29.6.2010 | 00:31
Norðlensk fegurð
Síðastliðinn föstudag fór ég í ferðalag norður í land. Ég fæ alltaf sérstaka tilfinningu í sálina þegar ég keyri yfir Holtavörðuheiðina og við blastir Norðurland. Ég var með rólegra móti og ákvað að sinna því markmiði mínu sem er að ná að spila alla golfvelli landsins. Ég spilaði Vatnahverfisvöll við Blönduós og þá á ég eftir fjóra velli sem ég veit um ,en það er Háagerðisvöllur við Skagaströnd, Geysir við Gullfoss, Hólmavíkurvöllur og völlur sem er nýr við Grenivík. Vatnahverfisvöllur er afar skemmtilegur völlur og ráðlegg ég öllum golfurum að kíkja þarna fyrir hornið og eyða ca. tveimur tímum í að spila hann. Eftir 43 högg og 19 punkta sem er ágætt skor á 9 holur hjá mér var brunað í Reynihlíð. Þar gisti ég í einbýlishúsi upp á 170 m2 sem Landsvirkjun á og leigir út til starfsmanna sinna. Á laugardagsmorgun var ég í letikasti fram að hádegi og hafði bara gott af því eftir mikið annríki að undanförnu.
Eftir hádegið fórum við til Húsavíkur, skoðuðum mannlífið, höfnina, Reðasafnið og Húsavíkurkirkju. Þaðan var stefnt á Katlavöll rétt utan við plássið og spilaðar níu holur. Sá völlur er einstakur að því leyti að ein brautin , sú þriðja, heitir "Kolbrún". Það er par 3 braut en ég fór hana á 7 höggum. Maður er náttúrulega ekki alveg í lagi.
Það er stórkostlega fallegt að horfa yfir völlinn og mér er sagt að yfir berjatímann lengist spilatíminn heilmikið þar sem menn fara að tína upp í sig berin.
Ekki spillir nú fyrir ef maður er í góðum félagskap við þessa yndislegu iðju :)
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Október 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Apríl 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Bloggvinir
- solir
- gmaria
- fannarh
- thoragud
- meistarinn
- sigurjonth
- skulablogg
- gudruntora
- svavaralfred
- rheidur
- gudrunmagnea
- helgigunnars
- georg
- marinogn
- kallimatt
- zumann
- gudbjornj
- eirikurgudmundsson
- gretar-petur
- johanneshlatur
- franseis
- altice
- palmig
- lydurarnason
- omarbjarki
- gretarogoskar
- tilveran-i-esb
- paul
- ksh
- thjodarsalin
- framtid
- kop
- jon-o-vilhjalmsson
- sunna2
- neytendatalsmadur
- duna54
- jonsnae
- sjonsson
- duddi9
- olofdebont
- magnusjonasson
- helgatho
- fullvalda
- kokkurinn
- olafiaherborg
- nimbus
- jakobk
- stebbifr
- ranka
- heimssyn
- rs1600
- maggij
- bjarnihardar
- bookiceland
- frjalslyndir
- gauisig
- zeriaph
- gthg
- gustaf
- hannesgi
- diva73
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- prakkarinn
- ragnar73
- ziggi
- visur7
- tryggvigislason
- ursula
- valdimarjohannesson
- postdoc
- icekeiko
Athugasemdir
hEFURÐU FARIÐ Á VÖLLINN Á nORÐFIRÐI ? SKEMTILEGUR - DÁSAMLEGUR Í GÓÐU VEÐRI !
kV. ERLA
Erla Magna Alexandersdóttir, 30.6.2010 kl. 23:31
Gólfbrautin Kolbrún.... veistu hver er munurinn á brautinni Kolbrúnu og Kolbrúnu....... það eru ekki allir sem spila á Kolbrúnu... en annars, þá eru þrír afskektir gólfvellir í nágrenni við mig sem ég efast um að þú hafir spilað á ennþá,, það eru vellirnir á Þórisstöðum í svínadal, Indriðastöðum í Skorradal og svo er einn upp í Reykholti, að vísu minnir mig að þú hafir spilað þar, gangi þér vel Kolla mín.. kv GHÓ
Gúndi Glans (IP-tala skráð) 1.7.2010 kl. 08:53
Sæl Erla.
Já ég hef spilað á Norðfirði fyrir nokkuð mörgum árum og tók þá Eskifjörð og Egilstaðavöllinn (Ekknavöll ? ) Mér fannst nú óttalegt flatlendi á Norðfirði en svo fór hann allur á kaf í vatn einhverntíma og var endurbyggður að einhverju leyti held ég. Ég hef ekki spilað hann eftir það. Ert þú í golfi? klúbbi? forgjöf? kveðja Kolla
Kolbrún Stefánsdóttir, 1.7.2010 kl. 21:21
Hæ Gúndi glans. Það var svo merkilegt með þessa þriðju braut. Ég átti flott högg í drivinu og fór að gantast með að hún hlyti að vera erfið fyrst hún væri nefnd Kolbrún í staðinn fyrir eitt vipp og eitt til tvö pútt fór ég í bönker og þaðan yfir grínið í bönker hinu megin tvö högg þar og tvö pútt. Alveg ótrúlegt. Ég hlýt því að standa við það að þær eru erfiðar með þessu nafni og ekki gott að spila þær með eða á.
Ég er búin að spila Reykholt og til stendur að spila annan hvorn hinna um helgina. Mig minnir þó að ég hafi spilað Illugastaði allavega en er ekki viss með þessa litlu sveitavelli. Nokkrum sinnum spilað í Húsafelli. En nú er það Mýrin kl 7 í fyrramálið . Þar er það 6, brautin sem er höfuðverkurinn. Besta kveðja Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 1.7.2010 kl. 21:35
Fyrirsögn þessa pislils gæti nú verið lýsing á þér Kolla mín
Atli (IP-tala skráð) 2.7.2010 kl. 14:08
Er kominn golfvöllur á Raufarhöfn?????????????
Jóhann Elíasson, 11.7.2010 kl. 10:06
Sæl mín kæra blogvinkona. Hvenær fær golfvöllurinn í Eyjum að "þola" höggin þín. Sértu ávallt kært kvödd
Ólafur Ragnarsson, 12.7.2010 kl. 18:50
Æ elskulegur. Það er hálfgerð harmsaga með Eyjaferðina mín. Ég var búin að panta far og gistingu um hvítasunnuhelgina og skrá mig í tvö mót. Henni varð ég að aflýsa vegna flensuskratta sem batnaði bara eiginlega um leið og ég var búin að gefast upp og aflýsa. Ég vona þó að ég komist á þessu ári. Ég hef hinsvegar fáa velli spilað við eins ólíkar aðstæður og í Eyjum. Fyrra skiptið í þvílíkri blíðu að ég heillaðist alveg " for livetime" og í annað skipti var svo hvasst að ég hélt að ég fyki fyrir borð ( útaf Eyjunni ) Það þurfti að leggja kerrurnar því ef þær voru á hjólunum ruku þær til hafs. Kærast kvaddur alltaf Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 12.7.2010 kl. 22:11
Sæll Jóhann. Ég er alveg viss um að það er enginn golfvöllur á Raufarhöfn. Næsti völlur þaðan er líklega Gljúfri sem er í Ásbyrgi. Ég fór í fyrra til Raufarhafnar og þurfti til Vopnafjarðar til að spila golf. Sá völlur var ekki langt kominn en lofaði góðu. Spilar þú ? Kveðja Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 12.7.2010 kl. 22:23
Nei Kolla ég spila ekki ástæðan fyrir því er frekar einföld ég hef heyrt að þeir sem fari í þetta sport fái flestir "dellu" og þar sem ég er með "veiðidellu", þá hef ég ekki þorað að fara í golfið því mér finnst alveg nóg að vera með veiðidelluna. Ég spurði nú aðallega um golfvöll á Raufarhöfn því mér skilst að þú eigir ættir að rekja þangað en ég aftur á móti bjó á Þórshöfn í nokkuð mörg ár.
Jóhann Elíasson, 14.7.2010 kl. 21:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.