Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2010

Gott silfur gulli betra

sveitakeppniNú er að baki sveitarkeppni öldunga í golfi 2010. Að þessu sinni var hún haldin á Jaðarsvelli á Akureyri dagana 20. til 22. ágúst. Ég var búin að hlakka mikið til að dvelja norðan heiða í eina viku í lok ágúst frá því að það var ljóst að ég kæmist með í sveitina fyrir minn klúbb.

Það fór þó þannig að ég var fljót að koma mér suður aftur. Strax að lokinni verðlaunaafhendingu var keyrt af stað. Það var nefnilega þannig að það var skítakuldi og hellirigning í heila þrjá daga.

Maður lifir bara á minningunni um æfingarleikinn sem var aldeilis frábær í sól og sumaryl á fimmtudeginum daginn fyrir keppnina.

Við GKG konur náðum í silfrið að þessu sinni en bronsið í fyrra og komumst þá inn í fyrstu deildina.

Ég var nokkuð fljót að sætta mig við að tapa úrslitaleiknum fyrir Keiliskonunum. Þær hafa nánast haft eignarhald á fyrsta sætinu enda stórkostlega flinkar konur þar á ferð.

Þessi árlegi viðburður í golfheiminum er afar skemmtilegur og gaman að hitta gamla félaga og kynnast nýjum. Þetta er líka ágæt leið til að kynnast sjálfum sér við aðrar aðstæður en maður er venjulega í.

Ég hugleiddi hvort ég ætti að fara til kennara eða hætta í þessu sporti. Niðurstaðan varð að skipta um kennara og fara á dómaranámskeið til að læra þessar ótrúlega erfiðu reglur.

Kannski er reynslan bara besti kennarinn. Allavega læri ég alltaf helling í hverri ferð.

Ég þakka hér með mínum félögum og meðspilurum fyrir þessa golfdaga og góða og drengilega keppni.

 


Þjóðkirkjan á þunnum ís

Flestar útfarir eru nokkuð svipaðar enda siðir og hefðir afar sterkir í þjóðkirkjunni þegar kemur að þessum þætti lífshlaupsins.

Ég hef verið við margar jarðarfarir um ævina, enda hef ég sungið í kirkjukórum í marga áratugi. Sjálf hef ég borið ömmu mína og föður minn síðasta spölinn. Einnig fylgt frænku minni sem bæði var vinkona og samstarfsmaður. Sárast var þó að kveðja besta vin sinn sem lést í blóma lífsins af slysförum. 

Ég hef verið að hugsa um þessa serimoníu alla og tilgang hennar. Nauðsynlegt þykir að auglýsa í allavega tveimur dagblöðum bæði andlátið og útförina. Gera þarf útfarardagskrá sem dreift er við útför með mynd, sálmum og nöfnum flytjenda. Síðan þarf að auglýsa að útförin hafi farið fram með þökkum aðstandenda os.frv. Flestum þykir ómögulegt annað en hafa blómakransa, nóg af blómum, sérkór, einsöng og svo auðvitað almennilega erfidrykkju.

Kirkjan hefur líka sína siði í öllum athöfnum og líka við útfarir. Aðstandendur skulu sitja á ákveðnum stað og síðan verður allt að vera slétt og fellt í hreyfingum þeirra sem bera blóm og kistu út úr kirkjunni. Helst má ekki heyrast í nokkrum manni, hvorki grátur, hósti eða stuna, hvað þá talað mál.

 Prestar og/eða prófastar hafa ákveðið að söfnuður skuli votta Guði virðingu í hvert sinn er lesið er úr guðspjöllunum með því að menn rísa úr sæti sínu.

Nýlega fór ég á jarðarför til að votta konu virðingu. Sú kona hafði lagt mikið af mörkum til starfsemi hreyfihamlaðra í gegnum árin og var stofnfélagi í stærsta félagi Sjálfsbjargar. Í kirkjunni voru óvenju margir notendur hjólastóla, hækja og fólk sem styður sig við göngugrindur og stafi.

Ekki latti það prestinn til að skipa fólki að standa á fætur. Þrisvar sinnum rak hann söfnuðinn á lappir. Ekkert kraftaverk gerðist. Ekki eins og þegar Jesú sagði við lamaða manninn " Tak sæng þína og gakk". Mér var ekki hlátur í huga við þessar vonlausu tilraunir prestsins og ákvað að næst muni ég sitja sem fastast, mínu fólki til samlætis.

Þessi siður var upphaflega til að sýna virðingu, ýmist orði guðs sem presturinn les eða hinum látna. Það má þó gera með öðrum hætti, óski aðstandendur þess.  Það væri hægt að gera t.d. með því að lúta höfði og spenna greipar. Ekki er ég viss um að prestar kynni þetta fyrir aðstandendum. Allavega er ömurlegt að horfa á þá flokkun sem á sér stað við þessar aðstæður. Þessi mismunun er mjög áberandi þegar um stóran hópi er að ræða. Hreyfihamlaðir geta þá ekki "sýnt" virðingu við þessar aðstæður.

Ef ég man biblíusögurnar rétt lét Jesú rjúfa þakið á samkunduhúsinu til að lamaður maður gæti komist þar inn. Mér finnst að þjóðkirkjan mætti fara að minnka það ójafnræði sem hún sýnir með því að flokka fólkið í hefðum og siðum sem eru í raun innihaldslausir og kjánalegir í nútíma þjóðfélagi.

Gaman væri að vita hversu margar kirkjur eru óaðgengilegar fyrir hreyfihamlaða á Íslandi.


Hjólreiðar í Köben

Danmörk2010 0441Nú hef ég tekið mér gott frí og dvalið í Danmörk í eina viku. Ég átti þess kost að búa á einkaheimili þar sem fólk tók mér opnum örmum. Hjón á besta aldri og stálpaðir strákar þeirra 16 og 20 ára voru frábær. Mér fannst þau afar dugleg og hress, fróð og fjölhæf. Öll töluðu þau góða ensku og auðvitað sína dönsku, enda dönsk.

Húsmóðirin er í hestunum og á íslenskan hest. Hún dýrkar íslenska hesta, sem og Ísland. Hún á líka hjól og það fékk ég lánað mér til mikillar ánægju og verð að segja að það er unun alveg að hjóla í Danmörk. Hún átti hinsvegar ekki hjálm og því var ég hjálmlaus.

Að sumu leyti eru Danir til fyrirmyndar. Þeir hjóla mjög mikið og fara langar leiðir á hjólum. Hjólabrautir eru meðfram götum í öllum helstu borgum og svo eiga hjólreiðamenn yfirleitt réttinn. Það vakti því furðu mína hversu fáir voru með hjálm á höfði og etv hafa sumir verið "ligeglad" á hjólinu sínu.

Það mætti segja mér að með sífellt hækkandi bensínverði fari að fjölga þeim sem hjóla hér heima þó varla sé hægt að segja að það sé auðvelt. Bæði er hjólastígum ábótavant og svo veðurfarið oft erfitt. Ég held þó að þetta snúist um að byrja bara og klæða sig eftir veðri.


Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband