Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Frábært veður í boði.....Símans.

Hvaleyrin 1Í dag spilaði ég golf á Hvaleyrinni í Hafnarfirði. Golfmót í boði Símans hófst kl 11:30 og var tekið vel á móti fólki og boðið upp á frábæra kjúklingasúpu að hætti Brynju sem er vert í Keilisskálanum. Ræst var út kl 13:00 og á öllum teigum samtímis. Það var helst að skilja á starfmönnum Símans að það hafi verið partur af þeirra bænahaldi síðustu 365 daga að veðrið yrði gott í mótinu, eins og í fyrra. Þetta gekk vissulega eftir þannig að ætla má að guð sé til og í þeirra liði. Völlurinn er rosalega þurr og harður og er ég viss um að nú styttist í áhyggjur af veðurfari hjá forsvarsmönnum Keilis. Ég var ekki að taka nóg tillit til ástandsins á vellinum í spilinu og var oft alltof löng í innáskotunum. Á móti kom að félagsskapurinn var góður og gaman að spila á "stuttbuxum og ermalausum bol" eins og maður væri á Spáni. Veitingarnar og verðlaun voru í hæsta gæðaflokki ...

 Starfsfólk Símans og Keilis KissingKissing takk fyrir mig...


Kyrrðarstund

Venjulega fer ég í göngutúr í hádeginu með vinnufélögunum og er gengið í hálftíma og síðan farið í mat. Stundum fer ég ein og þá er ég að montast við að skokka. Í dag var ég ein og hljóp af stað. Ég var stödd fyrir utan kirkju þegar ég var búin að hlaupa nóg og þá var verið að hringja inn til þjónustu og ég skellti mér inn. Þessi þjónusta kallast kyrrðarstund og voru allt að 15 manns mætt í hana. Einn sálmur var sunginn og síðan tekið til altaris. Fólkið fór upp og þáði syndaaflausn, fyrirgefningu og eilíft líf með inntöku á lífsins brauði þ.e. líkama og blóði Krists. Síðan stóð fólkið í hring og bað fyrir öðrum t.d. að mállaus maður fengi málið aftur og einstæð móðir fengi aðstoð,"you know who, God" og eitthvað mjög persónulegt. Ég fór að hugsa um hvort hægt væri, undir því yfirskyni að verið væri að biðja, að básúna út veikindi og ástand fólks án þess að það vissi. Allavega var kyrrðin ekki mikil og ég var hundsvekkt þegar ég fór. Boðið var upp á veitingar sem fólkið þáði sem greinilega var þarna sóknarbörn  en ég flýtti mér út og skokkaði í vinnuna. Þetta er líklega öldrunarstarf kirkjunnar og er alveg ágætt út af fyrir sig.


Leitt með laglegt kot

Raufarhöfn -síldin

 

Kæru bloggfélagar.

Ég má nú þakka fyrir að vera ekki komin á svarta listann hjá ykkur eins léleg og ég hef verið að blogga undanfarið og kvitta hjá ykkur. Ég hef verið mjög önnum kafin og nú er golfið að detta inn á fullum krafti þannig að kvöldin fara í að spila , æfa sig eða horfa á aðra spila í sjónvarpinu svo og fótboltann. Engin nenna fyrir bloggi. Fékk á mig þessa vísu á dögunum og finnst hún eiga vel við mig, kotið mitt og heimahagann .

 

Enginn hefur af því not

eða stundar veiði

Það er leitt með laglegt kot

að láta það standa í eyði.

Megi sumarið verða ykkur ljúft og létt og ég lofa bót og betrunHeart. kveðja Kolla.


Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband