7.2.2010 | 09:42
Hamingjan verður ekki hertekin Eyjólfur
Nýlega fór ég á frumsýningu hjá Halaleikhópnum. Þar var sýnd tilfinningarík og stórbrotin ástarsaga þeirra Steinunnar og Bjarna á Sjöundá eftir Svartfugli Gunnars Gunnarssonar. Bæði áttu maka þegar þau hittust fyrst er Bjarni og Guðrún flytjast að Sjöundá, sem var kotbær á Barðaströndinni. Það var ást við fyrstu sýn. Ástir þeirra kostuðu bæði þau og maka þeirra miklar hörmungar og voru þau ásökuð fyrir morð á mökum sínum. Börn Bjarna og Guðrúnar fórust á flótta á leið heim að Sjöundá meðan hann sat í varðhaldi. Leikgerðin var afar skemmtileg og sagan sögð á myndrænan hátt. Tónlistin hélt manni föngnum í þessum gamla og ömurlega tíma sem sagan gerist á og sviðsmyndin flottur rammi utan um söguna.
Margir áttu þarna stórleik en í huga mínum sitja tvær senur sem eru þegar Steinunn og Bjarni eiga einkasamtal við Eyjólf kapellán sem Daníel Þórhallsson lék mjög sannfærandi. Sóley Björk, kom hinni sterku og fögru konu, Steinunni, vel til skila og fór á kostum þegar Steinunn bognaði í lokin undan sársaukanum og sektarkenndinni og áttaði sig á að hamingjan yrði ekki höndluð þrátt allt. Þröstur Jónsson sem lék Bjarna var sömuleiðis fanta góður sérstaklega þegar Bjarni opnar sig fyrir prestinum. Þá skein í mikla örvæntingu og sorg. Ekki út af dauða barnanna og yfirvofandi eigin dauðadómi, heldur miklu frekar því hvort fjötrar ömurlegs hjónabands munu líka halda í himnaríki.
Svar kapelláns féll mér vel í geð.
Þessi saga er gott dæmi um það hvað ástin er ofmetin.
Sjáið endilega leikritið. Það er ekki bara tveggja stunda skemmtun heldur eitthvað miklu meira.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:18 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Október 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Apríl 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Bloggvinir
- solir
- gmaria
- fannarh
- thoragud
- meistarinn
- sigurjonth
- skulablogg
- gudruntora
- svavaralfred
- rheidur
- gudrunmagnea
- helgigunnars
- georg
- marinogn
- kallimatt
- zumann
- gudbjornj
- eirikurgudmundsson
- gretar-petur
- johanneshlatur
- franseis
- altice
- palmig
- lydurarnason
- omarbjarki
- gretarogoskar
- tilveran-i-esb
- paul
- ksh
- thjodarsalin
- framtid
- kop
- jon-o-vilhjalmsson
- sunna2
- neytendatalsmadur
- duna54
- jonsnae
- sjonsson
- duddi9
- olofdebont
- magnusjonasson
- helgatho
- fullvalda
- kokkurinn
- olafiaherborg
- nimbus
- jakobk
- stebbifr
- ranka
- heimssyn
- rs1600
- maggij
- bjarnihardar
- bookiceland
- frjalslyndir
- gauisig
- zeriaph
- gthg
- gustaf
- hannesgi
- diva73
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- prakkarinn
- ragnar73
- ziggi
- visur7
- tryggvigislason
- ursula
- valdimarjohannesson
- postdoc
- icekeiko
Nýjustu færslurnar
- Hver ER; LJÓSBERI jarðarbúana þegar að það kemur að heimsóknum gesta frá öðrum stjörnukerfum?
- Hægt með krónunni?
- Er Kína í stríði við Evrópu??
- Karlmannatíska : RALPH LAUREN Polo Holiday 2024
- Hérna eru gamlar TÆKNITEIKNINGNAR af HINU NÝJA GOSI sem að er nú NÝ HAFIÐ: 20.NÓVEMBER 2024 en beðið er eftir NÝJUSTU TÆKNITEIKNINGUNUM:
Athugasemdir
Takk fyrir þetta Kolbrún má ég vísa í þetta á vefnum okkar ?
og Þröstur er Jónsson...
Ása Hildur Guðjónsdóttir, 7.2.2010 kl. 11:21
Sæl Ása. Auðvitað máttu gera við þetta hvað sem þér sýnist. Þetta er mín upplifun á verkinu og við hana stend ég hvar sem er. Takk fyrir frábæra sýningu. Kveðja Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 7.2.2010 kl. 12:25
Umhugsunarverð orð sem þú lætur falla í niðurlaginu um fyrirbæri sem margir telja þó megingangvirki mannlífsins.
Magnús Geir Guðmundsson, 7.2.2010 kl. 21:34
Sæll Magnús. Já ertu að tala um ástina eða trúna ?. Þessi sýning er bara þannig að maður veltir því fyrir sér hvort ástin eigi yfirhöfuð rétt á sér. Þá er ég auðvitað að tala um svokallaða ást milli manns og konu (Eros). Það er vitað að sú ást sviptir þau heilbrigðri skynsemi, tekur burt sanngirni og tillitsemi og veldur síðan angri og eyðir sálarró. Eigum við að ræða það eitthvað frekar eins og maðurinn sagði. Kveðja Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 7.2.2010 kl. 21:58
Jájá, ræðum það og upp í rúm haha!
En ást er nú víðtækt og ekki sama ást og ást hygg ég nú, þar með talin milli manns og konu.Fyrirbærið sem við köllum svo, er bara einhverra hluta vegna þarna, í mismunandi mæli i brjóstum hvers og eins, alveg burtséð svo frá því hvort það eigi rétt á sér eður ei. Meginþorri mannkyns stendur í þessari meiningu, en kannski er þetta bara blekking, ættum að láta bara kynkvötina eina ráða og þá væri kannski sum vandamál ekki fyrir hendi?!
Magnús Geir Guðmundsson, 8.2.2010 kl. 10:35
Já Magnús, nú líst mér á þig . Ertu að detta inn í hippatempóið þarna. Sleppa því að binda sig, elska alla, og "hoppa upp í rúm" með þeim sem manni hugnast hverju sinni. Ekki vitlaust, allavega hafa fjötrar trúarinnar og hennar kreddur þjakað viðkomandi aðila, í þessu umrædda leikriti, svo varla hefur verið hægt um vik þar sem heyra hefur mátt hummm og ha í gegnum þunna veggi kotsins. Þessi ást sem yfirtekur alveg hausinn á manni er oftast hormónahlaðin í meira lagi, meðan hún varir, og því er erfitt að hugsa sér þessa stöðu sem þau hafa verið í þarna blessað fólkið. Kveðja Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 8.2.2010 kl. 21:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.