Leita í fréttum mbl.is

FM 106,5

IMG_1630Nýlega var ég í útvarpsviðtali hjá Ö-FM 106,5. Þetta er útvarpsstöð sem ungir og hressir strákar reka sem eru félagar í Ný-ung, ungliðahreyfingu Sjálfsbjargar lsf, í samstarfi við Hitt húsið sem rekið er af Reykjavíkurborg. 

"Hitt húsið" er afar jákvætt framlag Reykjavíkurborgar sem hefur það hlutverk að leyfa ungu fólki á aldrinum 16-25 að vinna að eigin hugmyndum, vera miðstöð ungs fólks í leit að sumarstarfi, vettvangur fyrir félagsleg úrræði og ráðgjöf fyrir ungt fólk.

Ný-ung hefur undanfarin ár unnið í samstarfi við Hitt húsið og margt gott og skemmtilegt komið út úr því eins og http://oryrki.is/  og  nú þetta frjálslega og skemmtilega útvarp FM 106,5.  

Þeir hafa tekið þjóðþekkta Íslendinga í viðtal og má þar nefna Hemma Gunn þann yndislega skemmtikraft og þjóðarkrútt, Ómar Ragnarsson sem nú er pínu peningalaus en alltaf jafn skemmtilegur og Ladda sem varð frægur fyrir að halda upp á sextugsafmælið sitt í 2-3 ár, auk þess að vera þjóðþekktur golfari og skemmtikraftur af guðs náð.

Ég er nú að vona að þeim hafi fundist ég svona skemmtilega þó ég sé ekki þjóðþekkt.

Ég vildi gjarnan verða þjóðarkrútt eins og "Hemmi minn".

Ladda ætla ég að taka til fyrirmyndar og halda upp á afmælið mitt nokkur næstu árin.

Vonast til sleppa við þær þrengingar sem Ómar er að glíma við, en ef ekki vonast ég til að góður þjóðarhugur verði  með mér eins og honum.

Annars er ég bara góð Wink

  

 

   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Líst vel á þetta,jákvætt,bara fínt.

Helga Kristjánsdóttir, 24.7.2010 kl. 02:53

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Takk fyrir það Helga. Já auðvitað er málið að halda í jákvæðnina eins og hægt er. Kveðja til þín frá kóngsins Köben Kolla. 

Kolbrún Stefánsdóttir, 25.7.2010 kl. 08:37

3 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Sæl Kolbrún.

Ég er ekki á sömu línu og þú í pólitík, enda einn af hörðustu sjálfstæðismönnum landsins. En ég fylgdist með þér í kosningabaráttunni og hreifst af bjartsýninni og gleðinni sem geislaði af þér.

Ég læt pólitískar skoðanir mínar ekki þvælast fyrir mér varðandi álit á fólki.

Ég er viss um að þér tekst að verða "þjóðarkrútt" ef þú kemur þér á framfæri í fjölmiðlum. Þú hefur mjög heillandi útgeislun.

Jón Ríkharðsson, 26.7.2010 kl. 23:57

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Takk fyrir hlý orð í minn garð Jón. Ég er ekki viss um að ég sé langt frá þér í skoðunum nema þá kannski ef þú ert hlynntur aðild og inngöngu í Evrópusambandið. Margir hafa sagt að ég hefði átt að ganga í Sjálfstæðisflokkinn og þar á meðal margir málsmetandi menn þar. Sjálf er ég þannig að ég hef gaman að því að ræða málin frá mörgum hliðum og líður best með fólki sem getur rætt sína skoðun án þess að ætlast til að allir séu sömu skoðunar. Þannig er það í vinnunni hjá mér og stundum fleiri skoðanir en fólk við matarborðið því menn skipta nú stundum um skoðun. :) kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 29.7.2010 kl. 20:48

5 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Nei Kolbrún, ég vil alls ekki sjá ESB, er ekki til umræðu um þá vitleysu, enda sé ég ekki hvað við höfum að gera þangað inn.

En ég var að vísa til þess að þú varst í framboði fyrir Frjálslynda flokkinn á sínum tíma og mér fannst ansi gott að heyra í þér þá, þú varst ansi fersk og jákvæð, það vantar í pólitíkina.

Annars held ég að bilið milli sjálfstæðismanna og frjálslynda sé ekki stórt á heildina litið. Mér finnst nú stefnan svipuð að mörgu leiti, kannski einhverjar áheyrslubreytingar.

Ég veit svo sem ekkert um það, hvort þú sért enn í Frjálslynda flokknum, það hafa margir horfið úr honum skilst mér.

En svei mér þá, svona flott og fersk kona á nú hvergi annars staðar heima heldur en í Sjálfstæðisflokknum. Ég yrði alla vega glaður að sjá þig þar, við höfum alltaf þörf fyrir gott fólk. 

Og mundu, að flokkurinn rúmar allar skoðanir, svo framarlega sem þær eru ekki í anda vinstri flokkanna. 

Enn og aftur með Evrópusambandið, veistu að ég hef talsverðar efasemdir um ágæti EES samningsins, ég er nú ekki meiri stuðningsmaður aðildar en það.

Jón Ríkharðsson, 30.7.2010 kl. 01:38

6 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll aftur. Já það hafa margir horfið frá Frjálslynda flokknum það er rétt en ég er svo hundtrygg að ég er ekki farin ennþá. Hef reyndar lítið af honum frétt undanfarið (þ.e. flokknum) og kannski er hann bara dáinn. Mér finnst reyndar EES alveg nóg og út af þeim samningi erum við líklega í þessari klemmu þ,e, frjálst flæði fjármagns og allt það. Það er hinsvegar spurning hvar við værum ef við hefðum ekki haft þann samning og ekki vil ég gömlu forneskjuna. Við verðum að læra að höndla frelsið. En eins og við vitum þá þarf sterk bein til að þola góða tíma. við sem þjóð klikkuðum þar ekki satt. Kveðja Kolla. 

Kolbrún Stefánsdóttir, 30.7.2010 kl. 16:02

7 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Ég er sammála þér með frelsið. Hrunið kom ekkert við mig persónulega þótt ég hafi tapað nokkrum milljónum á því. Peningar koma alltaf aftur og maður þroskast á að gera mistök.

Ég er alveg pollrólegur ef mér tekst að öngla saman fyrir mat handa fjölskyldu minni, það hefur alltaf gengið upp. Ég get líka borgað það sem mér ber.

Við höfum gott af mótlæti, það herðir okkur bara. Það eru nokkrir hér á landi sem nenna ekki að hafa fyrir lífinu, þeir vilja láta ESB bjarga öllu.

Íslenska þjóðin er svo sterk að hún þolir allra handa náttúruhamfarir, vinstri stjórn, eldgos osfrv. Við höfum sigrast á þessu öllu áður og munum gera það áfram. 

Mér er nú hlýtt að vissu leiti til Frjálslynda flokksins, ég vona að hann hressist. Það þarf fleiri flokka en Sjálfstæðisflokkinn, ég vil helst losna við þessa tvo sem eru í ríkisstjórn. Ég er heldur ekkert á móti Framsóknarflokknum. Enda þarf manni ekki að vera illa við flokka þótt maður tilheyri þeim ekki.

Jón Ríkharðsson, 31.7.2010 kl. 01:34

8 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll. Ég get sagt það sama að hrunið kom ekki við mig öðruvísi en þannig að ég sé að mörgum líður illa sem hafa séð lánin blása út og eðlilega hafa menn áhyggjur.

Flestir eiga nú nóg í sig og á held ég þrátt fyrir barlóm ýmiskonar. Frjálslyndi flokkurinn átti svo sannarlega erindi í þjóðmálaumræðuna. Það hefði verið betra fyrir marga í dag ef hlustað hefði verið á viðvaranir hans og umræðan um erlent vinnuafl, k, verðtryggingarvitleysuna og margt fleira er nú á hvers manns vörum.

Ég hef heldur ekkert á móti Sjálfstæðisflokknum, það voru bara svo margir spilltir einstaklingar þar að stýra valdaklíkunum. Held að það hafi nú aðeins verið grisjað þar en þó stefnir í upptöku á þeirri vitleysu í haust hef ég heyrt :) Kveðja til þín Kolla  

Kolbrún Stefánsdóttir, 31.7.2010 kl. 15:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband