Leita í fréttum mbl.is

Ævintýri Dolomitanna

Italía -skíðiItalía -kennsla

Ég brá mér með annarri dóttur minni og hennar fjölskyldu á skíði til Ítalíu á dögunum.

Þetta var alveg frábært og  ný reynsla fyrir mig.

Ég kann ekkert á skíði og því var ákveðið að ég myndi bara læra það á nokkrum dögum. Farið var í það á fysta degi að leigja skíði ásamt tilheyrandi og koma sér fyrir á hótelherberginu. Það gekk mjög vel og með tilhlökkun fór ég í háttinn ásamt tveimur dóttursonum en við deildum herbergi. Daginn eftir var farið af stað og ég komst að því að það er alveg hryllilegt að ganga á skíðaklossum og var því  bara fegin þegar ég komst í að setja skíðin undir og merkilegt nokk  ég gat alveg staðið á þeim.

Ekki fann ég kennarana fyrsta daginn þannig að þá var bara að æfa sig og því fór ég með fólkinu upp í brekkur til að reyna mig. Eftir ferðalag í kláf sem tók 100 manns og fór lengst upp í fjallið var lagt af stað niður og fór þá að fara um mig. Snarbratt var fram af brúninni og eitthvað um að fólk kútveltist þar enda mun færið hafa verið alveg ómögulegt í rauninni þó ég vissi svo sem ekki mikið um það. Það þarf ekki að orðlengja það að þessi niðurferð var afar erfið og til þess fallin að ég leitaði með opnum augum að kennara næsta morgun. Ég var síðan i kennslu það sem eftir var og fannst mjög gaman bæði að kynnast fólkinu sem var með mér í hóp og að bæta stöðugt  skíðafærnina. Toppurinn var svo að stíma niður á fullri ferð og enda við lyftuganginn og fara beint upp aftur. Hótelið okkar, Hótel Armin, var fínt og bæði góður matur og þjónusta í fyrsta flokki. Einnig var þar  gufa og spa sem var vel nýtt eftir að brekkurnar tæmdust á daginn, um 5 leytið. Ítalir voru alveg frábærir eins og alltaf  :) :) :) 

Eina sem var til ama voru fjandans þjóðverjarnir sem heimtuðu að við værum  nakin í gufunni, sem við harðneituðum, en þeir eru nú allsstaðar til leiðinda bæði frekir og yfirgangssamir. Það þekkja þeir sem hafa verið í sólarferðum og vaknað á hverjum morgni við að þjóðverjar eru búnir að taka frá allan garðinn með sínum handklæðum. Ég er samt búin að fá nóg af snjó í bili og bíð eftir að það hláni og taki upp hér heima. J

Fer örugglega aftur í skíðaferð J  Italía -spa 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Ja hérna, ég kalla þig góða, að fara þarna upp he he.

Sjálf hef ég ekki enn stigið á skíði.

Einu sinni er allt fyrst.

ps. hitti " litla " prinsinn og dótturina í búð í gær, sá er orðinn stór.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 26.1.2008 kl. 00:34

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Já GMaría hann er orðinn stór og sætur og ekki nóg með það að hann verður stóri bróðir í lok maí, þá tæplega eins og hálfs árs :) jú ég var andsk. ánægð með mig og kokhraust. Í einni lyftuferðinni varð til þessi vísa.

Stími niður stærðar brekkur / stefni beint á tindinn aftur/ Í mér ekki nokkur skrekkur / ekkert nema þor og kraftur. hahahha

Þú kemur bara með næst kelli mín og ekkert múður með það. :)

Kolbrún Stefánsdóttir, 26.1.2008 kl. 10:46

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

He he, já það er nú ekki ónýtt að yrkja í sig kjarkinn Kolla.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 27.1.2008 kl. 00:37

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl GMaría. Þú færir nú létt með það líka ekki satt?

Kolbrún Stefánsdóttir, 27.1.2008 kl. 01:13

5 Smámynd: Halla Rut

Kallinn er alltaf að reyna að fá mig í þetta en ég er bara ekki vetrar kona. Frekar vill ég fara í sól.

Halla Rut , 29.1.2008 kl. 23:54

6 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl Halla. Um að gera að skella sér á skíði. Þetta er mjög skemmtilegt og þú verður bara vetrarkona við það spái ég.. :)

Kolbrún Stefánsdóttir, 31.1.2008 kl. 14:56

7 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Kolla!það verður beint á tindinn eftir rúm 3 ár og nú um stundir þor og kraftur.Sértu ávallt kært kvödd

Ólafur Ragnarsson, 2.2.2008 kl. 00:50

8 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

hahah þú ert nú sætur í þér Ólafur það verð ég að segja. bestu kveðjur til þín Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 2.2.2008 kl. 09:12

9 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Það er aldeilis kjarkur sem þú sýnir sbr. skíðareynsla þín hér að ofan. Tek undir með Ólafi. Bíð spennt eftir því að þessi 3 ár líði

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 4.2.2008 kl. 19:07

10 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Takk fyrir það Guðrún. Það er rétt þau verða liðin áður en við er litið . Vona að þú sért hress og kát. Bestu kveðjur til þín Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 4.2.2008 kl. 20:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband