Leita í fréttum mbl.is

Ekki að kaupa þetta.

Endur fyrir löngu í landi langt í burtu rakst falleg, sjálfstæð, og sjálfsörugg prinsessa á frosk þar sem hún sat og velti vöngum yfir vistfræðilegum álitamálum við bakka ómengaðrar tjarnar á fagurgrænu engi nálægt kastala sínum. Froskurinn stökk upp í kjöltu prinsessunnar og sagði.

"Fagra frú, ég var eitt sinn gjörvilegur prins en grimm norn lagði á mig álög. Ef þú smellir á mig einum kossi mun ég aftur verða að þeim snotra prinsi sem ég raunverulega er. Þá getum við ,mín kæra, gifst og stofnað heimili í kastalanum þínum. Þú getur framreitt málsverði fyrir mig, þvegið klæði mín, alið börnin mín og fundið til þakklætis og hamingju um alla eilífð"

Sama kvöld sat prinsessan yfir málsverði sínum-léttsteiktum froskalöppum- og hló lágt með sjálfri sér. " Ég held nú fokking síður"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Sæl kæra bloggvinkona,svona hugsa konur,en eru þær svona?

Guðjón H Finnbogason, 24.5.2008 kl. 11:31

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

 hahaha kannski sumar.

Kolbrún Stefánsdóttir, 24.5.2008 kl. 13:50

3 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Þetta er náttúrulega bara dæmisaga, sem mætti líklega yfirfæra á margt. Eiginlega hvað sem er í mannlegum samskiptum, ekki satt? Maður í nauðum kallar á hjálp en fær synjun, og það gróflega.

Annars finnst mér froskalappir ekki eins góðar og prinsessunni. Borðaði þær eitt sinn hér í Frakklandi og verð bara að segja að þetta er eiginlega ekkert sérstakt! En gott að hafa prófað - þá getur maður leyft sér að hafa álit á þeim. Fullt af fólki snobbar fyrir froskalöppum.

Ágúst Ásgeirsson, 24.5.2008 kl. 14:24

4 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Góð

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 24.5.2008 kl. 23:39

5 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Ágúst. Ég sá frosk í fyrsta skipti á Florida í vetur en hef aldrei smakkað froskalappir. Mér fannst þetta skemmtilegur kvenrembubrandari sem dóttir mín Birgitta sendi mér í vinnuna. Heldurðu kannski að þetta séu skilaboð um að ég eigi að fara að gefa einhverjum froski séns og að maður þurfi að hafa fyrir því að nálgast prinsinn sinn sem sé auðvita einhversstaðar í herfilegu dulargerfi. Kannski er ég bara froskalappakona.  hahah já Guðrún Jóna hún er góð þessi....  

Kolbrún Stefánsdóttir, 25.5.2008 kl. 00:40

6 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Þú spyrð 64 dollara spurningar? Er dóttirin búin að gera játningu í þessa átt? Ég þekki ekki nóg inn á svona norna- og prinsamál til að geta svarað af viti! Eru kannski allir góðir menn í álögum? Og hverjar eru nornirnar þeirra? Þær sem borða froskalappir?

Ágúst Ásgeirsson, 26.5.2008 kl. 21:00

7 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Halló.. þetta var sjálfstæð prinsessa en enginn norn  Nei dóttirin hefur ekki verið með nein komment á móður sína sem betur fer enda veit  hún að móðir hennar er fullfær um að stjórna sínum kastala sjálf og vantar ekki að þvo þvott af einhverjum froskgæja sem heldur að hann sé prins kveðja til þín Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 26.5.2008 kl. 21:16

8 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæl mín kæra.Já að kyssa froska.Það er málið.Ég átti einu sinni mjög kæran vin sem hafði "froskur"sem viðurnefni.Ég veit satt að segja ekki ástæðuna.En ég hef sagt þér hvaða viðurnefni ég hafði á mér hér í"den".Eitt sinn vorum við eitthvað að rífast.Og ég sagði"haltu nú kjaf.. NN froskur.Þá svaraði hann af sinni alkunnu hægð."Þú ættir nú ekki að segja mikið Ólafur,maður er nú ekki kallaður eftir heilu þorpi eins og þú"Þessi saga kom upp í hugan í þessari froskaumræðu.Ég kvitta hér með fyrir innlitið.Þori ekki að ræða um sjálfstæðar eða sjáfstæðis prinsessur sem mér skilst að sé tvennt ólíkt.En mikið finnst mér döndku prinnsessurnar fallegar.Sért ávallt kært kvödd

Ólafur Ragnarsson, 27.5.2008 kl. 15:44

9 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll minn kæri bloggfélagi. Ég er alveg viss um að þér finnst allar prinssessur fallegar  Þetta er nú allt í gamni gert eins og þú veist. kveðja til þín Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 27.5.2008 kl. 21:43

10 Smámynd: Ásgerður Jóna Flosadóttir

Sælar, bloggin þín eru alltaf góð og kvenrembubrandari dóttur þinnar frábær.

Eigðu góðan dag.

kkv.

Ásgerður Jóna Flosadóttir, 28.5.2008 kl. 10:17

11 Smámynd: Halla Rut

Frábær saga sem fer einmitt svo vel við samtöl sem ég hef átt í dag við nokkra vini mína um hvernig konur hlaupa oft í þjónustuhlutverkið og verða sjálfkrýndar; skoðanalausar eldabuskur, jafnvel þótt þær hafi ætlað sér allt annað í upphafi.

Mér finnst froskalappir góðar og enn betri eftir þessa frásögn.

Halla Rut , 28.5.2008 kl. 20:53

12 identicon

Sæl,er það þessvegna að ég fæ ekki koss á kinnina frá þér,að þú sért hrædd um að ég breytist í frosk og verði étinn i framhaldinu,ævintýrin geta snúist upp í andhverfu sína. :)

Gúndi Glans (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 10:50

13 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Takk fyrir innlitið þið öll, alltaf gaman að fá góða sögu til að skemmta sér yfir. Oft leiðir hún af sér umræðu sem gaman er að taka þátt í. T,d, í framhaldi af því sem Halla segir þá finnst mér oft að fólk telji mann "vonda manneskju" ef maður fer ekki í alveg í gamla gírnum, þannig að ég giska á að þetta hafi verið fjörugar umræður hjá þér Halla. Ég er samt frekar þjónustulunduð svona almennt en ekki þegar kemur að " samböndum " hahaha þið skiljið þetta stelpur. Nú man ég aðra sögu sem er hryllilega fyndin en smá dónó þannig að....Gúndi:  " no comment" með kveðju til ykkar Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 30.5.2008 kl. 20:19

14 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Maður bíður bara þessarar nýju sögu, sem þú minnist á.

Ágúst Ásgeirsson, 31.5.2008 kl. 21:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 121947

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband