Leita í fréttum mbl.is

Námsörðugleikar

Negldur á plúsinn...Ungur drengur var í vandræðum með stærðfræði en klár í öllu öðru.
Foreldrarnir reyndu allt, aukatíma, einkakennslu og fleira en ekkert dugði. 


 Loks prófuðu þau kaþólskan skóla, nunnur og allan þann pakka.
Þegar drengurinn kom heim að loknum fyrsta degi, gekk hann rakleitt inn í herbergi sitt. Í tvo tíma grúfði hann sig yfir stærðfræðibækur, kom fram til að borða og fór svo aftur að læra. Svona gekk þetta alveg fram að fyrstu prófum. 


 Eftir prófin kom hann heim, lagði umslag á borðið og fór inn í herbergi sitt.
Forvitin opnaði móðirin umslagið, með blöndu af eftirvæntingu og kvíða. Á bréfinu við Stærðfræði, stóð stórt “A”. Ofsakát þustu foreldrarnir inn í herbergi drengsins. 


 Hvað olli þessum straumhvörfum? “Voru það nunnurnar” spurðu þau.
“Nei. Mér var ljóst frá fyrsta degi í skólanum, að ég þyrfti að taka mig verulega á” sagði drengurinn. “Hvernig stóð á því” spurði móðirin.

“Þegar ég gekk inn í anddyrið og sá gaurinn sem var negldur á plúsmerkið, vissi ég að þau tóku stærðfræðina mjög alvarlega í þessum skóla...



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ha ha ha ha þessi var glettilega góður...    Eigðu góða helgi.

Jóhann Elíasson, 3.8.2012 kl. 10:30

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Hi Jóhann, já ágætis húmor í þessum og smá boðskapur líka um að það er hægt að ná árangri með réttum aðferðum.... jafnvel þó þær séu byggðar á smá misskilningi :) kveðja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 3.8.2012 kl. 13:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband