Leita í fréttum mbl.is

Meyfæðing, matur og gjafir

tommi21Nú er allt að verða tilbúið fyrir jólin. Ég er búin að vera á útopnu, eins og hálf þjóðin, við að uppfylla þessar hefðir sem búið er að innræta okkur í gegnum árin. Hver ætli hafi fundið upp á þessu? Af hverju þurfti endilega að hafa jólin á dimmasta og kaldasta tíma ársins? Tókum við kannski þessa trú af því það var svo hentugt að brjóta upp skammdegisdrungann með ljósum og gjöfum? Það er stórundarlegt að við skulum gagnrýnilaust taka þátt í þessari verslunarhátíð ár eftir ár. Sama má segja um það að við skulum hlusta klökk á  "jólaguðspjallið" ár eftir ár eins og meyfæðingin sé það sem mestu máli skiptir í trúnni. Mér finnst ekkert sérstakt við þá sögu hvorki áður né nú. Það held ég að konur á slóðum Jesú séu enn að fæða börn í útihúsum og hreysum. Ekki er óalgengt að þeim sé mörgum úthýst af hótelum og gistihúsum vegna peningaleysis. Algengt er að þær þurfi að taka saman við eldri menn til að sjá sér farborða. Ekki skrýtið að þær vilji ekki gefa upp barnsföður sinn og vita kannski ekki hver hann er. Furðulegt að Guð skuli ekki leggja meiri blessun yfir sögustaði Biblíunnar.Hvað ætli hann sé að pæla. Ég stóla á að hann fyrirgefi mér þessar pælingar þar sem hann er sagður bæði vitur, góður og fyrirgefandi. Ég er samt ekki ein um þessar hugleiðingar svo mikið er víst og ekki allir heilaþvegnir þó þeir sinni trúmálum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Kolla. Varðandi það hversvegna jólin eru haldin á þessum kaldasta og dimmasta tíma ársins finnst mér þú svara þessu sjálf, bæði í "Hringekju tímans" og í þessari færslu að það se til að brjóta upp skammdegisdrungann með ljósum og gjöfum. Er það ekki bara gott mál? Ég er hinsvegar sammála að margt gengur út í öfga varðandi verslun og eyðsla og það nú ekki alveg gagnrýnislaust.

Ég verð ekki klökkur á innihald jólaguðsspjallsins og veit ekki hvort fólk verður það almennt en ég held að það sé meira það að þetta er eitthvað sem kom kannski við mann þegar maður var barn, öll þessi saga og maður gékkst upp í þetta. Svo hefur maður hlustað á þetta í gegnum öll þessi ár og fundist þetta bara tilheyra jólunum.

Að Guð skulir ekki leggja meiri blessun yfir sögustaði bíblíunnar er bara eitt af því sem maður skilur ekki. Það er svo margt sem maður skilur ekki að Guð lætur gerast ef hann er almáttugur. Eins og þú segir, "Hvað er hann að pæla"? En ég er viss um að hann fyrirgefur þér . Hvað sem þessu öllu líður þá held ég samt að þú hlakkir til jólanna og ferðin þín sem framundan er líka tilhlökkunarefni.

Bestu kveðjur og takk fyrir góða færslu sem vakti mig til umhugsunar um margt. Atli

Atli Agustsson (IP-tala skráð) 24.12.2009 kl. 11:07

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Já Atli auðvita hlakka ég til jólanna og nýt þeirra í botn. Samvistir við börn og barnabörn alltaf ánægjuefni og svo heimilið skreytt og hlýtt. Maður dettur í einhvern letigír og dandalast á náttfötunum hálfu og heilu dagana. Þá les maður meira og allt er eitthvað svo kósý. Ég reyni að missa mig ekki í sælgætisát og hafa á öllu gát í þeim málum. Ferðin fyrirhugaða til að klára sumarfrísdaga og hita sig upp fyrir vorönnina í golfi verður smá riskí þar sem svo virðist sem ísöld sé að ná tökum á Evrópu en ég vona að guð láti ljós sitt skína og sendi mér sól og grænar grundir á Spán. Allavega verð ég í ró til að setja mér ný áramótaheit og tékka á árangri frá síðasta heiti. Annars er gamlárskvöld opinber fýludagur hjá mér og búin að vera til nokkurra ára. Kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 24.12.2009 kl. 13:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband