Leita í fréttum mbl.is

Leitt með laglegt kot

Raufarhöfn -síldin

 

Kæru bloggfélagar.

Ég má nú þakka fyrir að vera ekki komin á svarta listann hjá ykkur eins léleg og ég hef verið að blogga undanfarið og kvitta hjá ykkur. Ég hef verið mjög önnum kafin og nú er golfið að detta inn á fullum krafti þannig að kvöldin fara í að spila , æfa sig eða horfa á aðra spila í sjónvarpinu svo og fótboltann. Engin nenna fyrir bloggi. Fékk á mig þessa vísu á dögunum og finnst hún eiga vel við mig, kotið mitt og heimahagann .

 

Enginn hefur af því not

eða stundar veiði

Það er leitt með laglegt kot

að láta það standa í eyði.

Megi sumarið verða ykkur ljúft og létt og ég lofa bót og betrunHeart. kveðja Kolla.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Ánægjulegt að sjá lífsmarkið, kíki hér daglega og því var ljúft að sjá ný skrif birtast. Og kórónuð með frábærri mynd, maður man eftir þessari stemmningu. Á þessu plani vann ég fyrir fyrsta kaupinu! 

Ágúst Ásgeirsson, 17.6.2008 kl. 21:35

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Gústi. Alltaf gaman að fá komment frá þér. Lengi býr að fyrstu gerð sagði i auglýsingu um barnamat og það er mikið til í því. Ég hef unnið við ýmislegt um dagana en hef alltaf búið að því að vera "Síldarstúlka" fyrst og síðast. Þaðan er það komið að álita að ég eigi að hafa sama kaup og karlmenn. Þaðan er það komið að afköst og úthald gefi tekjurnar og þaðan er það komið að starfsgleði sé besta meðalið til að komast í gegnum daginn og lífið. Þarna saltaði ég sjálf í fyrsta skiptið ein sem fullgild síldarstúlka  þá tólf ára gömul í heilt sumar. Gleymi þessum tíma aldrei. Ég stal þessari mynd af Raufarhofn.is en Jóndi Stennu hefur verið að setja inn myndir þar. Kíktu þar inn líka. Bestu kveðjur til þín í Frans. Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 17.6.2008 kl. 22:25

3 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Sammála þessu viðhorfi varðandi vinnuna. Engar myndir sé ég á raufarhofn.is þrátt fyrir leit um hann allan. Er slóðin örugglega raufarhofn.is ??? Er kannski um annan vef að ræða?

Ég fór inn á raufarhofn.is á hverjum degi áður en hann var felldur inn í núverandi kerfi Norðurþings. Hann hefur verið heldur dauflegur finnst mér síðan. Þetta er náttúrulega flott framtak hjá Jónda en verst að sjá ekki hvar þær myndir eru!

Bestu kveðjur, Gústi 

Ágúst Ásgeirsson, 18.6.2008 kl. 21:14

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Gústi. Ég verð að komast að þessu. Ég sé að þetta er rétt hjá þér en Jóndi sendi mér myndir sem hann var að setja á einhverja Raufarhafnarsíðu. Kíki á emailið á morgun í vinnunni og set það hér inn. kveðja til þín. Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 18.6.2008 kl. 22:24

5 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Það hefur nú líka verið veður til að æfa golfið Kolbrún. Gangi þér vel í "bloggfríinu".

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 19.6.2008 kl. 09:54

6 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Takk fyrir það Guðrún Þóra en ég er ekki að fara í sérstakt frí enda frá litlu að hverfa. Ég er bara værukær í góða veðrinu. Já það er í góðu lagi með veðrið . Ert þú golfari sjálf? . kveðja til þín Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 19.6.2008 kl. 17:32

7 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Ágúst ef þú kíkir hér inn þá er slóðin sem við ræddum um Raufarhöfn.net. Kíktu endilega þangað. Kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 19.6.2008 kl. 17:34

8 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Takk fyrir, sérdeilis lofsvert framtak hjá Jónda. 

Ágúst Ásgeirsson, 20.6.2008 kl. 21:38

9 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Já hann er bara flottur karlinn kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 21.6.2008 kl. 01:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband