Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Hvar ætlar þú að vera ?

Jól í Ikea1Nú fer að halla að jólum og um að gera að fara að huga að þeim í tíma.

Ekkert er eins dýrt og að geyma það um of. Maður kaupir oft  meira og dýrari hluti ef tíminn er að verður of naumur. Það er allavega mín reynsla. Mér finnst voða gott að byrja bara smátt og smátt á undirbúningnum, bæta við daglega einhverju “ jóla” og njóta þess að vera í þessari jólastemmingu.

Eins og allir vita þá byrja jólin í IKEA og þessvegna  fór ég þangað með elskulegri dóttir minni og hjartaprinsinum mínum. Síðan bættist hin dóttirin við með eldri son sinn sem bæði eru alger yndi, alltaf, á öllum sviðum. Að endingu bættist svo annar tengdasonurinn í hópinn, óvenju elskulegur. J 

 Það var mjög gaman að leyfa litla kútnum að labba með stuðning af vísifingrum ömmu sinnar um stóra sali verslunarinnar í Hafnarfirði. Hann var alveg heillaður af öllu sem fyrir augu bar. Ekki spurning ... (þó hann segði það ekki beint) sjá mynd.

  Ég keypti mér eina hvíta seríu sem ég hengdi strax í gluggann í eldhúsinu þegar ég kom heim þannig að nú er komin jólabirta þar um kvöld og nætur.Eitt er þó fyrirkvíðanlegt um hver jól en það er spurningin  hvar ætlar þú að vera á jólunum? “

 Þessi spurning er að gera mig brjálaða ár eftir ár. Það er eins og þessar sex klukkustundir á aðfangadagskvöld séu jólin.  Eins og það skipti mestu máli með hverjum þú ert það kvöld.  Það er eins og það séu drottinssvik eða glæpur að vera einn með sjálfum sér á þessu blessaða aðfangadagskvöldi.. Margir fara í kirkju þetta kvöld, ég þar á meðal, en ég hef það á tilfinningunni að það sé hjá mörgum til að húsmóðirin fái frið til að búa út hátíðarkvöldverðinn.Hvað mig varðar þá er þetta bara vani því ekki eru prestarnir að heilla mig eða söngurinn (alltaf sama predikun,sömu sálmar,sömu messusvör.) Ég vil hafa þetta allt öðruvísi. Ég vil að fjölskyldan sé meira saman að dunda sér á jólaföstunni og pæli í fallegum hlutum, rómantískri birtu, fallegri tónlist og ljósadýrð sem færir manni frið í hjartað og gleði í sinnið. Ekkert færir manni meiri gleði en koss eða faðmlag frá þeim sem maður elskar og því er upplagt að leggja meira í þá hluti þennan dimmast og kaldasta  mánuð ársins. Síðan er það bara hvers og eins hvar hann er og með hverjum á fæðingarstund frelsarans....eða þannig.

 

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband