Leita í fréttum mbl.is

90 % skattur

Lítill drengur óskaði sér mjög innilega að eignast  5000 krónur, og bað til Guðs í margar vikur, án þess að nokkuð gerðist.



Að lokum ákvað hann að skrifa bréf til Guðs til að biðja um peninginn. Pósturinn fékk bréfið, sem var stílað á „Guð á Íslandi“, og ákvað að áframsenda bréfið á Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra.



Jóhönnu fannst bréfið virkilega skemmtilegt og áframsendi það á Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra og bað hann að senda drengnum peninginn.



Steingrími þótti 5000 krónur alltof há upphæð fyrir lítinn dreng og ákvað að senda honum 500 krónur.



Drengurinn var afskaplega kátur með peninginn og skrifaði þakkarbréf til Guðs:

„Kæri Guð, þúsund þakkir fyrir peningana sem þú sendir. Ég tók samt eftir að þú sendir hann í gegnum ríkisstjórnina – og það gráðuga pakk tók 90% í skatt!“

 

 

 

 

               


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Góður þessi Kolbrún.

Helga Kristjánsdóttir, 2.9.2011 kl. 17:27

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl Helga já mjög  ,,,fékk hann sendan frá Kristínu vinkonu sem er alltaf svo fyndin. Varð að leyfa honum að fara í loftið. Kveðja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 2.9.2011 kl. 18:47

3 identicon

Sæl mín ágæta.

Ég datt hérna inn og fannst þín saga góð. Ég ætla ekki að skýra það frekar hér en ég er með smá leigutekjur sem Steingrímur tekur 95% af mér, segji og skrifa, níutíuogfimmprósent, ekki níu komma fimm. Íbúðin stendur auð og mun verða svo meðan Steingrímur er ofanjarðar, öllum fátækum stúdentum til blessunnar. Ég sagði flokksbundnum komma, Óðinni Jónssyni, frá þessu í gær án skýringa. Hann veit sökina upp á flokksbróðir sinn og hefur ákveðið að hið hlutlausa RUV skýri ekki frá málinu. Ekki heldur mun RUV skýra frá æsingnum sem varð á Alþingi í morgun þegar Mogginn upplýsti að Steingrímur sem er landráðamaður (stórt orð) og að skaðabótakröfurnar sem við verðum að greiða Norðurstáli vegna Steingríms munu taka okkur mörg ár. Strákurinn þinn hér að ofan þurfti að greiða 90% skatt en ég er í a.m.k. 95% skatti. Svona er nú lífið, hvað er annars að frétta af þér?* Ég er kominn í Sagnfræði við HÍ, rosalega gaman. Keppist við að segja öllum frá því svo ég þori ekki að gefast upp. Mikil vinna! Kveðja.

Örn johnson ´43 (IP-tala skráð) 8.9.2011 kl. 22:37

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Örn. Þú segir aldeilis fréttir af skattinum. Ekki skrýtið að þú leigir ekki því alltaf er einhver áhætta í því upp á kostnað og slíkt. Sagnfræði hlýtur að vera skemmtileg en mig langar á heimspekinámskeið og etv einhver sögunámskeið en ekki öll fræðin það er tú möds eins og sagt er stundum.

Ég hef það fínt, leik mér alla daga og er bara lukkuleg með lífið og tilveruna. Gangi þér vel Örn í því sem þú ert að gera kveðja Kolla 

Kolbrún Stefánsdóttir, 12.9.2011 kl. 10:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband