9.1.2011 | 21:08
Frægir íþróttamenn eða opinberar persónur
Nú er í gangi málaferli milli Eiðs Smára Guðjohnsen fótboltastjörnu og Dv-útgáfunnar. Eiður er ósáttur við framkomu þessa miðils í sinn garð þegar þeir birta upplýsingar um fjármál hans. Ef eitthvað er að marka Mbl. þá eru þetta stolnar upplýsingar eða leki úr bankakerfinu.
Ekki kemur það á óvart að Eiður með sínar rosalegu tekjur hafi tekið þátt í að fjárfesta í hlutabréfum og fyrirtækjum eins og flestir aðrir. Hann hefur sjálfsagt efni á því enn í dag. Það er líka alfarið hans mál hvað hann gerir við sitt fé. Hafi hann tekið lán til þess þá var það bankanna að taka viðeigandi tryggingar fyrir þeim lánum.
Í mbl. 8. janúar má lesa um málið og m.a. tilvitnanir í lögmenn viðkomandi aðila. Þar tjáir sig lögmaður blaðamanns, og að ég hygg bróðir hans, en hann virðist ekki þekkja sundur epli og appelsínur. Hann kallar Eið t.d. opinbera persónu. Mín skilgreining á því hugtaki er einhver sem er starfandi hjá hinu opinbera t.d. þingmenn, forsetinn og embættismenn og þeir sem ráða málum almennings með einhverjum hætti. Að heimsfrægur fótboltamaður sé opinber persóna af því að almenningur þekkir hann finnst mér fjarri sanni. Hann er bara fræg persóna.
Frægt fólk býr við bæði öfund og illmælgi en nýtur oft aðdáunar og forréttinda. Það gerir það ekki undanskilið lögum á hvorn veginn sem er. Er t.d. landsþekktur stjörnulögfræðingur, sjálfstætt starfandi, opinber persóna. Hvað með aðrar íþróttahetjur okkar t.d. Ólaf Stefánsson, Birgi Leif Hafsteinsson, Alfreð Gíslason og fleiri og fleiri.
Fram kom í umræddri grein að lögmaður Inga Freys blaðamanns telur að Eiður hafi ekki amast við því þegar sagt var frá því í DV þegar honum gekk vel og þá eigi hann ekki að amast við slæmum fréttum. Þetta eru ótrúlega barnaleg rök og málinu óviðkomandi. Þetta mál snýst um lögverndaðan rétt einstaklings og brot á bankaleynd ef ég skil þetta rétt og kemur öðrum málum s.s. fréttum af afrekum í fótbolta eða skorti á þeim ekkert við.
Gunnar Ingi, sem tekur að sér að verja þá feðga Reynir Traustason og Jón Trausta Reynisson, segir að vinni Eiður málið geti margir útrásarvíkingar gert kröfur á fjölmiðla landsins og er helst að skilja að það sé alveg ómögulegt. Eru það rök í málinu og á Eiður að líða fyrir útrásarvíkingana eða æsifréttamennsku sumra blaðamanna? Sjálf myndi ég ekki gráta það þó þessir sneplar færu lóðbeint á hausinn og eigendur þeirra með.
Báðir lögmennirnir bentu þeir á að Eiður hefði ekki sagt að þeir væru að fara með rangt mál. Mér finnst skrýtið ef lögmennirnir átta sig ekki á um hvað málið snýst í réttarsalnum. Það snýst ekki um hvort þetta var rétt eða rangt, það snýst ekki um peninga. Það snýst um það hvort það varðar hag almennings að vita um fjármál Eiðs og hvort þeir höfðu leyfi til að birta fréttirnar sem byggjast á stolnum göngum.
Nú verður fróðlegt að fylgjast með því hvort við búum við réttarríki eða hvort fjölmiðlavaldið og stjörnulögfræðingarnir ráða enn ríkjum á Íslandi.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Október 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Apríl 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Bloggvinir
- solir
- gmaria
- fannarh
- thoragud
- meistarinn
- sigurjonth
- skulablogg
- gudruntora
- svavaralfred
- rheidur
- gudrunmagnea
- helgigunnars
- georg
- marinogn
- kallimatt
- zumann
- gudbjornj
- eirikurgudmundsson
- gretar-petur
- johanneshlatur
- franseis
- altice
- palmig
- lydurarnason
- omarbjarki
- gretarogoskar
- tilveran-i-esb
- paul
- ksh
- thjodarsalin
- framtid
- kop
- jon-o-vilhjalmsson
- sunna2
- neytendatalsmadur
- duna54
- jonsnae
- sjonsson
- duddi9
- olofdebont
- magnusjonasson
- helgatho
- fullvalda
- kokkurinn
- olafiaherborg
- nimbus
- jakobk
- stebbifr
- ranka
- heimssyn
- rs1600
- maggij
- bjarnihardar
- bookiceland
- frjalslyndir
- gauisig
- zeriaph
- gthg
- gustaf
- hannesgi
- diva73
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- prakkarinn
- ragnar73
- ziggi
- visur7
- tryggvigislason
- ursula
- valdimarjohannesson
- postdoc
- icekeiko
Athugasemdir
Kolbrún mín! Ég er þér hjartanlega sammála,ég legg sama skilning í hugtakið ,,opinber persóna,, Skilja má á lögmanni Inga Freys að,blaðamaður eigi inni hjá Eiði,fyrir að hafa fjallað réttilega um gott gengi hans og afrek. Ætli blaðið hafi ekki selst vel út á það. Vona að Eiður vinni málið,það finndist mér réttlátt. Kv.
Helga Kristjánsdóttir, 9.1.2011 kl. 22:47
Sæl Helga og takk fyrir innlitið. Jú það er næsta víst að það var fjallað um Eið til að selja blaðið en ekki af neinni góðmennsku. Eins var þegar hægt var að rakka hann niður, allt í gróðaskyni eigenda. Ég vona sannarlega að hann vinni málið. kveðja til þín
Kolbrún Stefánsdóttir, 10.1.2011 kl. 22:20
Þetta er mjög góður pistill hjá þér og þörf áminning til okkar allra.
Ekki sé ég nokkurn tilgang í því að birta fjármál knattspyrnumanns né nokkurs annars, nema hann gegni þannig stöðu, sé stjórnmálamaður eða eitthvað í þá áttina.
Mig langar ekkert til að vita um peningamál Eiðs eða nokkurs annars, ekki langar mig heldur til að vita um einkalíf fræga fólksins.
Ef ég hef nokkurnvegin mína fjárhagsstöðu á hreinu og er inni í mínum málum, þá er ég nokuð sáttur.
Einnig þarf að muna spekina úr "einræðum Starkaðar"; "aðgát skal höfð í nærveru sálar".
Ég hef nefnilega grun um að fræga fólkið hafi tilfinningar eins og við hin.
Jón Ríkharðsson, 13.1.2011 kl. 10:02
Þakka þér fyrir kommentið Jón. Ég hef það svona á tilfinningunni að menn séu ragir við að tjá sig um þetta. Menn óttast kannski árásir úr herbúðum þeirra sem hafa hag af því að blaðamenn geti gert nánast hvað sem er. Í gær var einn fulltrúi úr þeirri stétt að skrifa í Moggann (með netfang sem vistað er á @mbl.is) eins og Eiður bæri ábyrgð á hruninu og fannst mér það heldur döpur lesning enda endaði hún á því hve það væri mikilvægt fyrir blaðamenn að Eiður tapaði málinu.
Jú víst hafa allir tilfinningar en slúður um fræga íþróttamenn er víst einkar safaríkt söluefni. Aumur er öfundarlaus maður. Það máltæki á víst við Eið sem hefur búið við nánast einelti í fréttaflutningi, eftir því sem heimildir herma, í kjölfar niðursveiflu í sportinu.
Það er lítil manngæska í fréttum umræddra blaða. Kveðja Kolla
Kolbrún Stefánsdóttir, 13.1.2011 kl. 11:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.