11.3.2011 | 16:05
Vangaveltur
Nú um stundir er ég að upplifa nýja reynslu. Það er auðvitað eðlilegt því það er gangur lífsins en samt svolítið skrýtið. Málið er að ég er nú búin að vera atvinnulaus í bráðum sex vikur. Það hefur aldrei gerst áður síðan ég var unglingur heima á Raufarhöfn.
Dagarnir líða nokkuð fljótt, þökk sé sjónvarpi með góðum golfrásum. Nú sit ég og les bækur, þurrka af og þvæ þvotta á milli þess sem ég gjóa á skjáinn. Nú hef ég tíma til að gera það sem ég hef trassað svo lengi svo sem að fá tilsögn í að mála myndir. Eins var planið að sinna barnabörnum og móður minni meira en áður þar sem maður hefur svona mikinn tíma.
Ég hef ekki áhyggjur af því hvort ég fái vinnu. Ef ég fæ ekki vinnu þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur af þjóðinni minni sem vill þá frekar borga mér fyrir að sitja heima á launum en nýta starfshæfileika mína sem eru fjölbreyttir.
Ég hef verið að hugsa um hvort tími sé til að setjast í helgan stein. Það fannst lækni mínum, Árna Tómasi Ragnarssyni, alger fjarstæða en hann sagði" það er svo mikið eftir í þér ". Um það efast ég ekki en er ástæða til þess að "klára sig" áður en maður fer að njóta elliáranna og þess sem maður hefur búið í haginn fyrir ævikvöldið?
Ég hef líka verið að spá í að flytja til Spánar yfir vetrartímann og vera heima á Íslandi á sumrin. Það hefur lengi verið draumur minn og margra annarra enda er fullt af fólki sem býr þannig. Það ætla ég að kíkja á í haust.
Í morgun hringdu þau frá Garðlist að bjóða garðúðun í vor. Ég hlakka til vorsins og sumarsins. Þá mun ég gleyma mér í golfi auk þess sem ég ætla að setja met í að hjóla um nágrennið. Ég mun halda áfram að dansa, ganga á fjöll með gönguhópnum mínum og svo er ræktin þrisvar í viku.
Það væri samt gaman að heyra frá fólki sem búið er að vera án atvinnu í lengri eða skemmri tíma um hvort og hvernig það venst því að sitja heima daglangt.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Október 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Apríl 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Bloggvinir
- solir
- gmaria
- fannarh
- thoragud
- meistarinn
- sigurjonth
- skulablogg
- gudruntora
- svavaralfred
- rheidur
- gudrunmagnea
- helgigunnars
- georg
- marinogn
- kallimatt
- zumann
- gudbjornj
- eirikurgudmundsson
- gretar-petur
- johanneshlatur
- franseis
- altice
- palmig
- lydurarnason
- omarbjarki
- gretarogoskar
- tilveran-i-esb
- paul
- ksh
- thjodarsalin
- framtid
- kop
- jon-o-vilhjalmsson
- sunna2
- neytendatalsmadur
- duna54
- jonsnae
- sjonsson
- duddi9
- olofdebont
- magnusjonasson
- helgatho
- fullvalda
- kokkurinn
- olafiaherborg
- nimbus
- jakobk
- stebbifr
- ranka
- heimssyn
- rs1600
- maggij
- bjarnihardar
- bookiceland
- frjalslyndir
- gauisig
- zeriaph
- gthg
- gustaf
- hannesgi
- diva73
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- prakkarinn
- ragnar73
- ziggi
- visur7
- tryggvigislason
- ursula
- valdimarjohannesson
- postdoc
- icekeiko
Athugasemdir
Sæl og blessuð Kolla! Leitt með atvinnuleysið. Að öðru leyti er þessi færsla ígildi vorkomunnar. Vildi að ég gæti skrifað svona fallega. Gangi þér sem allra best í þínum fjölþættu áhugamálum og lífinu almennt.
Kveðja, Björn
Björn Birgisson, 11.3.2011 kl. 16:21
Þú tekur atvinnuleysinu með réttu hugarfari. Njóttu lífsins.
Úrsúla Jünemann, 11.3.2011 kl. 16:34
Verð bara að kommenta á þessa færslu hjá þér. Þú varst að velta því fyrir þér hvort ástæða væri til að klára sig áður en maður myndi setjast í helgan stein. Ég er sjálf hjá Árna Tómasi og vill hann halda mér úti á vinnumarkaðnum sem lengst. Skil hann sjónarmið en ég er samt á því að fara varlega og vildi getað minnkað við mig vinnu áður en en ég klára mig eins og þú orðaðir það. Þekki ekki til örorku en mér finnst að það ætti að vera hægt að minnka við sig vinnu og halda sömu kjörum í stað þess að pína sig þangað til ekkert er eftir og þá að detta alveg út af vinnumarkaðnum. Trúi því vel að þú sért að huga um Spán....gangi þér vel
Ragnhildur Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 11.3.2011 kl. 16:36
Sæl Kolbrún, ég er viss um að þú hefur hæfileika til hverskonar listsköpunar. Málari,?) kanski að selja grimmt eftir x mörg ár,nei,held þú viljir eiga það sjálf og gefa börnunum. En gangi þér allt í haginn.
Helga Kristjánsdóttir, 11.3.2011 kl. 23:42
Björn takk fyrir falleg orð í minn garð. En ég þarf ekki að kvarta undan atvinnuleysinu því ég er í nokkuð góðum málum en er að setja mig í spor annarra sem eru yngri og kannski búa ekki eins vel og ég. Ég á vinkonur sem hafa verið atvinnulausar í meira en ár og virðast vera að aðlagast því. Þetta er alltaf spurning um afkomuna ekki satt. Nóg er hægt að gera sér til yndis og ánægju yfir daginn. Hef verið að spá hvernig ég hafi haft tíma til að gera allt sem ég gerði með vinnu því dagarnir fljúga núna Kveðja til þín skemmtilegi maður
Kolbrún Stefánsdóttir, 13.3.2011 kl. 13:32
Úrsúla ég ætla einmitt að njóta þess að vera heima og gera ýmislegt sem ég hef neitað mér um á langri starfsævi. Takk fyrir kommentið.
Ragnhildurhann Árni er búinn að vera minn læknir síðan ég var í Landsbankanum og veit manna best að ég er í "toppstandi" Ég var að kvarta undan því að ég fengi verk í löppina eftir strembinn tjútttíma í dansinum og hann sagði mér að þetta væri smá tábergssig og ekkert nema fá púða í skóna. Annars er ég viðhaldsfrí og helv. heilbrigð bæði á sál og líkama. Við ættum samt að hugsa um það að gott er að draga sig út af vinnumarkaði eins og þú nefnir og stækka tímann sem við erum að njóta lífsins .... það styttist í annan endann ekki satt
Helga þú ert heit Ég á nokkrar myndir eftir mig og my X fékk líka mynd úr búinu sem ég málaði í den. Helst vildi ég verða afkastamikil og flink, eins og þú segir á þessu sviði, því það er mikilvægt að gleðja auga sem flestra. Fékk reyndar tilboð í eina mynd en vildi ekki selja hana. Hún er á rekaviðarfjöl og af bát heiman frá Raufarhöfn á heimsiglingu en ég reikna ekki með stórgróða í þessu en það er mjög gefandi að skapa eitthvað fallegt Takk fyrir kommentin ykkar stelpur og góðar óskir mér til handa. Hafið það sjálfar sem allra best.
Kolbrún Stefánsdóttir, 13.3.2011 kl. 13:46
Meiriháttar meyjan hér,
er merk og tígin.
Tryllingsleg í tjútti er
og tábergssígin!
Magnús Geir Guðmundsson, 14.3.2011 kl. 18:43
hahahah hann klikkar ekki í kveðskapnum meistarinn knús á þig karlinn, ég átti þetta skilið, alltaf svo ands. hreinskilin
Kolbrún Stefánsdóttir, 14.3.2011 kl. 21:46
<er ástæða til þess að "klára sig" áður en maður fer að njóta elliáranna> spyrðu...við erum alin upp þannig allavega..
Er sjálf búin að prófa að vera atvinnulaus í 2 ár og nei því miður er það ekki neitt sem maður leyfir sér að venjast.....ekki undir nokkrum kringumstæðum var það ásættanlegt......en ég er auðvitað nokkrum árum yngri en þú ;) Njóttu lífsins Kolla mín og það þarf ekkert að ræða það frekar ;)
Iris E (IP-tala skráð) 14.3.2011 kl. 22:08
Sæl Íris. Satt segir þú, maður er alin þannig upp og það hefur fylgt manni alla tíð að maður á að vinna og vinna vel.
Ég skildi eftir mig gott bú þar sem ég vann síðast ( Hjá Sjálfsbjörg ) og er stolt af þeim árangri sem náðist þar. Auðvitað var ég ekki ein, hafði mjög hæfan yfirmann og góða samstarfskonu en saman gerðum við góða hluti í þessi fimm ár sem ég var þar, sem eiga eftir að duga því batteríi í nokkuð mörg ár. Sennilega eitt ríkasta hagsmunafélagið í þessum geira. Fullt hús af peningum
Ég mun að sjálfssögðu leita að vinnu þar sem ég held að ég geti nýst vel en ég er ekki að örvænta þó ég fái ekki vinnu satt best að segja.
Ég er nú á afar skemmtilegum aldri til að fara að leika mér meira. Ég hef samúð með þeim sem eru í þeim sporum sem þú hefur verið í að missa tvö ár úr starfsferli sínum.
Vona að allt gangi þér í haginn í framtíðinni og þakka kærlega fyrir hlýtt komment
Kolbrún Stefánsdóttir, 15.3.2011 kl. 08:03
Það er nú líka hægt að ná´sér í smá skotsilfur hafi maður tilfinnigu fyrir kynningu á vörum frá Brokkoly-fyrirtækinu.Brokkoly-spírur eru ræktaðar í Brasilíu og teknar upp 3-4daga gamlar.Efnið Sulfarafhane er unnið úr þeim og selt í töfluformi. Það verkar sérstaklega vel á frumur heilans,því vitað er að þær geta endurnýjað sig. Þetta er netverslun og pantanir eru sendar í fragtskála Samskipa Sundahöfn,þangað sem kaupandi sækir hann sjálfur. Fyrirtækið selur einnig megrunar efni,með nokkuð öðru innihaldi en Hirblife,tannkrem og blúss töflur,ef maður vill vera duglegur er 100% úr náttúrunni. Hægt að kíkja inná Suðurlandsbraut 20,eða Natures.is. Alla vega var þar. Maður ræður sjálfur hversu mikið maður vill leggja á sig.Sumir selja héðan í Danm. og þýskal. Einhverf börn hafa sýnt framfarir eftir að hafa fengið þessar töflur. Sjálf tek ég brokkoly og Alovera sem ég kaupi á liters kassa eins og bjór,með krana,því alltaf ferskt án súrefnis. Ég gat ekki sofið fyrir útvarpsupplestri í næstu íbúð kíkti þá á bloggið og er búin að auglýsa vörur,ætlaði að benda á viðskipta tækifæri, Kolla mín ,en nú er ráð að hættaog segja góða nótt.
Helga Kristjánsdóttir, 16.3.2011 kl. 04:59
Sæl Helga. Auðvitað er hægt að hafa tekjur af hinu og þessu og svo er líka hægt að fara betur með fé. Töflur sem endurnýja heilafrumurnar hljómar áhugavert fyrir fólk sem farið er að gleyma og sjálf á ég það til að muna ekki hvað fólk heitir :) þó ég sjái það ljóslifandi fyrir mér. Best að kíkja á þessa vöru við tækifæri. Takk fyrir innlitið og hollráðin kveðja til þín KS
Kolbrún Stefánsdóttir, 16.3.2011 kl. 20:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.