Leita í fréttum mbl.is

Nýja sveiflan

GolfgleðiNú er meistaramót klúbbanna framundan í golfi. Þá er gríðarleg stemming og fjör í öllum klúbbum. Þá hitta menn gamla félaga og kynnast nýjum, því skipt er um partnera milli daga í flestum tilfellum. Það er að mörgu að hyggja þegar menn eru að keppa í alvöru móti, bæði fatnaði og græjum sem og allri framgöngu. Ég er búin að taka upp nýja sveiflu og ætla að reyna að hanga á henni út mótið. Ég veit þó að það er alltaf freistandi, ekki síst í keppni, að taka upp gamla takta og sækja í það sem maður þekkir og ræður við. Málið er bara að hafa gaman af þessu, þó það sé hunderfitt að spila undir pressu í þrjá eða fjóra daga. Fyrst og fremst ætla ég að reyna að halda í jákvæðnina. Það er viðbúið að ákveðin gremja sæki á þá golfara sem ekki taka þótt í meistaramótinu og geta ekki sinnt sinni íþrótt sem skyldi. Vona bara að sem flestir golfarar eigi góða daga framundan.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Spennandi,en er nýja sveiflan íllviðráðanleg mín kæra?

GA mótið er nú búið, kláraðist í gær og eins og mótið var ánægjulegt í fyrra fyrir mína miklu golffjölskyldu, þá varð það næstum eins mikið til vonbrigða í ár!

En ætla að fylgjast með þér, bannar mér það vonandi ekki, kíki eftir þér inn á til dæmis golf.is.

Og þú stefnir auðvitað á ekkert annað en titilinn ekki satt?

Magnús Geir Guðmundsson, 5.7.2009 kl. 23:40

2 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæl Golfgyðja! Hér er annar aðdáandi sem mun herma eftir hinum og kíkja inn á golf.is . Verið bæði ávallt kært kvödd

Ólafur Ragnarsson, 6.7.2009 kl. 12:49

3 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sælir félagar og takk fyrir innlitið. Já auðvitað er stefnt á titil, nema hvað. Sveiflan er erfið þegar svona miklar breytingar eru gerðar og síðan farið í mót rétt á eftir. Ég þarf að berjast við að taka ekki upp gamla gripið og gömlu stóru aftursveifluna með tilheyrandi broti í úlnlið og stífum handleggjum. Gærdagurinn var alveg skelfing hjá öllum í mínum flokki og ég var númer tvö, mundaði einu höggi en ég hef ekki spilað svona illa í mörg ár. Skárri í dag, en ofan í kaupið er völlurinn þungur og ókunnugur fyrir mér. En ég tek á því á morgun. Það er lokadagur hjá mér. knús á ykkur Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 6.7.2009 kl. 14:35

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Haha, gott hjá Ólafi að kalla þig GOLFGYÐJU, mér sýnist nú á öllu að sigurinn eigir þú vísan, langbest með 10 högg í forskot!(og ert vel að merkja með lægstu forgjöfina)

Sé annars að þarna er fv. ritstýra Nýs lífs að keppa líka, hún Gullveig, auk þess sem ég velti fyrir mér hvort sú sem er í öðru sæti, Birna Aspar, geti verið ættuð héðan að norðan? Mjög algengt ættarnafn hérna frá fornu fari held ég.

Ólafur fær þökk að vanda fyrir hans einkar hlýju kveðjur og þú fyrir hlýja knúsið, ilmurinn alveg yndislegur frá vellinum!(en förum ekki nánar út í það!)

Magnús Geir Guðmundsson, 6.7.2009 kl. 16:01

5 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll kvennaljóminn norðlenski. Já hann Ólafur er nú ekki að skafa af hlutunum eins og þú veist.Hann er algert krútt. Það er gott að hafa smá forskot fyrir morgundaginn en gleymdu því ekki að þær þekkja völlinn út og inn en ég rata varla milli teiga. Hún Birna gæti mjög vel verið frá Akureyri, hún er svo mikið þannig  . Hún er reyndar blakfélagi minn úr Víkingi (öldungalið sem helst er utanbæjarfólk)  og við ræddum einmitt um að ég kæmi aftur til leiks í vetur. Gullveig er aðal stjarnan þarna held ég bara og afar vingjarnleg við nýliðann eins og flestir. Já hún skartar sínu fegursta náttúran núna og gróðurinn í hámarki. Bara frábært að geta verið úti í þessari blíðu og fegurð. Bestu kveðjur Kolla. 

Kolbrún Stefánsdóttir, 6.7.2009 kl. 18:04

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

TAkk fyrir þetta Kolla, kvennaljóminn roðnar nú undir faguryrðum þínum, jafnt um hann sjálfan sem aðra og náttúruna líka!Þú getur nú ekki tapað þessu niður held ég, en ert lítilláta lafðin að vanda!

Magnús Geir Guðmundsson, 6.7.2009 kl. 22:50

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Glæsilegt, 16 högga munur!

En skorið einu höggi hærra en í gær sýndist mér!

Til lukku Kolla hin káta!

Magnús Geir Guðmundsson, 7.7.2009 kl. 15:22

8 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

 lítillát ljúf og kát segir í einhverjum texta. Það á nú ekki við mig. Ég var með fóbíu fyrir einni brautinni. fór hana einn daginn á 11 höggum og 8 í gær minnir mig og 9 í dag. Annars datt ekkert af púttum í dag þó var ég ekki "nema" einu höggi verri en í gær. Það var rosa gaman og hinar tvær í hörku keppni um annað sætið. Birna vann með einu höggi og by the way hún er frá Akureyri  kveðja Kolla  

Kolbrún Stefánsdóttir, 7.7.2009 kl. 16:39

9 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Reyndar 17 högga munur Magnús  kveðja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 7.7.2009 kl. 21:59

10 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

þetta er bara fallegt

Jón Snæbjörnsson, 8.7.2009 kl. 09:32

11 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Takk fyrir innlitið og kommentið Jón.

Kolbrún Stefánsdóttir, 8.7.2009 kl. 16:11

12 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Æ, þarna fór glansinn af kvennaljómanum, kann ekki að reikna rétt og fellur því áreiðanlega um 15 sæti á vinsældalistanum!

Magnús Geir Guðmundsson, 11.7.2009 kl. 03:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 121912

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband