Leita í fréttum mbl.is

Leiksigur Árna Péturs.

Árni Pétur GuðjónssonÉg er alveg í skýjunum með kvikmyndina Sveitabrúðkaupið. Við fórum mæðgurnar, allar þrjár, í bíó á laugardagskvöldið og skemmtum okkur konunglega. Mér fanns áberandi hvað Árni Pétur Guðjónsson fór á kostum í sínu hlutverki og verður nú gaman að fylgjast með hvort hann fær ekki örugglega íslensku leiklistarverðlaunin fyrir besta leik þetta árið. Ég er ekki gagnrýnandi en ég hef aldrei séð íslenskan leikara leika eins vel það verð ég að segja. Núna skil ég hvað það þýðir í raun að stela senunni. Tær snilld.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Gaman að vita þetta Kolla.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 4.9.2008 kl. 01:31

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl GMaría. Ef þú ferð á myndina þá er ég viss um að þú ert mér sammála. Annars skrýtið hvað brúðkaup eiga upp á pallborðið hjá íslenskum kvikmyndagerðamönnum upp á síðkastið. Sú hugsun kveikti í mér aðra hugsun sem ég bloggaði um hér að ofan. Allt á léttu nótunum auðvitað. kveðja til þín Kolla

p.s. þurfum að fara að heyrast mín kæra ....

Kolbrún Stefánsdóttir, 4.9.2008 kl. 23:43

3 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Já hann er skemmtilegur og virkar blíður og góður maður. Bróðir hans Kjartan leikari er líka mjög fyndinn og svo er bróðir hans Pétur mikill snillingur, rithöfundur og guð má vita hvað hann er ekki búinn að afreka um ævina. Hann stofnaði Flokk mannsins og svo er hann með heilmikið hjálparstarf í einhverju Afríkuríki minnir mig. Hahaha fórstu bara til sjós eins og það sé alveg afgangs. Ef ég hefði gengið menntaveginn hefði ég geta orðið þetta allt saman sem þú taldir upp en aldrei getað staðið mig til sjós miðað við mína reynslu þar. Það er bara ekki öllum gefið  Minn fyrrverandi var sjómaður og hann var alltaf veikur fyrstu dagana í hverjum túr. Alger hryllingur. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 6.9.2008 kl. 07:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 121926

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband