Leita í fréttum mbl.is

Landsþing Frjálslynda flokksins.

Er sól gyllir hafNú líður að landsþingi Frjálslynda flokksins sem ákveðið var á miðstjórnarfundi, fyrir um mánuði síðan,að halda þrátt fyrir að ár sé í venjulegan þingfundartíma. Þingið verður að Hótel Cabin 19. og 20. mars.

Ekki veit ég hvers vegna en einhvernvegin finnst mér að það sé ekki mikill spenningur fyrir þessu þingi. Ekki hafa verið dramatískar umræður um fundarstað og ekki hefur neinn séð ástæðu til þess að halda það utan Reykjavíkur til að vinna á þinginu verði sem best. Ég vona samt að það verði árangursríkt og farsælt.

Stefna Frjálslynda flokksins, sem hefur alltaf verið mín stefna, hefur aldrei átt betur við en einmitt á þessum tímum, þó segja megi að staðan sé eðlileg afleiðing af því að ekki var hlustað á talsmenn hennar í góðærinu. En hver vill hlusta á raus um timburmenn í miðju fylleríi.

Ég verð að segja að ég er stolt af því að tilheyra þessum hópi sem margir telja sérvitringa og nöldurseggi. Við höfum barist með hjartanu til hagsbóta fyrir þjóðina vitandi það að þjóðin vildi ekki hlusta. Við höfum varað við óhófi og ofneyslu. Við vöruðum einnig við hættunni af framsali kvótans og auknum innflutningi á erlendu vinnuafli. Við höfum viljað sjá fleiri smærri fyrirtæki, einkaframtak í sem víðastri mynd án spillingar, blandað hagkerfi, aðskilnað ríkis og kirkju og sanngjarnt velferðarkerfi.  

Enginn fagnar sendiboða slæmra tíðinda eða áhyggjusuði umhyggjusamrar móður sem varar við hættum og erfiðum afleiðingum af ákveðinni hegðun. En hvenær er mál að linni og hvenær er manns eigin vitjunartími. Það er að brjótast í mér núna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Gangi ykkur vel Kolbrún

Jón Snæbjörnsson, 15.3.2010 kl. 20:45

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Takk fyrir góðar óskir Jón. Ég las það á xf.is að áhugi fólks er eitthvað að aukast og það er gott ef fólk vaknar til vitundar um að það er hægt að hafa áhrif á gang mála. Kveðja til þín Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 16.3.2010 kl. 01:02

3 identicon

Sæl Kolla, og takk fyrir þennan fína pistil. Nú fer að líða að landsþingi og um leið formannsskipta, það er spurning hvernig fer með önnur embætti. En það er einlæg ósk mín að þetta landsþing takist sem allra best og að ekki verði frekari klofningur eða leiðindi innan flokksins. Það er orðið svo lítið til skiptanna. Ég óska þér og flokksmönnum öllum velgengis og vona að Íslendingar fari nú að gefa þessum litla skynsama og góða flokki gaum.

Kveðja Hafsteinn

Hafsteinn Þór Hafsteinsson (IP-tala skráð) 16.3.2010 kl. 10:20

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Takk fyrir hlý orð Hafsteinn. Það er rétt að þar sem fáir eru að fjalla um hlutina verður allt meira áberandi, hvort sem það er ágreiningur eða annað. Formannsskipti eru fyrirséð, rétt er það, og illa trúi ég því að einungis verði eitt framboð að ræða í það vinsæla embætti. Val á milli manna er  nauðsynlegt og ég minni ég á þegar Magnús Þór fór fram gegn Guðjóni, en hann var bæði varaformaður og aðstoðarmaður hans, á síðasta þingi. Hann flutti ræðu sem var svo hrífandi að fólk fagnaði eins og hann hefði unnið kjörið. Auðvitað er miklu skemmtilegra að vinna ef kosið er á milli manna.

Flokkurinn, eða stefnan öllu heldur, er auðvitað allra góðra gjalda verður eins og ég sagði í pistlinum og allir vita.  Bestu kveðjur Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 16.3.2010 kl. 17:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband