Leita í fréttum mbl.is

Sumarið er tíminn.

                                                              

 11 apríl 2006 Sumarið er komið og ég búin að fara fyrsta golfhringinn, það er að segja hér heima. Við fórum í gær vinkonurnar, ég og Lovísa, og áttum saman yndislegan hring á Korpunni. Ég var á regulation, oftast nær, og fékk nokkur pör en púttaði alltof oft.  Korpan kemur ágætlega undan vetri og ég trúi því að grínin verði fljótlega slétt og fín. Lovísa er idolið mitt. Ég stefni á að verða eins og hún þegar fram líða stundir. Talandi um idol og íþróttir get ég ekki látið hjá líða að lýsa hamingju minni með einstakan árangur Ólafs Stefánssonar sem talinn er einn af þremur bestu leikmönnum í handboltanum í dag og þá erum við að tala um heiminn en ekki litla Ísland. Það er alveg stórmerkilegt við Ólaf að hann hrífur mann svo með sér, í hverjum leik, að maður sleppir sér alveg, hrópar og klökknar og allur tilfinningaskallinn fer í gang. Það er sama hvort hann er óánægður með leikinn  ( tapar ) eða er að gera góða hluti, hjartað slær alltaf með þessum prúða leikmanni. Í mínum huga ber hann höfuð og herðar langt yfir alla okkar íþróttamenn fyrr og nú og þó maður gleðjist yfir að þau Björk, Sigurrós, Eiður, Björgólfur Þór og hvað þau nú öll heita, séu að gera góða hluti úti í heimi er það hjóm miðað við afrek og landkynningu Ólafs Stefánssonar, okkar frábæra íþróttamanns. Hann er vissulega góð ástæða fyrir því að maður fyllist þjóðarstolti. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Kolla.

Já mikið er ég sammála þér með hann Ólaf hann er einstakur og sannarlega fylllist maður stolti að vita hve lengi hann hefur aukið hróður lands og þjóðar.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 14.5.2008 kl. 01:45

2 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Frábært áhugamál sem þú hefur þarna. Hef ekki komist upp á lag með golfið en hver veit, það smitar að lesa pistla sem þessa

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 14.5.2008 kl. 01:46

3 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Jæja mikið var að maður eignaðist  idol í golfinu.Óska þér góðs gengis á golfvellinum í sumar.Idollistinn verður endurskoðaður í samræmi við það.Ávallt kært kvödd. 

Ólafur Ragnarsson, 14.5.2008 kl. 19:15

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Hi Þakka ykkur innlitið. Það er frábært að geta spilað golf og losað sig frá amstri dagsins , Það er nefnilega þannig að stundum er það mikið mál hvar þessi litla kúla lendir og maður getur verið að rausa um það löngu eftir að leik líkur... sbr. "Ég var einu sinni að spila hérna og þá sló ég beint út í þessa tjörn, tók víti og lenti aftur í tjörninni og þá..... os.frv.  bara æðislegt. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 15.5.2008 kl. 00:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 121919

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband