Bloggfærslur mánaðarins, mars 2011
31.3.2011 | 20:57
Stjórnendur
Ég hef nú verið að grínast með lækna, presta og fleiri starfstéttir þannig að tími er komin til að líta sér nær. Sjálf hef ég verið stjórnandi í rúm þrjátíu ár. Hér kemur því ein stjórnendasaga
Maður í loftbelg sá að hann var að missa hæð. Hann tók eftir konu á jörðinni, lækkaði flugið aðeins meira og kallaði til hennar" Afsakið, geturðu hjálpað mér? Ég lofaði að hitta vin minn fyrir klukkutíma, en veit ekki hvar ég er".
Konan svaraði " Þú ert í loftbelg sem svífur í 10 metra hæð, milli 40. og 41.
Norðlægrar breiddargráðu og milli 59. og 60. Vestlægrar lengdargráðu"
"Þú hlýtur að vinna við tölvur "sagði loftbelgsmaðurinn.
"Það geri ég " svaraði konan. " Hvernig vissirðu það "
"Nú", svaraði maðurinn, " allt sem þú sagðir mér er tæknilega rétt, en ég hef ekki hugmynd um hvaða gagn er af þeim upplýsingum, og reyndar er ég enn villtur. Satt að segja þá hefur ekki verið mikil hjálp frá þér. Ef eitthvað er þá hefurðu helst tafið ferð mína".
Konan svaraði " Þú hlýtur að vinna við stjórnun".
"Já", sagði maðurinn. "En hvernig vissir þú það?"
" Jú " svaraði konan "þú vissir hvorki hvar þú ert né hvert þú ert að fara.
Eintómt loft hefur komið þér þangað upp sem þú ert. Þú gafst loforð sem þú hefur ekki hugmynd um hvernig á að efna og þú ætlast til þess að fólk fyrir neðan þig leysi þín vandamál. Reyndar ertu í sömu stöðu og þegar við hittumst, en nú er það einhvern veginn mín sök."
24.3.2011 | 21:24
Konur og reglur
Íslendingar eru heldur andsnúnir ESB og öllu því regluverki sem fylgir þeim pakka. Þeir eru þó fljótir að aðlagast breytingum og þó sérstaklega við konurnar. Það er einn af kynjabundnum kostum kvenna.
Hér kemur gott dæmi um það.
Gömul kona kom í verslun og setti 2 dósir af dýrasta kattarmatnum sem til var í körfuna sína. Síðan fór hún að kassanum til að borga og sagði við kassadömuna. "Ekkert nema það besta handa litla kettlingum mínum". Kassadaman sagði þá "Því miður get ég ekki selt þér kattarmat, nema þú getir sannað að þú eigir kettling, það er svo mikið af gömlu fólki sem kaupir kattarmat til að borða sjálft. Út af ESB-reglunum verður verslunarstjórinn að fá sönnun þess að þú eigir kött" Gamla konan fór heim og náði í kettlinginn sinn og sýndi kassadömunni og fékk þá kattarmatinn keyptan.
Næsta dag fer gamla konan aftur í búðina og í þetta skipti setti hún hundakex í körfuna, sem hún ætlaði að gefa hundinum sínum yfir jólin. Kassadaman sagði þá "Því miður get ég ekki selt þér hundakex nema að þú getir sannað það að þú eigir hund, það er svo mikið af gömlu fólki sem kaupir hundkex til að borða sjálft. Út af ESB-reglunum verður verslunarstjórinn að fá sönnun þess að þú eigir hund ". Vonsvikinn og svekkt fór gamla konan heim og náði í hundinn sinn, sýndi hann og fékk þá að kaupa kexið.
Daginn eftir kom gamla konan aftur í búðina og hélt þá á dollu sem var með gati á lokinu. Gamla konan bað kassadömuna um að stinga puttanum í gatið. "Nei, ég geri það ekki, því þú gætir verið með snák í dollunni" Gamla konan fullvissaði hana um að svo væri ekki. Þá stakk kassadaman puttanum í gatið og tók hann svo út og sagði við gömlu konuna " Oj bara, þetta lyktar eins og mannaskítur.
Gamla konan brosti út að eyrum og spurði "vina mín get ég núna fengið að kaupa nokkrar klósettsrúllur"
20.3.2011 | 14:47
Tæpitungan er ekki góð
Stundum fæ ég að heyra það að ég sé full hreinskilin. Það er líklega rétt. Sennilega vegna þess að ég kalla hlutina réttum nöfnum og ligg ekki á skoðunum mínum. Ég er oft með dæmisögur máli mínu til stuðnings fyrir þá sem eru ekki að fatta mig, eins og Jesú gerði í den með góðum árangri. Hér kemur ein dæmisaga:
Gamli kaþólski presturinn var orðin svo þreyttur á framhjáhaldsjátningum sóknarbarna sinna í skriftarstólnum að sunnudag einn hélt hann þrumuræðu yfir þeim og sagði að hann þyldi ekki að heyra orðið "framhjáhald" einu sinni enn, annars myndi hann hætta störfum í sókninni.
En gamli presturinn var vinsæll og fólk vildi fyrir alla muni hafa hann áfram svo sóknarformaðurinn í samráði við gamla prestinn lét það boð út ganga að þeir sem vildu skrifta og játa framhjáhald myndu nota setninguna ,,ég datt á kirkjuveginum í staðinn.
Allt gekk sinn vanagang þar til gamli presturinn dó.
Nýr prestur var auðvitað ráðinn í hans stað og ekki hafði hann verið lengi við störf þegar hann kom að máli við sóknarformanninn og sagði að eitthvað yrði að laga gangveginn upp að kirkjunni því fólk segðist sífellt vera að detta.
Sóknarformaðurinn fór að flissa, en þá sagði nýi presturinn höstugur:Þú ættir nú ekki að hlæja að þessu, konan þín hefur dottið þrisvar frá áramótum!
18.3.2011 | 09:34
Hamingjan sanna
Fyrir stuttu var ég með komment á færslu hjá bloggvini sem hefur verið giftur heila eilífð og virðist afar ánægður með sinn lífsförunaut.
Ég hef mikið hugsað um þessi mál að undanförnu. Ég hef sennilega haft of mikinn tíma til að hugsa eftir að ég hætti að vinna.
Nú er rétt að nefna að ég er mjög hamingjusöm kona og afar þakklát fyrir mína stöðu og vegferð gegnum lífið til þessa. Mér finnst ég hafa þroskast nokkuð vel.
Það skiptir miklu máli að búa þannig í haginn fyrir sig, alla lífsleiðina, að maður sé tilbúinn að taka því sem að höndum ber og gera eins gott úr því og mögulegt er. Ávallt reiðubúinn eins og skátar segja.
Eitt af því sem skiptir miklu máli er hvernig samferðarfólk manns er. Góðir vinir og ættingjar, góð og skemmtileg börn, ástrík og þæg barnabörn er það sem flestir óska sér. Ekki má heldur gleyma að nefna það sem mörgum finnst mikilvægast af þessu öllu og það er elskhuginn, sambúðar- eða eiginmaðurinn sem maður deilir öllu með, sorg og gleði, hughrifum öllum og skynjun á líðandi stundu.
Sumt af þessu skapar maður og mótar með sínu framlagi eins og börn og barnabörn. Ættingja velur maður ekki en sumir hafa notið þess að eiga stóran og góðan frændgarð. Maka og vini velur maður.
Það er þó ekki alltaf sem fólk lætur skynsemina ráða og því enda sumir í misgóðum samböndum.
Ég læt hér fylgja ráðleggingu sem ég fékk senda í tölvupósti frá vinkonu minni og fannst ansi góð fyrir þær sem eru enn á lausu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
16.3.2011 | 12:28
Skálholtsferð
Um síðustu helgi fór Landsvirkjunarkórinn í söngæfingaferð í Skálholt, ásamt stjórnanda okkar sem er ungversk kona sem heitir Kristzina. Sú er bæði stórskemmtileg og mikill músikant. Kórinn er 20 ára gamall og heldur úti metnaðarfullu starfi. Tónleikar á hverju ári og nú er stefnt út fyrir landsteinana í haust. Til stendur að heimsækja heimaland stjórnandans Ungverjaland og vera þar í eina viku. Nú er æft stíft bæði á íslensku og ungversku og meiningin að bjóða upp á góða og vandaða tónlist .
Við gistum í Skála en fengum morgunmat og hádegismat í Skálholti auk þess sem við skoðuðum kirkjuna. Á föstudagskvöldið eftir æfingu var svo kvöldvaka með gamansögum og bröndurum. Það var mjög skemmtilegt og gott að kynnast félögunum betur á þennan hátt, en ég er nýkomin í kórinn og þekki fáa.
Um þessa helgi var fólk úr safnaðarnefndum á Suðurlandi að funda í Skálholti og notuðum við tækifærið og sungum fyrir þau í hádeginu á laugardeginum. Við æfðum svo um morguninn og um miðdaginn á laugardag.
Um kaffileytið var tekið strikið í bæinn. Það er svo langt síðan ég hef farið í rútuferðalag að ég söng fyrir minn sessunaut, gamla rútuslagara frá því í gamla daga eða síðan ég var ung, og hafði sjálf afar gaman að því.
Um kvöldið fór ég svo að sjá leikritið "Fjölskyldan" sem mér fannst nú ekki skemmtileg sýning en lýsir vel hvernig eiturfíknin eyðileggur líf fólks og sundrar fjölskyldum. Sýningin var full löng en tvö hlé og góður félagsskapur bætti það upp.
11.3.2011 | 16:05
Vangaveltur
Nú um stundir er ég að upplifa nýja reynslu. Það er auðvitað eðlilegt því það er gangur lífsins en samt svolítið skrýtið. Málið er að ég er nú búin að vera atvinnulaus í bráðum sex vikur. Það hefur aldrei gerst áður síðan ég var unglingur heima á Raufarhöfn.
Dagarnir líða nokkuð fljótt, þökk sé sjónvarpi með góðum golfrásum. Nú sit ég og les bækur, þurrka af og þvæ þvotta á milli þess sem ég gjóa á skjáinn. Nú hef ég tíma til að gera það sem ég hef trassað svo lengi svo sem að fá tilsögn í að mála myndir. Eins var planið að sinna barnabörnum og móður minni meira en áður þar sem maður hefur svona mikinn tíma.
Ég hef ekki áhyggjur af því hvort ég fái vinnu. Ef ég fæ ekki vinnu þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur af þjóðinni minni sem vill þá frekar borga mér fyrir að sitja heima á launum en nýta starfshæfileika mína sem eru fjölbreyttir.
Ég hef verið að hugsa um hvort tími sé til að setjast í helgan stein. Það fannst lækni mínum, Árna Tómasi Ragnarssyni, alger fjarstæða en hann sagði" það er svo mikið eftir í þér ". Um það efast ég ekki en er ástæða til þess að "klára sig" áður en maður fer að njóta elliáranna og þess sem maður hefur búið í haginn fyrir ævikvöldið?
Ég hef líka verið að spá í að flytja til Spánar yfir vetrartímann og vera heima á Íslandi á sumrin. Það hefur lengi verið draumur minn og margra annarra enda er fullt af fólki sem býr þannig. Það ætla ég að kíkja á í haust.
Í morgun hringdu þau frá Garðlist að bjóða garðúðun í vor. Ég hlakka til vorsins og sumarsins. Þá mun ég gleyma mér í golfi auk þess sem ég ætla að setja met í að hjóla um nágrennið. Ég mun halda áfram að dansa, ganga á fjöll með gönguhópnum mínum og svo er ræktin þrisvar í viku.
Það væri samt gaman að heyra frá fólki sem búið er að vera án atvinnu í lengri eða skemmri tíma um hvort og hvernig það venst því að sitja heima daglangt.
7.3.2011 | 14:47
Karlagrobb
Þrír bæklunarlæknar, íslenskur, franskur og bandarískur hittust á ráðstefnu í Bandaríkjunum og brátt fóru þeir að hælast um af verkum sínum.
"Ég græddi báða fætur á mann" sagði sá bandaríski. "Nú sigrar sá maður í hverju Maraþonhlaupinu á fætur öðru"
"Þú segir nokkuð" sagði Frakkinn ." Ég græddi báða handleggi upp að öxlum á konu sem lenti i bilslysi og nú er hún konsertpíanóameistari hjá Sinfóníunni i París"
"Já þetta er auðvitað gott og blessað" sagði Íslendingurinn. "Ég hinsvegar græddi haus á mann, kálhaus reyndar, en nú er hann borgarstjóri í Reykjavík"
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Október 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Apríl 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Bloggvinir
- solir
- gmaria
- fannarh
- thoragud
- meistarinn
- sigurjonth
- skulablogg
- gudruntora
- svavaralfred
- rheidur
- gudrunmagnea
- helgigunnars
- georg
- marinogn
- kallimatt
- zumann
- gudbjornj
- eirikurgudmundsson
- gretar-petur
- johanneshlatur
- franseis
- altice
- palmig
- lydurarnason
- omarbjarki
- gretarogoskar
- tilveran-i-esb
- paul
- ksh
- thjodarsalin
- framtid
- kop
- jon-o-vilhjalmsson
- sunna2
- neytendatalsmadur
- duna54
- jonsnae
- sjonsson
- duddi9
- olofdebont
- magnusjonasson
- helgatho
- fullvalda
- kokkurinn
- olafiaherborg
- nimbus
- jakobk
- stebbifr
- ranka
- heimssyn
- rs1600
- maggij
- bjarnihardar
- bookiceland
- frjalslyndir
- gauisig
- zeriaph
- gthg
- gustaf
- hannesgi
- diva73
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- prakkarinn
- ragnar73
- ziggi
- visur7
- tryggvigislason
- ursula
- valdimarjohannesson
- postdoc
- icekeiko