Leita í fréttum mbl.is

Skálholtsferđ

Skálholt 2011 006Um síđustu helgi fór Landsvirkjunarkórinn í söngćfingaferđ í Skálholt, ásamt stjórnanda okkar sem er ungversk kona sem heitir Kristzina. Sú er bćđi stórskemmtileg og mikill músikant. Kórinn er 20 ára gamall og heldur úti metnađarfullu starfi. Tónleikar á hverju ári og nú er stefnt út fyrir landsteinana í haust. Til stendur ađ heimsćkja heimaland stjórnandans Ungverjaland og vera ţar í eina viku. Nú er ćft stíft bćđi á íslensku og ungversku og meiningin ađ bjóđa upp á góđa og vandađa tónlist .

Viđ gistum í Skála en fengum morgunmat og hádegismat í Skálholti auk ţess sem viđ skođuđum kirkjuna. Á föstudagskvöldiđ eftir ćfingu var svo kvöldvaka međ gamansögum og bröndurum. Ţađ var mjög skemmtilegt og gott ađ kynnast félögunum betur á ţennan hátt, en ég er nýkomin í kórinn og ţekki fáa.

Um ţessa helgi var fólk úr safnađarnefndum á Suđurlandi ađ funda í Skálholti og notuđum viđ tćkifćriđ og sungum fyrir ţau í hádeginu á laugardeginum.  Viđ ćfđum svo um morguninn og um miđdaginn á laugardag.

Um kaffileytiđ var tekiđ strikiđ í bćinn. Ţađ er svo langt síđan ég hef fariđ í rútuferđalag ađ ég söng fyrir minn sessunaut, gamla rútuslagara frá ţví í gamla daga eđa síđan ég var ung, og hafđi sjálf afar gaman ađ ţví.

Um kvöldiđ fór ég svo ađ sjá leikritiđ "Fjölskyldan" sem mér fannst nú ekki skemmtileg sýning en lýsir vel hvernig eiturfíknin eyđileggur líf fólks og sundrar fjölskyldum. Sýningin var full löng en tvö hlé og góđur félagsskapur bćtti ţađ upp.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mátti til međ ađ leggja orđ í belg hér á bloggi ţínu Kolbrún. Ţú virđist hrćra í ýmsustu málum og áhugamálin ţín fjölmörg,líkt og hér söngurinn. Í hitteđfyrra fór ég í fyrsta sinn inní Skálholtskirkju,ţó er ég búinn ađ aka ţarna framhjá margsinnis. Ég var svo heppin ađ ţarna var ađ byrja kórsöngur,og ţar var á ferđinni kórfélagar úr M H og Ţorgerđur sú eina sanna var stjórnandin,og hvílíkir tónleikar söngurin alveg einstakur og hljómurin í kirkjunni frábćr. Ţetta er mér ógleymanleg stund,og ţetta unga fólk er ţjóđinni til sóma frábćr kynslóđ sem tekur viđ af okkur,ţađ er svo.  Kolbrún,fjörkálfur hafđu ţađ ćtíđ sem best.

Númi (IP-tala skráđ) 16.3.2011 kl. 15:08

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Skálholt er mikiđ sótt af kórum og orgenleikurum. Ţangađ fer tengdasonur minn (fyrrverandi)  árlega međ kollegum sínum en hann er organisti á Egilsstöđum og Kórstjóri hann er norskur.,Ekki langt síđan hann var ţar,kemur alltaf viđ hjá sinni gömlu tengdó. Mér finnst fólk áberandi hamingjusamt ađ vera í ţessum félagsskap. Fređalög til útlanda er einn skemmtilegur liđur í ţessu  ,,hobby,, Mb.kv. 

Helga Kristjánsdóttir, 16.3.2011 kl. 18:31

3 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sćll Númi. Já ég er ekki viđ eina fjölina felld eins og sagt er og víđa liggja leiđir hvađ áhugamál varđar. Ég hef ţó mestan áhuga á mannlífinu og fólki. Hitt er meira leiđir til ađ nálgast fólk og njóta samvista viđ ţađ. Varđandi sönginn ţá er hann nánast međfćddur ţví ţađ var alltaf mikil tónlistariđkun á mínu ćskuheimili. Hef t.d veriđ í kór frá 16 ára aldri og tók svo hlé frá 1997 til 2010 og er semsagt byrjuđ í ţessum kór sem um rćđir. Takk fyrir skemmtileg samskipti á bloggi Björns í dag og fyrir öll fallegu uppnefni ţó ég sé nú ekki sammála ţessu oflofi. Jú ég er auđvitađ fjörkálfur á blogginu og lćt ýmislegt flakka og vona ađ mér líđist ţađ. kveđja til ţín

Kolbrún Stefánsdóttir, 16.3.2011 kl. 20:20

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sćl Helga. Hamingjusamt fólk segirđu. Ég er alveg viss um ađ ţađ er mun meiri heilsubót í ţví ađ syngja en margir halda. Ţađ er ekki bara ánćgjulegt og gefandi heldur svo gott fyrir líkamann. Mađur verđur ađ anda rétt og ţetta kallar á heilbrigđa slökun. Held ađ ţađ hafi hjálpađ mér ađ komast í gegnum hryllilegt stresstímabil á Snćfellsnesinu á sínum tíma ađ vera í kórnum. Kveđja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 16.3.2011 kl. 20:23

5 identicon

Ţađ var yndislegt ađ hlusta á rútusönginn ţinn Kolla mín og helgin var frábćr.

Sessunauturinn (IP-tala skráđ) 17.3.2011 kl. 15:08

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 121913

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband