30.3.2009 | 22:35
Vikan
Fann þessa mynd af mér á Raufarhafnarvefnum fyrir nokkru og hirti hana því hún hefur vissa þýðingu fyrir mig. Ég er með verðlaunapening um hálsinn og á höfðinu hef ég húfubát sem merktur er Vikan. Tilefnið var að ég fékk verðlaun frá Vikunni sem ég var umboðsmaður fyrir og var söluhæst yfir landið, einhvern tiltekinn tíma. Það var gaman að selja Vikuna því það vildu allir kaupa bæði sjómenn, sem ekki sáu mikið af blöðum, og eins síldarstelpurnar sem létu það eftir sér að kaupa blaðið. Maður var því mjög vinsæll þegar maður birtist klyfjaður af blöðum. Aldrei áður hafði ég fengið verðlaun og þekkti engan sem hafði fengið slíkt. Þá voru ekki keppnir og mót eins og nú tíðkast hvað þá mót þar sem allir fá medalíu fyrir þátttökuna. Þetta hleypti miklu kappi í okkur systurnar en systir mín var auðvitað með í þessu og vinkona hennar. Ég var því snemma komin í það að stjórna liði. Ég rifja þetta upp hér í tilefni af því að ég verð í yfirheyrslu hjá Vikunni í næstu eða þarnæstu viku.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 122263
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Október 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Apríl 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Bloggvinir
- solir
- gmaria
- fannarh
- thoragud
- meistarinn
- sigurjonth
- skulablogg
- gudruntora
- svavaralfred
- rheidur
- gudrunmagnea
- helgigunnars
- georg
- marinogn
- kallimatt
- zumann
- gudbjornj
- eirikurgudmundsson
- gretar-petur
- johanneshlatur
- franseis
- altice
- palmig
- lydurarnason
- omarbjarki
- gretarogoskar
- tilveran-i-esb
- paul
- ksh
- thjodarsalin
- framtid
- kop
- jon-o-vilhjalmsson
- sunna2
- neytendatalsmadur
- duna54
- jonsnae
- sjonsson
- duddi9
- olofdebont
- magnusjonasson
- helgatho
- fullvalda
- kokkurinn
- olafiaherborg
- nimbus
- jakobk
- stebbifr
- ranka
- heimssyn
- rs1600
- maggij
- bjarnihardar
- bookiceland
- frjalslyndir
- gauisig
- zeriaph
- gthg
- gustaf
- hannesgi
- diva73
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- prakkarinn
- ragnar73
- ziggi
- visur7
- tryggvigislason
- ursula
- valdimarjohannesson
- postdoc
- icekeiko
Athugasemdir
Sæl Kolbrún, hvaða börn eru með þér á myndinni? Ég er ættuð frá Raufarhöfn og langar að vita hvort ég muni þekkja börnin, en ég veit ekki hver þú ert, því miður.... Veistu hvaða ár þessi mynd er tekin?
Soffía Helgadóttir (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 22:46
Sæl Soffía. Ég held að þessi mynd sé tekin 1962-3. Með mér á myndinni eru Guðrún systir mín og Magnús bróðir og svo frænka mín úr Hafnarfirði sem heitir Steinunn Benediktsdóttir en hún varð þekkt fyrirsæta og starfaði hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar í mörg ár og reyndar síðast þegar ég vissi. Ertu dóttir Helga Kristjáns eða Helga Páls? Það væri gaman að vita. Þú ert ekki alin þar upp er það? kveðja Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 30.3.2009 kl. 23:27
Sæl Kolla, ég er dóttir Helga Páls og Halldóru Hólmgríms. Nei, ég er fædd og uppalin á Húsavík, og bý þar. En var nokkur sumur í Vogi og á Raufarhöfn, hjá ömmu og afa í Ásbyrgi.
Takk fyrir þetta, gaman að þessu
Soffía Helgadóttir (IP-tala skráð) 31.3.2009 kl. 00:42
Frábær mynd af liðinu, Særún hefur þá væntanlega smellt af fyrst hún er ekki á henni. Ekki vissi ég af þessu afreki þínu, skemmtileg saga.
Ágúst Ásgeirsson, 31.3.2009 kl. 07:06
Sæl verið þið Soffía og Ágúst. Já þetta er ekki stór heimur. Ég þekki auðvitað allt þitt fólk á Raufarhöfn Soffía. Hvernig gengur á Húsavík? Allt á kafi í snjó og ófært um Sléttu Ég sé ekki að ég komist norður fyrir páskana. Ég er búin að vera í startholunum í þrjár vikur og alltaf leiðindaveður og ófærð.
Ágúst Takk fyrir kommentið. Ég er ekki viss hvar Særún var, sennilega á húsþökum í nágrenningu eða bara að selja vikuna Hún var ansi dugleg á þessum árum t.d. datt hún ofan af einum stóra tanknum þegar hún var að príla og komin efst upp. Það varð henni til lífs að verið var að vinna í tanknum og karlmaður skreið út um opið einmitt þegar hún var að lenda á steinkantinum sem var og er utan um tankana. Hún stóð upp og hristi sig og hljóp svo í burtu en pabbi sem var inni í tanknum og fleiri menn stumruðu yfir manninum sem lá hálft sumarið í rúminu. Nei nei Helgi Ólafsson yfirljósmyndari Morgunblaðsins kom spes til að taka myndina. Ég var svo feimin að ég neitaði nema að fá að girða mig af með krökkunum. Ég man enn hvað mér leið illa yfir þessari myndatöku en var í hina röndina afar montin af árangrinum. kveðjur Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 31.3.2009 kl. 22:23
Sæl aftur, jú hér er allt á kafi og ég man ekki eftir svona vetri í mörg, mörg ár. Vonandi verður aldrei svona vetur aftur, og þá meina ég á allan hátt. Ég var að var eitt sumar á Raufarhöfn að vinna í frystihúsinu, 1979, þá 15 ára og þá hefur þú verið að vinna í Landsbankanum þar, sé ég að ferilskránni þinni. En hugurinn var þannig þetta sumar, að ég man lítið eftir sumrinu nema þá rigningunni. Bestu kveðjur - Soffía
Soffía Helgadóttir (IP-tala skráð) 1.4.2009 kl. 11:12
Sæl Soffía. Ég tek undir það með þér að vonandi verður ekki annar slíkur vetur hvorki hvað varðar veðurfar fyrir norðan og vestan eða efnahagsmál. Já þú hefur kíkt á ferilskrána mína og þá sérðu að ég átti Brimrúnu mína 1980 og tók mér þá frí í tvö ár til að vera með hana heima. Missti svolítið af því sem var að gerast í bænum eða allavega hjá unga fólkinu. Varst þú þegar áströlsku stelpurnar voru eða komu þær 1980? Það var nú aldeilis búbót fyrir karlpeninginn Bestu kveðjur Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 1.4.2009 kl. 18:18
Sæl Kolla, ég man nú ekki eftir áströlskum stelpum þetta sumar en það getur samt verið að þær hafi verið komnar. Allavega man ég eftir tilveru þeirra á Raufarhöfn þegar ég kom í heimsóknir til Jónasar og Möddu, og fór á ball með þeim í félagsheimilinu. Það ætti að vera fært um Sléttuna í næstu viku skv. veðurspánni Bestu kveðjur - Soffía
Soffía Helgadóttir (IP-tala skráð) 1.4.2009 kl. 19:45
fært um Sléttu segirðu en þá er maður alveg týndur í kosningabaráttunni. Var á afar skemmtilegum fundi með félögum í flokknum í kvöld. Hefði getað haldið áfram í alla nótt en ágætt að fara að hvíla sig. Ef við komumst í návígi Soffía endilega hnipptu í mig ef þú þekkir mig í sjón því ég þekki þig ekki en það væri gaman að hitta þig. Bestu kveðjur norður og til þinna ættmenna Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 2.4.2009 kl. 00:05
Sæl, já ég hnippi í þig Gangi þér vel í kosningabaráttunni. kv. Soffía
Soffía Helgadóttir (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 09:14
Bara smá fréttaauki. Ég var svo hégómleg að ég keypti vikuna þegar viðtalið birtist og hvað haldið þið , var þá ekki heilmikið viðtal og stærðar mynd af Magnúsi bróður mínum forvarnarfulltrúanum á þarnæstu blaðsíðu. Smá breyting á útliti síðan á þessari mynd hjá okkur báðum.
kveðjur út vikuna Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 2.4.2009 kl. 19:46
Sæl Kolbrún. Getur verið að við höfum verið að keppa í spretthlaupi á héraðmóti í Ásbyrgi fyrir all nokkuð mörgum árum? Ég man allavega eftir stelpu frá Raufarhöfn, sem hér Kolbrún, og hún vann mig á sprettinum! Þetta gæti hafa verið um 1967-68. Ég reyndar hélt mig við hlaupin en var alltaf að bíða eftir þessari spretthörðu stelpu frá Raufarhöfn, sem aldrei kom aftur! Gangi þér vel í baráttunni,sem þú ert í núna. kveðja úr Garðabæ, Oddný
Oddný Árnadóttir (IP-tala skráð) 8.4.2009 kl. 21:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.