Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008
22.2.2008 | 21:10
Kringlan tók vel á móti okkur.
Birti hér grein úr jólablaði Sjálfsbjargar lsf.
Ágæti lesandi Klifurs. Ég hef nú starfað í rúmt ár sem framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar landssambands fatlaðra og hef lært mikið og notið þess að kynnast nýjum verkefnum og nýju fólki. Það er óhætt að segja að verkefnin hafa verið margvísleg.. Ég hef kynnst norrænu samstarfi á vegum Nordisk Handicap Forbund en í því bandalagi fatlaðra á Norðurlöndum er venja að hittast tvisvar á ári og ræða sín mál og standa fyrir málþingum. Sjálfsbjörg lsf. var gestgjafinn í haust og komu hingað 32 erlendir gestir. Þá hef ég verið í Evrópuverkefni um fræðslumál fyrir ófaglært fólk sem heitir Love language sem unnið er í samvinnu við Leonardo da Vinci stofnunina á vegum Evrópusambandsins. Einnig hef ég fengið að taka þátt í stefnumótun fyrir Brynju hússjóð Öryrkjabandalagsins og vera fundarritari á aðalfundum Öryrkjabandalagsins og margt fleira skemmtilegt. Eitt verkefni er þó sem stendur upp úr en það er 3.des verkefnið sem fór í gang í október s.l.undir forystu varaformanns Sjálfsbjargar lsf, Kolbrúnar Daggar Kristjánsdóttur og Andra Valgeirssonar formanns Ný-ungar, til að vekja athygli á alþjóðadegi fatlaðra. Verkefnið kallaðist Já ég vinn hérna og átti að vekja athygli á þema Sameinuðu þjóðanna á þessum degi en það var Atvinna við hæfi fyrir einstaklinga með fötlun.Verkefnið var keyrt á helginni 24. og 25. nóvember. Ég fékk það verkefni að að semja við verslunareigendur í Kringlunni um að taka þátt í þessum leik með okkur. Það var ekki erfitt og alveg ótrúlegt hvað verslunarmenn tóku okkur vel og voru jákvæðir í garð verkefnisins þrátt fyrir miklar annir. Níu stórfyrirtæki tóku þátt og fjölmargir félagsmenn Sjálfsbjargar lsf. Verkefnið byggðist á því að fatlaður einstaklingur lét eins og hann væri að vinna í viðkomandi verslun og tók á móti viðskiptavinum sem slíkur. Einnig var settur upp sölubás á neðri hæðinni í Kringlunni til að selja ýmsan varning en einkum til að hitta fólk og vera sýnileg. Þá var í gangi getraun sem vakti mikla athygli. Fleiri verslunareigendur hafa sýnt okkur velvilja t.d. Nettó sem styrkti okkur mjög myndarlega og tók að sér að dreifa upplýsingum um Sjálfsbjörg lsf í 36 verslunum sínum víðsvegar um landið 3 des. Krónan í Mosfellsbæ og á Granda hafa haft í forgangi aðgengismál fyrir alla og tekið fullt tillit til fatlaðra við byggingu glæsilegra húsakynna sinna.Þessar verslanir hlutu aðgengisverðlaun Sjálfsbjargar lsf að þessu sinni og voru þau afhent 3. des. Ég vil hvetja alla og sérstaklega hreyfihamlaðra til að heimsækja þessar verslanir. Að lokum vil ég nota þetta tækifæri og lýsa ánægju minni með Íslenska verslunarmenn og þakka kærlega fyrir okkur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.3.2008 kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.2.2008 | 22:01
Hanna Birna mætt til leiks
Hanna Birna Jóhannsdóttir varaþingmaður hefur nú sest á þing í fjarveru Grétars Mar Jónssonar. Hanna Birna er stuðningsfulltrúi og búsett í Vestmannaeyjum. Hún er önnur konan sem kemur inn á þing á þessu kjörtímabili fyrir Frjálslynda flokkinn og vonandi fá fleiri konur tækifæri til að spreyta sig í þessu starfi og máta sig við sali Alþingis. Ég óska henni góðs gengis og vona að henni eigi eftir að líða vel á þessum vettvangi, en það var á henni að heyra í gær að henni hafi verið vel tekið af þingmönnum. Ég er afar stolt af þessari glæsilegu konu og finnst hún flottur fulltrúi okkar frjálslyndra bæði innan og utan þingheims.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.2.2008 kl. 18:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
4.2.2008 | 20:15
Ég sem elska sjómenn : )
Sæll Hjörtur. Ég var með komment inn á síðuna þína um daginn og sé að menn hafa tekið vel undir með okkur og komið með sínar skoðanir. Ég hinsvegar frétti ekki af þessu fyrr en núna áðan og ætlaði auðvitað að svara en þá er allt lokað hjá þér og því skelli ég þessu bara á mína síðu. Mig langar til að það komi fram að ég lít ekki niður á sjómenn og er ekki snobbuð. En allt ill annað má svo sem um mig segja. Ég held að fáir standi eins nærri sjómannastéttinni og ég fyrir utan þá sem eru sjómenn og hreinlega með saltið í blóðinu. Ég naut þess heiðurs að flytja hátíðarræðu á sjómannadegi á Hellissandi þegar ég var búsett þar. Ég var gift trillusjómanni í 26 ár sem er harðduglegur, fiskinn og af miklu sjómannakyni frá Grenivík. Ég þekki líka "Hlöllana" frá Grenivík ágætlega og veit að það eru miklir aflamenn og góðir sjómenn. Allflesta útgerðarmenn og sjómenn á Hellissandi og Ólafsvík kannast ég vel við og þó víðar væri leitað. En ég veit líka hvernig það var hjá karlinum mínum að fá vinnu þegar búið var að sverfa svo að trillukörlum að þeir máttu róa örfáa daga á ári og því ekkert að gera nema hætta til sjós. Ég veit um nokkra vel menntaða sjómenn sem vinna t.d. við netasölu eða á bensínstöðvum og þá er það allt annað kaup en þeir voru vanir og óttalegt hangs, " varla vinna" segja þeir stundum. Mjög margir sjómenn sem ég þekki byrjuðu ungir á sjónum og hafa átt erfitt með að breyta til og fá störf við hæfi í landi. Bæði vegna þess að þar eru launin allt önnur en þeir hafa haft hjá góðum og fengsælum skipstjórum og útgerðum og eins er ekki allsstaðar atvinna í boði. Hvað er t.d. fyrir sjómenn að gera í landi á Raufarhöfn þar sem ég er uppalin, nánast á bryggjusporðinum frá unga aldri. Hvað er fyrir þá að gera í Ólafsvík og Rifi þar sem ég hef lifað og hrærst meðal sjómanna í 7 ár. Þegar ég var útibússtjóri hjá Landsbankanum bæði fyrir vestan í 7 ár og eins hér í Reykjavík í 10 ár þá komu oft til mín sjómenn sem sögðu þetta sjálfir og meira að segja skipstjórar."Ég hef alltaf verið á sjónum og kann ekkert annað og get ekki fengið vinnu í landi".Mér sýnist að menn hafi tekið orð mín þannig að ég haldi þessa menn duglausa og þess vegna ekki getað neitt annað en það er öðru nær enda vita það allir að vinna til sjós er ekki fyrir hvern sem er og varla kvenmannsverk. Ég held að ég gæti ekki starfað við það þó ég hafi verið að grínast með það sem háð í blogginu. Ég er ekki hissa þó sumir komi ekki fram undir nafni í kommentunum og svara þeim aðilum ekki öðruvísi en þannig að flestir sjómenn sem ég hef umgengis hafa góðan húmor bæði fyrir sjálfum sér og öðrum en það hefur "Sigurður " greinilega ekki. Það er vitað að ungir menn gera sér grein fyrir því þegar þeir huga að námi að það er betra að fara í vélstjórann en stýrimanninn upp á atvinnumöguleika þegar þeir vilja koma í land. Að lokum er víst réttast að taka það fram að ég er á eigin vegum á þessu bloggi og tel það mín mannréttindi að hafa skoðanir , byggðar á eigin reynslu, þó þeir sem annars tilheyra Frjálslynda flokknum skammist sín kannski fyrir þær og þó ég sé mjög jafnréttissinnuð þá er ég ekki femínisti. Svo legg ég til að þú lengir hjá þér athugasemdatímann Hjörtur því það eru ekki allir alltaf á vaktinni. En það var gaman af þessari uppákomu þó vitlaus sé :) . Kveðja Kolla.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Október 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Apríl 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Bloggvinir
- solir
- gmaria
- fannarh
- thoragud
- meistarinn
- sigurjonth
- skulablogg
- gudruntora
- svavaralfred
- rheidur
- gudrunmagnea
- helgigunnars
- georg
- marinogn
- kallimatt
- zumann
- gudbjornj
- eirikurgudmundsson
- gretar-petur
- johanneshlatur
- franseis
- altice
- palmig
- lydurarnason
- omarbjarki
- gretarogoskar
- tilveran-i-esb
- paul
- ksh
- thjodarsalin
- framtid
- kop
- jon-o-vilhjalmsson
- sunna2
- neytendatalsmadur
- duna54
- jonsnae
- sjonsson
- duddi9
- olofdebont
- magnusjonasson
- helgatho
- fullvalda
- kokkurinn
- olafiaherborg
- nimbus
- jakobk
- stebbifr
- ranka
- heimssyn
- rs1600
- maggij
- bjarnihardar
- bookiceland
- frjalslyndir
- gauisig
- zeriaph
- gthg
- gustaf
- hannesgi
- diva73
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- prakkarinn
- ragnar73
- ziggi
- visur7
- tryggvigislason
- ursula
- valdimarjohannesson
- postdoc
- icekeiko