Leita í fréttum mbl.is

Stjórnmálaströgl

Magnús Reynir og auglýsing KS

Nú styttist í Alþingiskosningar og allir ljósvakamiðlar undirlagðir af pólitík. Mjög er það nú misjafnt hversu skemmtilegt það er eða fróðlegt. Sumir þættir eru þó skemmtilegir.
Stundum þarf ég að passa mig að láta meðvirknina/samkenndina ekki taka yfir.
Ég nefni sem dæmi foringjaþáttinn á RÚV með Sturlu Jónssyni og Ylfu Mist Helgadóttur.
Svo eru aðrir sem voru mjög góðir eins og Guðmundur Franklín og Bjarni Benediktsson.
Svo voru sprettir í útvarpinu.
Ég heyrði gesti á Bylgjunni, Sóleyju Tómasdóttur og Gunnar Smára, takast á og það var bráðfyndið. Þar sagði Sóley að fylgishrun VG væri af því að þau hefðu ekki "haldið sér nógu vel saman" .
Sammála því og vona að þau taki nú upp þann ágæta sið í framtíðinni.
Já margt er skrýtið og skemmtilegt.

Það er þó ekki allt fyrirséð þegar fólk fer út í pólitík eins og þessi dæmi sýna:

Guðmundur Franklín stofnaði flokk- Hægri græna. Hann var í framboði en var svo bannað að kjósa.

Sturla Jónsson varð flokkur en bauð ekki fram í sínu kjördæmi og getur því ekki kosið sinn flokk.

Sjálf er ég ekki í framboði núna þar sem flokkurinn minn er dauður og því get ég ekki kosið hann.
 
Vona bara að við fáum nú ábyrga stjórn sem verði til gæfu fyrir land og þjóð.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Af hverju erum við ekki í framboði fyrir Frjálslynda flokkinn?

Af hverju er sjónvarpsþátturinn með framboðunum alltaf um eitthvað sem svarað er með 60 ára utanaðlærðum frösum?

Hefur einhver gagn af svona blaðri? - Auðvitað ekki enda er þetta móðgun við íslenska menningu.

Ég spyr og þráspyr sjálfan mig hvernig á því standi að málefni sem máli skipta fá enga umfjöllun?

Í örfá skipti hafa frambjóðendur stolist til að nefna frelsi til handfæraveiða en umsvifalaust verið bent á að þetta sé ekki í umræðunni.

Að vísu hafa fulltrúar gömlu flokkanna ALDREI nefnt fiskveiðistjórnun svo ég muni til.

Af hverju?

Árni Gunnarsson, 20.4.2013 kl. 15:40

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Það er góð spurning Árni. Mér finnst þetta orðið svo "hannað" einhvernveginn. Það sést best á því að flestum finnst nógur tími að sinna baráttunni í 2-3 vikur fyrir kjördag. Það er auðvitað til þess að þurfa ekki að svara öllu eða fara djúpt í mál.Svo er bara svarað að auðvitað þurfi að skoða öll mál og kanna og rannsaka...

En við vitum nú hverjir eiga landið Árni ekki satt... kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 20.4.2013 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 121875

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband