Leita í fréttum mbl.is

Föðurmissir

Pabbi minnÉg keyrði norður á Húsavík sl. laugardag ásamt bróður mínum og systursyni. Erindið var að hitta föður sinn og afa á lífi í hinsta sinn. Hann hafði verið fluttur á sjúkrahús daginn áður, gamli maðurinn, í andnauð. Hann fékk öndunaraðstoð en í raun var líkaminn búinn að fá nóg. Ein systir mín kom frá Raufarhöfn en hin er í útlöndum. Hann lést tveimur klukkustundum eftir að við komum til hans. Þetta er önnur ferðin mín til hans á nokkrum dögum en ég var hjá honum 7. til 11. ágúst. Við áttum góðan tíma saman og ræddum um ýmis mál sem við höfum ekki rætt lengi. Hann sagði mér drauma sína um föður sinn og aðra látna ættingja. Hann sagði mér líka upplifun sína af því að missa réttindi til að keyra bíl vegna daprandi sjónar og hvað það hreppti hann í mikla fjötra en hélt í vonina um að það mætti laga. Við ræddum dauðann og þá trú sem ég hef varðandi hann og framhaldslífið. Það var auðheyrt að það var eitthvað sem honum hugnaðist vel og er ég að vona að það hafi tekið frá honum óttann sem ég held að flestir upplifi þegar kallið kemur. Eftir erfiða stund á sjúkrahúsinu keyrðum við heim á  Raufarhöfn um kvöldið og gistum í Brún. Á sunnudagsmorgun fórum við til Þórshafnar til að flytja móður okkar þessi sorgartíðindi. Eftir nokkra tíma með henni var keyrt í bæinn. Framundan er flókið ferli til að komast í gegnum útför með öllum þeim serimoníum sem því fylgja bæði hvað varðar trúarþáttinn og lagaþáttinn. Maður gengur alveg á vegg hvað þekkingu varðar í þeim efnum. Mér kom í hug hvort það fari ekki að koma upp sú staða í þjóðfélaginu að fólk hafi ekki ráð á því að grafa sína nánustu. Ég vil nota tækifærið og þakka sjúkraflutningamönnum og starfsfólki sjúkrahússins á Húsavík fyrir skjóta og góða þjónustu við pabba minn  og okkur aðstandendur.  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sendi þér samúðarkveðjur elsku Kolla, það er svo erfitt að kveðja, en mikið held ég að vinur minn sé glaður, nú þenur hann nikkuna sem aldrei fyrr og enginn mæði eða ónýtir fætur sem hindra hann í taka sporið, blessuð sé minning hans, knús á Sjönu og ykkur öll

      kveðja Maja.

María Lilja Þorkels (IP-tala skráð) 25.8.2009 kl. 23:09

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Takk fyrir María. Já ég held að það sé næsta víst að þú  hafir rétt fyrir þér með þetta allt saman. Ég kem knúsinu til skila til mömmu . Henni líður vel og er síkát þó minnið sé farið að svíkja hana og í raun held ég að það sé blessun ellinnar að muna bara ungdóminn og besta tíma ævinnar. Henni fellur ekki verk úr hendi, saumar og saumar. Hafðu það sem allra best María og bestu kveðjur Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 25.8.2009 kl. 23:38

3 identicon

Votta þér og þinni fjöldskyldu mína innilegustu samúð.

NN (IP-tala skráð) 25.8.2009 kl. 23:41

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Þakka þér fyrir það NN gaman að sjá þig aftur á síðunni sinni. kveðja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 25.8.2009 kl. 23:49

5 identicon

Ég samhryggist þér Kolla, passaðu upp á þig í þessu öllu saman.

sandkassi (IP-tala skráð) 26.8.2009 kl. 04:05

6 identicon

Elsku frænka og annað frændfólk.

Ég votta ykkir innilega samúð mína, ég veit hvað það er erfitt að missa og já ferlið sem við tekur er flókið. En ég hef þá trú að handan við móðuna sé tekið vel á móti þeim sem kveðja okkur hér og að þeim líði vel þar.

Guð veiti ykkur styrk á erfiðum stundum. Hjartans kveðja til allra.

Heiðrún

Heiðrún Þórólfsdóttir (IP-tala skráð) 26.8.2009 kl. 08:22

7 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Gunnar og takk fyrir hlýhug til mín. Það er einmitt atriði að menn passi upp á sig í svona aðstæðum. Ég reyni að vanda mig

Heiðrún elsku frænka mín bestu þakkir fyrir að hugsa til okkar á þessum tíma. Þú þekkir það eins og við vitum.  Ekki spurning að það tekur betra við fyrir föður minn eins og Maja benti á þá er hann örugglega að spila syngja og dansa. Samt alltaf sárt að kveðja. Gangi þér allt í haginn og vonandi sjáumst við á næsta frænkukvöldi. 

Kolbrún Stefánsdóttir, 26.8.2009 kl. 16:32

8 identicon

Elsku Kolla við vottum þér og þínum innilega samúð,gangi ykkur sem allra best.Kærar kveðjur Sigurveig og Stefán.

Sigurveig Ingim. (IP-tala skráð) 26.8.2009 kl. 20:22

9 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Samhryggist þér og systkynum, Kolla, vegna fráfalls föðurs ykkar. Man vel eftir honum frá í den, teinréttum og spengilegum. 

Ágúst Ásgeirsson, 26.8.2009 kl. 20:31

10 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Kæra Kolla

Votta þér og þinni fjöldskyldu mína innilegustu samúð.

Guð veri með ykkur

Kær kveðja

Jón

Jón Snæbjörnsson, 27.8.2009 kl. 09:42

11 identicon

Votta þér og þínum mína innilegustu samúð.

Kær kveðja

Helgi Helgason

Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 19:28

12 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Bestu þakkir fyrir sýnda samúð. Já Gústi hann var óttalegur sperruleggur og reffilegur karl hann pabbi . Hann var það alveg fram í andlátið  Svona var amma Fríða líka og hún varð 100 ára og blind þar að auki en alltaf þessi reisn hjá henni. Hún var líka umhyggjusöm, stjórnsöm og skynsöm kona og hún hefur alltaf verið Idolið mitt. Ég sakna hennar ennþá þó hún hafi látist 1994. kveðja til ykkar allra.

Kolbrún Stefánsdóttir, 27.8.2009 kl. 20:49

13 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Kæra Kolla! Sendi þér og þinum mínar dýpstu samúðarkveðjur við fráfall föður þíns. Megi góður guð styrkja ykkur og styðja, Sértu ávallt kært kvödd

Ólafur Ragnarsson, 27.8.2009 kl. 22:53

14 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Þakka þér fyrir Óli minn. Það veitir ekki af smá stuðningi núna  og ekki verra að hann komi að ofan. Mikið stress og ergelsi út af öllum þessum formlegheitum, venjum og klisjum sem koma upp í svona tilfellum. Svo virðist sem allir ættingjar hafi sérútgáfu af því hvað sé " í hans anda"  og ef vel ætti að vera þarf útförin að taka tvo, þrjá tíma bara undir lögin sem "verður að syngja" eða " hann söng svo mikið" Ég reikna samt með því að ég, nöldurskjóðan í fjölskyldunni, nái þessu niður í venjulegan útfarartíma fyrir rest . Bestu þakkir fyrir góðar kveðjur, eins og alltaf, Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 28.8.2009 kl. 23:12

15 Smámynd: Magnús Jónsson

Kolbrún: Falleg færsla hjá þér, sendi þér og þínum samúðarkveðjur, faðir þinn hefur vonandi verið saddur lífdaga og mikið ert þú heppin að hafa fengið að eiga með honum stund í lokin, það hefur önuglega létt honum ferðalagið, haf þökk fyrir þessa færsluna.

Magnús Jónsson, 28.8.2009 kl. 23:31

16 Smámynd: Magnús Jónsson

Kolbrún: fyrirgefðu átti að standa Örugglega.

Magnús Jónsson, 28.8.2009 kl. 23:32

17 identicon

Kæra Kolla! Sendi þér og þinum mínar dýpstu samúðarkveðjur við fráfall föður þíns. Megi allir góðir vættir styrkja ykkur og styðja.

Ólafía Herborg (IP-tala skráð) 29.8.2009 kl. 16:08

18 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Innilegar samúðarkveðjur frá okkur hér í eyjum.

Georg Eiður Arnarson, 29.8.2009 kl. 20:29

19 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Takk Goggi og Ólafía fyrir samúðarkveðjur. Magnús takk fyrir kommentið og það er mikið rétt að það var ótrúlega heppilegt að ég skyldi bara nánast "detta" norður því það var ekki skipulagt heldur bara alltaf á döfinni eins og það hefur verið undanfarið ár. Það er líka öruggt mál að mitt viðhorf til "dauðans" breytti viðhorfi hans líka og hann hefur kannski orðið óhræddari við að breyta um tilverustað. Þetta passaði líka svo snilldarlega við hans drauma undanfarið. Gott að finna hlýjuna frá ykkur öllum á þessum tímamótum því þó hann væri saddur lífdaga og líkaminn móður og lúinn þá var andinn sprækur og húmorinn góður. Hans er sárt saknað. Takk aftur og kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 29.8.2009 kl. 23:09

20 identicon

Elsku Kolla mín.

Mínar innilegustu samúðarkveðjur vegna fráfalls pabba þíns (ykkar)Stefáns.  Ég var svo heppin að hitta hann í fyrrasumar og hann var eins og ég mundi hann frá því í gamla daga og fyrir það er ég þakklát.

Antonía

Antonía (IP-tala skráð) 31.8.2009 kl. 12:57

21 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Takk frænka mín. Já hann hélt sér ótrúlega vel og alltaf jafn hress í bragði og fyndinn karlinn. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 31.8.2009 kl. 20:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 121913

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband