23.3.2010 | 18:43
Pólitísk tækling
Fyrir þremur árum síðan ákvað ég að eyða tíma í pólitík. Ég var laus og liðug og hafði mikinn tíma til að sinna því áhugamáli mínu. Ég átti von á því að það yrði fróðlegt og ég myndi bæði kynnast skemmtilegu fólki og öðlast nýja reynslu. Sumt af þessu gekk eftir en annað ekki. Þetta er reynsla sem flestir ættu að sækjast eftir en varast að vera með of miklar væntingar til fólks. Víst kynntist ég mörgu skemmtilegu fólki á þessum árum en fleiri voru þó hinir. Það sem mér þótti skemmtilegast við þetta var kosningaslagurinn, eins og kosningabaráttan er oft kölluð. Að hitta ókunnugt fólk og kynna frábæra stefnu flokksins var létt verk og skemmtilegt. Það var líka gaman að kynnast öðrum frambjóðendum bæði hjá okkur og eins úr röðum andstæðinganna. Þar er margt afbragðsfólk og verð ég að hæla sérstaklega bæði Sif Friðleifsdóttur og hinni brosmildu Guðfríði Lilju Grétarsdóttur. Illugi Gunnarsson var einu sinni með mér í sjónvarpsþætti og kunni ég afar vel við hann sem og Höskuld Þórhallsson. Úr mínum röðum er einn maður sem ég hef meira álit á í dag en áður en það er Kristinn H. Gunnarsson. Hann er einn af þeim sem stóð alltaf við sína skoðun hvort sem hún passaði við flokkinn hans eða stefnu andstæðinganna. Hann er líklega pólitíkus eins og fólk vill sjá í dag þó hann hafi sætt mikilli gagnrýni fyrir flokkaflakk áður fyrr. Það er sem betur fer að minnka flokkshollustan sem hefur leitt okkur í miklar ógöngur. Það kann ekki góðri lukku að stýra að einhverjir séu eigendur að drengskap manns og hafi hann til ráðstöfunar. Þetta er allavega mín skoðun og henni ræð ég sjálf. Nú hef ég skilað því framlagi sem óskað var af mér af mínum flokki , bæði sem ritari , varaformaður og frambjóðandi til þings í tvennum kosningum. Ég vil þakka fyrir þau tækifæri og þá reynslu sem ég hef fengið. Reynslan á vonandi eftir að nýtast mér síðar, en nú er mál að snúa sér að öðrum áhugamálum. Sumarið er á leiðinni og þá verður nægur tími til að iðka áhugamál númer eitt sem er golf og útivist með barnabörnunum og fleiru skemmtilegu fólki.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:47 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 122263
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Október 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Apríl 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Bloggvinir
- solir
- gmaria
- fannarh
- thoragud
- meistarinn
- sigurjonth
- skulablogg
- gudruntora
- svavaralfred
- rheidur
- gudrunmagnea
- helgigunnars
- georg
- marinogn
- kallimatt
- zumann
- gudbjornj
- eirikurgudmundsson
- gretar-petur
- johanneshlatur
- franseis
- altice
- palmig
- lydurarnason
- omarbjarki
- gretarogoskar
- tilveran-i-esb
- paul
- ksh
- thjodarsalin
- framtid
- kop
- jon-o-vilhjalmsson
- sunna2
- neytendatalsmadur
- duna54
- jonsnae
- sjonsson
- duddi9
- olofdebont
- magnusjonasson
- helgatho
- fullvalda
- kokkurinn
- olafiaherborg
- nimbus
- jakobk
- stebbifr
- ranka
- heimssyn
- rs1600
- maggij
- bjarnihardar
- bookiceland
- frjalslyndir
- gauisig
- zeriaph
- gthg
- gustaf
- hannesgi
- diva73
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- prakkarinn
- ragnar73
- ziggi
- visur7
- tryggvigislason
- ursula
- valdimarjohannesson
- postdoc
- icekeiko
Athugasemdir
Segi það sama, eins gott að sumarið er að koma. Þetta var erfitt tímabil. Barátta við að halda flokknum frá gjaldþroti. Og það tókst! Þér var sérstaklega þakkað fyrir það á landsþinginu, eða þannig. Og svo var Magnúsi Reynir heiðraður líka. Já, og Guðmundur í Tjaldó líka. Þannig að við sjáum að það hefur orðið mjög góð endurnýjun í forystu flokksins. Ég bauð mig ekki fram í neitt og hef aldrei, ég segi það satt Kolbrún, aldrei þerrað eins mörg tár af öxlinni á mér eftir að framboðsfrestur var út runinn og fólk fattaði að ég var ekki í framboði í neitt embætti. Ég trúi því, Kolbrún, að þessi nýja forysta, Sigurjón sem formaður, Grétar Mar sem ritari og Guðjón sem formaður fjármálaráðs muni rífa flokkinn aftur á lappirnar.
Helgi (IP-tala skráð) 23.3.2010 kl. 19:39
Æi, Kristinn H. – hefur málstaður andstæðinga okkar í því máli alltaf verið hans málstaður? ... En gangi þér vel í fríi frá pólitík!
Jón Valur Jensson, 23.3.2010 kl. 20:22
Hi Helgi. Auðvitað vonum við það besta fyrir hönd flokksins og nauðsynlegt að nýtt fólk taki við. Grétar er allavega flinkur að teikna . Guðjón hefur staðið sig vel ekki síst í skuldamálunum þó hann hafi ekki verið einn í því eins og þú segir enda þér margþakkað hahaha. kveðja Kolla
Kolbrún Stefánsdóttir, 23.3.2010 kl. 21:08
Sæll Jón Valur. "Okkar málstaður" er Ísland frjálst og utan ESB. Kristinn hefur verið á annarri skoðun held ég og talað þannig að við ættum að samþykkja Icesave. Ég er alveg á öndverðri skoðun við hann en virði hann fyrir að viðra sína. Takk fyrir góðar óskir en ég er eins og Tigerinn í ótímasettu fríi Bestu kveðjur til þín. Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 23.3.2010 kl. 21:12
Ég þakka fyrir mig, – en ræð ekkert við þessa broskalla.
Jón Valur Jensson, 23.3.2010 kl. 21:18
Þá verður bara brosið þitt að duga . Sumir eru ekki fyrir þessi tjáningartákn en ég nota þá töluvert því ég er stundum misskilin í textanum. kvks.
Kolbrún Stefánsdóttir, 23.3.2010 kl. 21:21
Sumargrín í Leiru um páska !
Snorri Gestsson, 24.3.2010 kl. 18:03
Sæll Snorri og velkominn á síðuna mína. Já er það virkilega komið að því að opna alveg í Leirunni. Þeir eru alltaf snemma á ferðinni eins og Hellan og Höfn. Maður talar nú ekkert um Vestmannaeyjar þá golfparadís. Gangi þér vel. Ég var í golftíma í dag hjá Derrick og það var alveg augljóst að ég á mikið ólært og hlakka mikið til að æfa mig um páskana. kveðja og gangi þér vel í golfinu Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 24.3.2010 kl. 19:34
Ber manni að skilja þetta svo sem þú sért hætt í pólitík? Farir ekki oftar í framboð?
Ágúst Ásgeirsson, 25.3.2010 kl. 18:56
Nei nei nei alls ekki skilja mig þannig Ágúst. Ég er rétt að læra á þessi fræði en stundum finnst mér óþægilegt hvað ég skynja hlutina fyrirfram. Stundum held ég að ég sé pólitískt skyggn hahaha kveðja Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 25.3.2010 kl. 19:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.