Leita í fréttum mbl.is

Hvers virði er mannorðið?

 Ég var að lesa grein þar sem Kristján L. Möller tilkynnir að hann hafi beðið Einar Hermannsson, ráðgjafa Vegagerðarinnar í Grímseyjarferjumálinu, afsökunar á að hafa ranglega ásakað hann um að bera ábyrgð á óráðsíu ríkisstjórnarinnar í því máli. Ég tel að ráðherrann hafi skaðað orðstýr þessa fagmanns og atvinnumöguleika verulega og mér finnst afsökunarbeiðnin ómerk þar sem hann stendur enn á því að hann vilji ekki njóta starfskrafta ráðgjafans. Nú á að fá nýja ráðgjafa og eitthvað kostar það, því þeir þurfa væntanlega að kynna sér hvað gert hefur verið og setja sig inn í málið á síðasta framkvæmdaþrepi þess. Ég spyr mig hvort Möllerinn, með því að ásaka skipaverkfræðinginn,  hafi verið að verja forvera sinn þegar hann var komin í stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn? Eitthvað breyttist tónninn í honum þegar Sturla Böðvarsson lýsti því sjálfur yfir að hann bæri auðvitað ábyrgð á því sem gerðist í hans ráðuneyti........ Æ sorry Einar og málið dautt ? Ég held að ráðherrann megi þakka fyrir ef hann fær ekki málsókn á hendur sér eftir að hafa veist persónulega að einstaklingi sem að því er mér skilst, hafi bent á kosti og galla skipsins og ekki haft neitt  ákvörðunarvald um breytingar á þessu blessaða fleygi að segja. Hvað með starfsmenn ráðuneyta og stofnana ríkisins sem unnu að málinu. Hafa þeirra nöfn verið birt ? Hefur þeirra vinnuframlag verið afþakkað? Það er alvarlegt mál að fara illa með almannafé en ég hygg að það hafi verið ætlun manna að vanda þá samgönguleið sem þessi ferja á að vera Grímseyingum og viljað þeim allt það besta. Að hengja bakara fyrir smið er þó sýnu verra því það verður ekki bætt með fé. Ég held að skriðþungi ráðherrans KLM hafi komið honum í koll í þessu máli þó hann noti þetta aukaklúður í málinu til að mýkja ímynd sína með afsökunarbeiðni.Um eitt er ég þó sammála KLM og það er að allir ættu að eiga þess kost að heimsækja Grímsey. Það er mjög yndilegt og sérstakt að koma þangað.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Kolla.

Mig setti hljóða á sínum tíma þegar ráðherra mælti þessa gagnrýni á manninn fram í útvarpi.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 25.9.2007 kl. 00:13

2 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæl Kolbrún.Mér finnst Einar ekki geta skotið sér undan ábyrgð í þessu máli.Hann var fyrstur manna til að fara út og skoða þennan"ryðhaug"Ég vitna í"Blaðið". 16 ágúst þar segir m.a.:"

19 nóv 2004:"Skýrsla Einars Hermannssonar um skoðun á "Oilean Arann" er afhent Vegagerðinni.Þar kemur fram að Einar telji skipið MJÖG HENTUGT(leturbr.mín) til Grímseyjarsiglinga.Áætlar hann að kaup og endurbætur á því um 150 milljónir(takið eftir:aths.mín)Segir hann ennfremur að að nýsmíði á skipi muni kosta um 600 miljónir:Því segir hann Oilean Arann vænlegan kost"(athyglisvert miðað við seinni yfirlýsingar hans sjálfs.Aths.mín)

Mér finnst í meira lagi einkennilegt hvernig 2 skipsverkfræðingar geta verið eins ósammála um einn árans"dall"eins og margnefndur Einar og Ólafur J Briem sem fór seinna og skoðaði hræið og lýsti því eiginlega sem ósjálegum ryðhaug og varar við kaupunum.Kært kvödd

Ólafur Ragnarsson, 29.9.2007 kl. 00:43

3 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Ólafur og þakka þér fyrir athugasemdina. Ég er nú hvorki að verja Einar né ásaka, heldur að tjá mig um þessa afsökunarbeiðni Möllers en það er dauðalvarlegt mál ef ráðherra dæmir fólk úr leik í atvinnulífinu jafnvel þó það hafi ekki verið nógu nákvæmt í úttekt sinni. Það er etv eins með skipaverkfræðinga og lögmenn þ,e, sjaldnast sammála. Það hefur nú komið  fram að afsökunarbeiðnin kom einmitt útaf hótun um málsókn en ég vissi það ekki þegar ég skrifa þetta. Kært kvödd er fallegasta kveðja sem ég hef séð og af því dreg ég þá ályktun að þú sért vænn maður. Með góðri kveðju Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 29.9.2007 kl. 16:49

4 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæl Kolbrún,Ég hugsa að orðið vænn eigi best við holdafar mitt.Það var talað um"væna"dilka að hausti.Nú ekki er hægt að telja mann til dilka vegna aldursinns.En nú er ég komin hálfgerða sjálfheldu svo ég hætti að reyna að vera sniðugur,Það segir mér svo hugur að við séum sammála um margt í sambandi við títtnefndan óheillagrip.Ég vil fá að vita af hverjum íslenska ríkið keypti hræið,hver var"meglari"við kaupin,hvað fékk hann í commission.Er fótur fyrir þeim sögusögnum að íslenskir aðilar hafi fyrst keypt ryðhrúuna á 20 milljónir en selt svo  Ríkinu hana á 108 m.Það væri líka gaman að vita hvort eitthvað er til í því að einhvert"gæludýr"hafi keypt ferjuna Baldur á 15 milj.en selt hann aftur á 45.Og svo spyr maður af hverju var ekki hægt að nota Baldur til Grímseyjaferða.Það er mikið sem ráðherra samgöngumála verður að upplýsa á komandi þingi annars er hann maður að minni.Og ómurinn af hnefahögginu í Alþingisræðupúltið þagnar.Kært kvödd

Ólafur Ragnarsson, 30.9.2007 kl. 08:08

5 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

hahah vænn dilkur..væna flís af feitum sauð os.frv.  Ég hef víða unnið en aldrei á sláturhúsi og þekki þetta ekki nógu vel . Já það er eins víst að það hafi verið eitthvað möndl með þessi viðskipti og því er ráðherran í þessari úlfakreppu og getur hvorki sagt a eða b.

Ég reikna með að okkar menn muni þrengja að honum í vetur, ég  vona það allavega..  kveðja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 1.10.2007 kl. 17:43

6 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

og því síður c.Er þér sammála.

Ólafur Ragnarsson, 4.10.2007 kl. 13:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 121927

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband