Bloggfærslur mánaðarins, maí 2011
30.5.2011 | 21:09
Gamalt fólk
Ég hef hugsað mikið um það síðustu mánuði hvað gerist í huga gamals fólks sem er með heilabilun og getur ekki tjáð sig. Hvar er hugsunin? Veit viðkomandi hvar og hver hann er þó hann sé nánast eins og ungabarn eða smábarn í hegðun.
Móðir mín fékk heilabilun sem ágerðist smátt og smátt með árunum en svo hrakaði henni nokkuð hratt síðustu tvo mánuðina.
Þegar hún kom hingað suður, fyrir einu og hálfu ári, þá gerði hún greinamun á okkur, fólkinu sínu, og svo hjúkrunar-og starfsfólki hjúkrunarheimilisins. Hún varð himinlifandi í hvert sinn sem ég kom í heimsókn og lyftist úr stólnum með hlátri og gleði þó hún væri kát alla jafna.
Ég varð vör við að hún var aldrei alveg viss hver ég var. Hún hélt oftast, af því ég var með glens við hana, að ég væri kannski eldri systir hennar sem er löngu látin.
" Nei þú fyrst" sagði hún við mig þegar ég var að ota að henni snafsi af sérrý. Við þrættum smástund en svo varð ég að gefa mig. Hún tók svo sinn sopa. Það var auðfundið að hún ætlaði ekki að láta skamma sig eina ef upp kæmist. Hún hélt örugglega að við værum unglingar heima á stórtemplaraheimilinu hennar í Hafnarfirði. Ég otaði þessu sulli ekki oftar að henni.
Þegar ég kom með barnabörnin, tvo hlaupandi káta stráka tveggja og þriggja ára, varð hún himinlifandi og vissi hún að þeir tilheyrðu henni. Reyndar lifnaði yfir öllum hópnum í borðsalnum þegar þeir komu, og stundum hugsaði ég með mér að sumir hefðu ekki brosað frá því þeir voru í heimsókn síðast.
Hún naut þess greinilega þegar þeir voru með henni. Þeir skiptust á að standa aftan á hjólastólnum og "keyra" en hinn gekk með og leiddi hana eftir göngunum á Sunnuhlíð. Ekki er ég frá því að hún hafi hreykt sér í huganaum þegar hún var með hópnum sínum og fékk alla athygli á staðnum. Hún hafði afar gaman af að láta taka af sér myndir og skoða þær strax á skjánum. Hún var stundum á því að koma bara með "heim" en sættist alltaf á að hinkra þar til við kæmum næst.
Það er ekki gott að segja hvað fer um hugann hjá gömlu fólki en stundum má lesa í svipbrigði og aðra hegðun. En það er alveg víst að fólk sem er komið í þá stöðu að geta hvorki tjáð sig, gert kröfur um þjónustu, né lýst skoðun sinni er á viðkvæmu stigi í tilverunni. Þá eru heimsóknir aðstandenda það eina sem gefur einhverja gleði í tilveruna.
Móðir mín lést þann 30.apríl 2011 á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Þá var ég í Flórída en bróðir minn og systrabörn voru hjá henni þegar hún skildi við. Það var friðsæl stund og tók fljótt af.
20.5.2011 | 21:30
Aftökur og annað skemmtilegt
Nýlega kom ég heim frá Flórída sem er sannkallað gósenland golfarans. Ég dvaldi ásamt vinum í flottu húsi við golfvöll sem heitir Roosevelt. Teigur á fjórðu braut var beint fyrir framan stofugluggann c.a. 10 metra frá lóðarmörkum. Um 100 metrum frá var annar níu holu völlur sem heitir Truman. Báðir ágætir. Ótal vellir eru þarna með skemmtilegum brautum og í fallegu umhverfi.
Þeir láta mikið með forseta sína kanarnir og ekkert er svo sem út á það að setja. Þeir eru þó eflaust misjafnlega hrifnir af Obama, þar sem hann er ekki alveg að enduróma vilja Ísraelsmanna gagnvart Palestínuríki í umræðunni núna. Sjálfri finnst mér þetta bara gott hjá honum. Það sýnir ákveðið sjálfstæði og hugrekki að rísa upp gegn ríkjandi viðhorfum og heilaþvotti eins og mér finnst svo ráðandi þarna vestur frá.
Mér fannst hinsvegar ekki flott hjá forsetanum að týna líkinu af Osama bin Laden í hafið og hafa ekkert í höndunum um að hafa drepið hann og hans konu. Þetta mikla afrek hersins var lofað margsinnis á dag á hverri einustu sjónvarpsstöð sem náðist í okkar húsi. Ekki bara einn dag heldur marga daga í röð. Ég var bara um það bil að hrífast með.
Ég var í tvær vikur í The Villages rétt utan við Orlando og kunni ágætlega við mig. Hitinn hátt í og yfir 30 ° og sól alla daga sem var heldur mikið. Þetta er auðvitað alger draumur fyrir þá sem eru með gigt og ýmis öldrunarvandamál enda fannst mér ég vera c.a. 10 árum of snemma á ferðinni en hugsa mér gott til glóðarinnar síðar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Október 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Apríl 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Bloggvinir
- solir
- gmaria
- fannarh
- thoragud
- meistarinn
- sigurjonth
- skulablogg
- gudruntora
- svavaralfred
- rheidur
- gudrunmagnea
- helgigunnars
- georg
- marinogn
- kallimatt
- zumann
- gudbjornj
- eirikurgudmundsson
- gretar-petur
- johanneshlatur
- franseis
- altice
- palmig
- lydurarnason
- omarbjarki
- gretarogoskar
- tilveran-i-esb
- paul
- ksh
- thjodarsalin
- framtid
- kop
- jon-o-vilhjalmsson
- sunna2
- neytendatalsmadur
- duna54
- jonsnae
- sjonsson
- duddi9
- olofdebont
- magnusjonasson
- helgatho
- fullvalda
- kokkurinn
- olafiaherborg
- nimbus
- jakobk
- stebbifr
- ranka
- heimssyn
- rs1600
- maggij
- bjarnihardar
- bookiceland
- frjalslyndir
- gauisig
- zeriaph
- gthg
- gustaf
- hannesgi
- diva73
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- prakkarinn
- ragnar73
- ziggi
- visur7
- tryggvigislason
- ursula
- valdimarjohannesson
- postdoc
- icekeiko