG, en ég gekk í þann klúbb í sumar, og auk þess spilað ég nokkuð mikið bara ein á Mýrinni sem er afar skemmtilegur en frekar erfiður völlur. Tvær golfferðir til Spánar, önnur um páskana, sem frægt varð, til Real de Faula og svo núna í október til Ballena. Ég náði því að fara holu í höggi í nýafstaðinni golfferð. Það var reyndar skilyrði fyrir fararleyfi frá yfirmanninum, en ferðin kom upp á með stuttum fyrirvara. Ég er þá komin í einherjaklúbbinn. Það er þá fjórði klúbburinn sem ég tilheyri þetta árið. Ég er í GKG, GR, LEK og þessum svokallaða Einherjaklúbbi. Í sumar keppti ég með liði og náði þar bronsverðlaunum með kvennasveit GKG í sveitakeppni öldunga á Flúðum. Ég er ákveðin í að æfa sveifluna betur í vetur og koma sterkari til leiks í vor.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 122263

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband