Leita í fréttum mbl.is

Hjólreiðar í Köben

Danmörk2010 0441Nú hef ég tekið mér gott frí og dvalið í Danmörk í eina viku. Ég átti þess kost að búa á einkaheimili þar sem fólk tók mér opnum örmum. Hjón á besta aldri og stálpaðir strákar þeirra 16 og 20 ára voru frábær. Mér fannst þau afar dugleg og hress, fróð og fjölhæf. Öll töluðu þau góða ensku og auðvitað sína dönsku, enda dönsk.

Húsmóðirin er í hestunum og á íslenskan hest. Hún dýrkar íslenska hesta, sem og Ísland. Hún á líka hjól og það fékk ég lánað mér til mikillar ánægju og verð að segja að það er unun alveg að hjóla í Danmörk. Hún átti hinsvegar ekki hjálm og því var ég hjálmlaus.

Að sumu leyti eru Danir til fyrirmyndar. Þeir hjóla mjög mikið og fara langar leiðir á hjólum. Hjólabrautir eru meðfram götum í öllum helstu borgum og svo eiga hjólreiðamenn yfirleitt réttinn. Það vakti því furðu mína hversu fáir voru með hjálm á höfði og etv hafa sumir verið "ligeglad" á hjólinu sínu.

Það mætti segja mér að með sífellt hækkandi bensínverði fari að fjölga þeim sem hjóla hér heima þó varla sé hægt að segja að það sé auðvelt. Bæði er hjólastígum ábótavant og svo veðurfarið oft erfitt. Ég held þó að þetta snúist um að byrja bara og klæða sig eftir veðri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Gott að þú komst "ligeglad" og hjálmlaus í gegnum þetta. Ég lofa að segja engum frá!

Björn Birgisson, 4.8.2010 kl. 23:06

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

haha  já þetta er mátulegt á mig... betra að vera ekki að gaspra um þetta.

Annars vil ég helst að allir prófi að hjóla þarna úti. Allt svo rennslétt og lauflétt að hjóla. Kveðja til þín skemmtilegi maður, Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 5.8.2010 kl. 15:47

3 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Þegar hjólreiðamenningin og aðstæðurnar til hjólreiðar eru til fyrirmyndar þá þarf ekki hjálm. Í þeim löndum sem hjólreiðamenn eru viðurkenndir þátttakendur í umferðinni eru einungis börn og keppnisfólkið með hjálm. Hinir þurfa þess varla.

Úrsúla Jünemann, 5.8.2010 kl. 17:46

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl Úrsúla. Það er væntanlega skýringin á þessu og ég varð vör við það þegar ég ferðaðist í bíl að Danir eru mjög vakandi fyrir því að beygja ekki út til hægri nema tékka á hjólafólki sem á þá réttinn áfram. Það er einkar athyglisvert og sýnir hvað þetta er orðinn ríkjandi þáttur í þeirra umferðamenningu. Hér er viðhorfið frekar að hjólandi fólk séu sérvitringar eða heilsufrík og mótorhjólafólk glæpamenn.

Sjálf er ég svo áhættufælin að ég vil endilega hafa hjálm hvort sem það er á reið-eða mótorhjóli . Kveðja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 5.8.2010 kl. 20:30

5 Smámynd: Björn Birgisson

Einn besti vinur minn heitir Hjálmar. Ég kalla hann alltaf Hjálminn. Ef ég hjóla og hef Hjálminn klofvega á bögglaberanum, er ég þá löglegur? Kannski ligeglad stundum, eins og sumir voru í Danaveldi?

Björn Birgisson, 5.8.2010 kl. 22:43

6 identicon

Ég er nú ekki sammála um að hjálmanotkun sé óþörf í löndum þar sem hjólreiðamenn eru viðurkenndir þátttakendur í umferðinni og eins og sést á þessari heimasíðu DCF http://www.dcf.dk/composite-533.htm(Samtök hjólreiðamanna í Danmörku) mælast þeir eindregið til þess að allir noti hjálma. Td. verða að meðaltali 8-10 dauðaslys á hjólreiðamönnum vegna hægri beygju bifreiða og flest þeirra hefði mátt koma í veg fyrir með hjálmanotkun. Ég er búinn að hjóla mikið í Danmörku og verð að viðurkenna að ég nota ekki alltaf hjálm þar , en ávallt hér heima á Íslandi. En aðalatriðið er að fara gætilega og taka ekki þá áhættu að treysta á að ökumenn bifreiða virða rétt þann sem hjólreiðamenn eiga samkvæmt umferðalögum.Það er yndislegt að hjóla og vistvænt og hvet ég alla sem geta að njóta þess (með hjálm á höfði en ekki með hann klofvega á bögglaberanum)  Bestu hjólkveðjur, Atli

Atli (IP-tala skráð) 6.8.2010 kl. 09:10

7 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl öll. Mér datt í hug gömul auglýsing þegar ég las kommentið hans Atla. " Í kolli mínum geymi ég gullið " og var það Sparibaukur frá Útvegsbankanum minnir mig.

Öll viljum við halda hausnum í lagi, nema kannski Björn.... hans gull er kannski meira annars staðar hahaha. kv.Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 7.8.2010 kl. 15:11

8 Smámynd: Björn Birgisson

Kolla, rétt hjá þér, hausinn á mér er galtómur og hugsunin fer öll fram á öðrum stað og þar eru allar minningar líka geymdar. Ég man bara ekki hvar sá staður er!

Björn Birgisson, 7.8.2010 kl. 16:36

9 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Æ Björn ég varð .... þú bauðst upp á þetta. hahaha þú ert nú meiri rokkarinn :) kveðja til þín skemmtilegi maður..Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 7.8.2010 kl. 18:26

10 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Þú hefur eflaust ekki fengið leið á að puða á hjólinu í brekkunum í Danmörku! Sammála Atla um hjálmana. Hér í Frakklandi eru þeir ekki skylda en 99,99% frístundahjólara nota þá öllum stundum. Enda veitir ekki af að vernda vitið . . .


Ágúst Ásgeirsson, 7.8.2010 kl. 20:15

11 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Já það er ekkert annað. Þetta er athyglivert Ágúst. Ekki lögbundið að nota hjálm. Ekki nauðsynlegt að hafa vit fyrir fólki.. hummm.

Mér finnst að menn eigi að nota þau öryggistæki sem til eru og kosta ekki mikið eins og hjálmar. ( höfuðhjálmar n.b. )

Það er yndislegt að hjóla í góðu veðri og hita þegar ekki eru brekkur að þvælast fyrir manni . Verð bara að segja það . Kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 8.8.2010 kl. 21:07

12 Smámynd: Björn Birgisson

"Mér finnst að menn eigi að nota þau öryggistæki sem til eru og kosta ekki mikið eins og hjálmar."

Þá gerist nú þörfin og tími til að hjóla minni.  

Björn Birgisson, 8.8.2010 kl. 22:08

13 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl. Ég hef verið að taka meira eftir hjólreiðamönnum í umferðinni, kannski út af þessum pistli mínum, en í dag sá ég unga móðir hjálmlausa reiða ca 2 ára dreng með hjálm.

Á leiðinni heim úr vinnu munaði litlu að ég keyrði á unga hjólandi konu á núllinu við Gjána í Kópavogi. Hún renndi sér út á götuna hjálmlaus með síða gula fléttu niður á rass og leit hvorki til hægri né vinstri. Ég góndi á eftir henni og sá að hún hélt á síma og var að tala í hann í sömu andrá og hún skellti sér fyrir bílinn.

Eins gott að ég er afspyrnugóður bílstjóri. 

kveðja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 9.8.2010 kl. 20:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 121927

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband