Leita í fréttum mbl.is

Fréttabréf Landssambands kvenna í Frjálslynda flokknum.

Grein úr fyrsta tölublaði. 

Jafnréttismál  

Það er margt sem gaman væri að impra á í þessu blaði sem er nýtt af nálinni og vissulega nokkuð óvíst hvað framtíðin ber í skauti sér. Á mínu uppvaxtarheimili var mikið sungið og einn textinn byrjaði svona... "Er lít ég fram í tímann ég fæ ekki annað séð, en fullt sé allt af lífsins bestu gæðum"  Ég hef alltaf haldið upp á þennan texta og finnst hann eiga vel við í dag . Það er óhætt að segja að í flestu tilliti er framtíðin björt  fyrir mjög marga. Þó er ýmislegt  sem ég vildi hafa öðruvísi og þá er það helst að meira jafnræði sé á milli manna og einnig milli landshluta. Ég tel að verulega hafi hallað á landsbyggðina í langan tíma og verður sá halli æ meiri með hverju árinu sem líður. Annað sem ég vildi sjá færast til betri vegar er breyting á kjörum fatlaðra og að þeim verði gefið tækifæri til að sanna hvað þeir hafa fram að færa til samfélagsins. Það sem er brýnast er að sú þjónusta sem þeir fá verði notendamiðuð en ekki stofnanamiðuð. Að notandi þjónustu ráði hvar hún fer fram og hver þjónustar hann. Fatlaðir hafa verið duglegir að berjast fyrir réttindum sínum og  gott dæmi um það er ung og skelegg kona  sem býr við mikla fötlun. Hún var  tilnefnd kona ársins 2007 . Hún heitir Freyja Haraldsdóttir og gaf út bók núna fyrir jólin. Einnig hefur hún  farið um landið og haldið fyrirlestra um sínar aðstæður og viðhorf fólks til fötlunar. Ég hvet allar konur til að lesa bókina Postulín og fylgjast með baráttu Freyju fyrir bættum kjörum fatlaðra.  Hennar framlag til þessara mála veldur því að ég lít björtum augum fram í tímann...  

kveðja Kolbrún.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með daginn! Sammála hverju orði sem þú skrifar  Hér á Akureyri sátum við á fundinum Bleik orka. Þú hugsar um landsbyggðina þó í Kraganum búir.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 8.3.2008 kl. 16:27

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Takk fyrir það Gísli. Það er ekki á hverjum degi sem við erum alveg sammála en kemur þó fyrir. Ég vona að þú lesir bókina hennar Freyju.

Kveðja til þín Kolla 

Kolbrún Stefánsdóttir, 8.3.2008 kl. 21:09

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Kolla.

Flott að fá þessa grein á netið, góð grein.

góð kveðja.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 8.3.2008 kl. 23:26

4 identicon

Sæl Kolbrún,alltaf gaman að lesa þínar greinar og þessi er mjög svo þörf,ss.mjög góð grein,ég verð að viðurkenna að ég er ekki búinn að lesa um lífshlaup Freyju en er aðeins farinn að glugga í hana,verð að bæta þar úr, annars saknaði ég þín á gólfið í kvöld :)

Gúndi Glans (IP-tala skráð) 9.3.2008 kl. 02:29

5 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Hæ hæ   Gúndi Glans þvílíkt glamúr nafn  Já ég vona að einhver hafi saknað mín en ég var í góðum félagskap barnabarna þar sem foreldrarnir voru á árshátíð Landsbankans. Það er nú hálf hallærislegt að birta greinar sem er búið að birta annarstaðar áður en mig langar að eiga þær á blogginu mínu. Næst ætla ég að blogga um velheppnaða golfferð til Florída. Sjáumst síðar kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 9.3.2008 kl. 13:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband