13.8.2009 | 09:17
Sléttuganga
Fór norður föstudaginn 7. ágúst og ákvað á leiðinni að taka þátt í Sléttugöngu sem var farin laugardaginn 8.8. kl 8:00. Átján manns voru með í þetta sinn. Gengið var frá túnfæti í Hóli, upp í Grashól sem löngu er kominn í eyði og þaðan þvert yfir Melrakkasléttu milli Leirhafnarfjalla og komið niður við spennistöðina ofan við Kópasker. Þetta eru 31 km og gengið nánast á jafnsléttu allan tímann. Við vorum komin í bíla á Kópaskeri kl 17:00 Það kemur sjálfsagt engum á óvart að þetta var heldur litlaus ganga og ekki margt sem fangaði augað. Ég var afar fegin þegar þetta var búið en jafnframt ánægð að hafa drifið mig. Fótafúin og þreytt fór ég í rúmið þetta kvöld og hugsaði til ömmu minnar sem hefði orðið 115 ára þennan dag. Það veit ég fyrir víst að henni hefði þótt þetta heldur undarleg hegðun þar sem ég átti ekkert sérstakt erindi.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Október 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Apríl 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Bloggvinir
- solir
- gmaria
- fannarh
- thoragud
- meistarinn
- sigurjonth
- skulablogg
- gudruntora
- svavaralfred
- rheidur
- gudrunmagnea
- helgigunnars
- georg
- marinogn
- kallimatt
- zumann
- gudbjornj
- eirikurgudmundsson
- gretar-petur
- johanneshlatur
- franseis
- altice
- palmig
- lydurarnason
- omarbjarki
- gretarogoskar
- tilveran-i-esb
- paul
- ksh
- thjodarsalin
- framtid
- kop
- jon-o-vilhjalmsson
- sunna2
- neytendatalsmadur
- duna54
- jonsnae
- sjonsson
- duddi9
- olofdebont
- magnusjonasson
- helgatho
- fullvalda
- kokkurinn
- olafiaherborg
- nimbus
- jakobk
- stebbifr
- ranka
- heimssyn
- rs1600
- maggij
- bjarnihardar
- bookiceland
- frjalslyndir
- gauisig
- zeriaph
- gthg
- gustaf
- hannesgi
- diva73
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- prakkarinn
- ragnar73
- ziggi
- visur7
- tryggvigislason
- ursula
- valdimarjohannesson
- postdoc
- icekeiko
Athugasemdir
Seig ertu að hafa lagt Sléttuna að velli, það hefur verið draumur minn eftir að þessi ganga kom til sögunnar. Vonandi á það eftir að rætast.
Er þetta annars svona óspennandi eins og þú segir? Ef þetta er marflatt, af hverju tekur þá um 9 tíma að ganga þessa 31 km?
Halda menn hópinn eða gengur hver með sínu tempói? Eru einhverjir slóðar sem gengið er eftir eða eru menn alltaf í kargaþýfi?
Ég spyr kannski alltof margra spurninga en það væri gaman að heyra þig tjá þig nánar um þetta.
Þeir eru ekki margir sem ég þekki á myndinni þótt ég tvísmellti til að fá hana stóra! Er skömm að því? Eða var þetta aðkomufólk eða fólk sem flutt hefur eftir að ég yfirgaf svæðið?
Ágúst Ásgeirsson, 13.8.2009 kl. 20:59
Sæll Gústi. Já vonandi rætist sá draumur þinn allavega er Sléttan ekki að fara neitt. Hvort einhver verður enn búandi á svæðinu er svo önnur saga. Raufarhöfn er að verða hryggðarmynd með annað hvert hús autt t.d. í Ásgötunni og margar íbúðir í blokkinni. Mér er sagt að það sé þó heldur að glæðast og fólk farið að flytja til staðarins eftir hrunið.
Æ ég veit ekki hvort hægt er að segja óspennandi en mér fannst ég þekkja hverja þúfu. Við lögðum ekki af stað í raunverulega göngu fyrr en svona rúmlega níu. Mæting var á Hótelinu kl 8:00 og síðan keyrt fram að Hóli. Smá tími fór í myndatökur os. frv. Steingrímur bóndi á Hóli fylgdi okkur upp að Grashóli og nefndi landið, fjöllin, vötnin og þúfurnar. Gengið var í slóð eftir farartæki og líka í þúfum og smá bleytu. Við héldum hópinn nokkuð en hann teygðist stundum og þá var áð.
Þú þarft ekki að skammast þín neitt Gústi því það eru bara ég, Steingrímur og Indriði Indriða sem erum "heimafólk" hitt kom að bæði frá Þórshöfn og Húsavík.
Ég var allavega kát þegar ég hafði klárað þennan draum frá og hvíldinni fegin enda búin að keyra úr bænum daginn áður og fór seint að sofa. kveðja Kolla
Kolbrún Stefánsdóttir, 13.8.2009 kl. 21:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.