Leita í fréttum mbl.is

Ömmudrengur

Hvað ætli sé í þessuÞað er einhver takki þarna

 

Merkilegt hvað strákar eru skrýtnir. Alltaf að skoða og kanna alla hluti. Ég fór með krúttið mitt í göngutúr og það var gaman að sjá hvað hann þurfti að skoða það sem fyrir augu bar. Ég taldi mig heppna að ná honum af brunahananum áður en hann færi í gang með tilheyrandi vatnsgusum en það slapp með því að vekja athygli hans á næsta fyrirbæri. Hann er svo mikill fjörkálfur að þessi mikla athyglisgáfa kom mér á óvart. Ég sagði honum " að það væri ekkert að sjá, allt jafn augljóst og kjörin í ESB.

Áfram Íslands -ekkert ESB

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Tja já, ætli ég segi nú ekki bara að "Himin er heiður og blár... og heitt á könnunni í Brussel"! En skil vel að amma sé ánægð með drengin.

Magnús Geir Guðmundsson, 21.9.2009 kl. 20:46

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Magnús Geir. Þú veist það nú vel , þú sem ert svo fróður og flinkur, að himininn er ekki blár. Hann bara sýnist vera það  Já heitt á könnunni í Brussel og nóg af mjólk út í kaffið samkvæmt nýjustu fréttum  Vona að þú sért kátur og hress minn ágæti bloggvinur. kveðja Kolla.

ps. Ég var að koma frá að passa prinsana og þessi drengur er alveg sérstakt gersemi. Bæði skýr og skynsamur, ofsakátur og blíður. Ég eldaði mat og fór úr skirtunni og var bara á fleygnum bol. Allt í einu segir hann. "Amma ertu með brjóst" ? og kíkti ofan í hálsmálið."já smá" sagði ég. "Ég er líka með pínulítil brjóst" sagði hann þá.  hahahaha Hann er alveg dýrð . Eina vandamálið er að hann vill helst ekki deila athygli með yngri bróður sínum sem er 15 mánaða og að byrja að láta til sín taka. kv. amman stolta.

Kolbrún Stefánsdóttir, 21.9.2009 kl. 22:13

3 identicon

Sætur strákur...en ég skil ekki þessi ESB tengsl. Þú mátt halda áfram að hnakkast í honum, gerði svipað með Liverpool FC með mína stráka. Þeir halda báðir með L-fc í dag! (ég er Muc maður)

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 20:48

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Já hann er algert krútt og samlíkingin er við fólkið sem vildi endilega skoða hvað væri í boði, eins og um tilboð í viðskiptum væri að ræða ( voða 2007 eitthvað). Nú ætti fólki að vera ljóst að það er alveg augljóst hvað er í boði í ESB og það er ekkert. Hvað á langt að ganga Gísli áður en við horfumst í augu við tilveruna eins og hún er. Örþjóð í úthafinu full af auðlyndum fellur aldrei alveg að evrópskum hagsmunum þó ekki væri  nema út af hnattlegunni. Þið vilduð sæti í Öryggisráðinu, þið viljið taka allan tíma sem við höfum til að bjarga málum í Icesave umræðu og af hverju? Jú þumalskrúfan er að kyngja skuldapakkanum svo hægt sé að komast inn í "samfélag þjóðanna" til að lúta vilja Þjóðverja, Frakka og Breta. Hrikalega barnalegt að mínu viti. Ekki þess virði að tefja sig í skoðun á því. Skiptu nú aftur um lið góði maður. kveðja Kolla. 

Kolbrún Stefánsdóttir, 27.9.2009 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband