Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2010

FM 106,5

IMG_1630Nýlega var ég í útvarpsviðtali hjá Ö-FM 106,5. Þetta er útvarpsstöð sem ungir og hressir strákar reka sem eru félagar í Ný-ung, ungliðahreyfingu Sjálfsbjargar lsf, í samstarfi við Hitt húsið sem rekið er af Reykjavíkurborg. 

"Hitt húsið" er afar jákvætt framlag Reykjavíkurborgar sem hefur það hlutverk að leyfa ungu fólki á aldrinum 16-25 að vinna að eigin hugmyndum, vera miðstöð ungs fólks í leit að sumarstarfi, vettvangur fyrir félagsleg úrræði og ráðgjöf fyrir ungt fólk.

Ný-ung hefur undanfarin ár unnið í samstarfi við Hitt húsið og margt gott og skemmtilegt komið út úr því eins og http://oryrki.is/  og  nú þetta frjálslega og skemmtilega útvarp FM 106,5.  

Þeir hafa tekið þjóðþekkta Íslendinga í viðtal og má þar nefna Hemma Gunn þann yndislega skemmtikraft og þjóðarkrútt, Ómar Ragnarsson sem nú er pínu peningalaus en alltaf jafn skemmtilegur og Ladda sem varð frægur fyrir að halda upp á sextugsafmælið sitt í 2-3 ár, auk þess að vera þjóðþekktur golfari og skemmtikraftur af guðs náð.

Ég er nú að vona að þeim hafi fundist ég svona skemmtilega þó ég sé ekki þjóðþekkt.

Ég vildi gjarnan verða þjóðarkrútt eins og "Hemmi minn".

Ladda ætla ég að taka til fyrirmyndar og halda upp á afmælið mitt nokkur næstu árin.

Vonast til sleppa við þær þrengingar sem Ómar er að glíma við, en ef ekki vonast ég til að góður þjóðarhugur verði  með mér eins og honum.

Annars er ég bara góð Wink

  

 

   


Dýrðardagar

IMG_1613_2 

Það er óhætt að segja að veðurguðirnir hafi leikið við okkur undanfarna daga og vikur. Sól og blíða, dag eftir dag, og blússandi hiti. Það hefur verið erfitt að sitja inni á sjóðheitri skrifstofunni við þessar aðstæður. Það er samt mesta furða hvað hefur komist í verk, þrátt fyrir að margir séu í fríi.

Ég hef reyndar notið útivistar með því að fara í golf á morgnana áður en ég mæti í vinnuna. Níu holur á Mýrinni taka ekki nema einn og hálfan tíma ef enginn er á undan. Einnig hef ég notið góða veðursins með því að hjóla til og frá vinnu þá daga sem ég fer ekki í golf. Þetta hefur verið frábært og ég hef náð að lækka mig i forgjöf, þó markmiðin séu ekki í höfn. Ég finn líka að ég hef náð meira valdi á hjólinu og jafnvægið, hugrekkið og getan alveg að koma.

Gróðurinn hefur rokið upp í þessu veðurfari og nú er það þannig að varla sést í húskofann minn fyrir úr sér sprottnum gróðrinum. Það er auðvitað indælt en ekki endilega núna þegar ég er loksins búin að láta mála og allt orðið "spik og span". Vantar bara að þeir snillingarnir sem sjá um handriðið klári að setja listana á. Þeir koma eflaust í vikunni.

Nú er frí í eina stóra viku framundan og verður vel þegið.


Stjörnur í Ólafsvík

MarkvarslaÞá er hin stórkostlega HM veisla að baki. Eftir sitja margar góðar stundir sem alltaf er hægt að orna sér við í framtíðinni.

Ég var búin að spá því, strax í upphafi, að Spánn myndi sigra mótið. Hjartað sló þó með Ghana og nú held ég mest upp á Gyan sem var þeirra besti maður.

Einnig var ég búin að spá því að Þjóðverjar myndu sigra Úrúgvæ þó mér hafi fundist þeir síðarnefndu ótrúlega flottir í fagurbláu treyjunum sínum sem minntu mig á Manchester City treyjurnar, en ég hef haldið með þeim lengi.

Nú fer maður að fókusa á íslenska fótboltann sem er ekki auðvelt eftir að vera búinn að glápa á HM. Reyndar hef ég aldrei náð mér á strik í honum en hef þó haldið með Breiðablik vegna þess að þeir sýndu Sjálfsbjörg mikinn velvilja fyrir nokkru síðan. Þá var góðgerðarleikur og þeir ánöfnuðu Sjálfsbjörg þeirra hlut í innkomnum aðgangseyri.

Nú hefur áhuginn glæðst aðeins við að heyra af Víkingum í Ólafsvík sem óvænt skutust upp á "stjörnu"himininn. Þeir eiga vissulega hrós skilið og góðar óskir um velgengin í framtíðinni.

Alltaf frábært þegar svona færi opnast og sýnir best að maður ætti aldrei að telja neitt útilokað fyrirfram. Ég hefði örugglega spáð þeim sigri, afþvíbara Heart


Rosalega heppin

Kjartan að störfumSunnudaginn 11. júlí, á afmælisdegi eldri dóttur minnar, fór ég á bátadaginn í Krika. Kriki er sælureitur sem Sjálfsbjargarfélagið í Reykjavík og nágrenni hefur til umráða við Elliðavatn. Þar koma þeir saman sem unna útivist, vatnasporti, og samvistum við skemmtilegt fólk. 

Boðið er upp á kaffi og vöfflur eða pylsu og kók gegn vægu gjaldi. Allir leggjast á eitt að gera daginn eftirminnilegan og góðan. Auðvitað er svo alltaf svokallað Sjálfsbjargarveður í boði almættisinsKissing.

Það var fyrir velvild yfirvalda í Kópavogi, í garð hreyfihamlaðra, að Sjálfsbjörg var úthlutað þessum stað á sínum tíma. Því verður haldið á lofti í okkar röðum um ókomin ár og fyrir það erum við afar þakklát.

Bátadagurinn er búinn að vera við líði í nokkur ár í núverandi mynd eða frá því að hinn mikli velunnari Sjálfsbjargar, Kjartan Jakob Hauksson, fór að bjóða upp á þessa íþrótt fyrir nokkrum árum, ásamt fleiri valinkunnum mönnum.

Það yljar manni að vita af mönnum eins og Kjartani. Hann leggur fram mikla vinnu og tíma í að gera þennan dag mögulegan með þessum hætti á hverju ári. Flestum er í fersku minni þegar hann réri hringinn í kringum Ísland á kajak árið 2005 og safnaði áheitum í Hjálparliðasjóð Sjálfsbjargar, sem er sjóður til að styrkja þá sem þurfa hjálparmenn á ferðalögum.

Ef einhver á skilið orðu eða riddarakross fyrir verk sín þá er það Kjartan Jakob Hauksson að mínu áliti.

Ung dama sem kom með pabba sínum á bátadaginn sagði við hann á heimleiðinni. " Rosalega er hún Kolbrún heppin að vinna með þessu jákvæða og skemmtilega fólki"  Hún var alveg hjólandi kát eftir að hafa farið á hjólabát, prufað hjólastól og spjallað við fólk í hjólastólum, sem var samt bara venjulegt og skemmtilegt.

Bragð er að þá barnið finnur.

Ég er vissulega heppin. Takk fyrir mig Krikavinir.


Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband