Leita í fréttum mbl.is

Hvert fórstu ćska

 Fermingarsystur syngja saman

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hugur leitar heim í dag

hlátur bernsku ómar.

Draumljúft, eins og dćgurlag

er djúpt í brjósti hljómar.

Í dag verđur ćskuvinkona og fermingarsystir, Angela Ragnarsdóttir, borin til hinstu hvílu. Viđ svona áminningu leitar hugurinn aftur til bernsku- og ungdómsára heima á Raufarhöfn.

Viđ, mín kynslóđ, upplifđum mjög sérstaka tíma. Síldarárin sitja í minningunni. Ţá lćrđum viđ ađ vinna. Viđ lćrđum líka ađ standa vörđ hvert um annađ.

Eins og flestir vita ţá margfaldađist íbúafjöldinn á stađnum yfir sumartímann ţegar fólk streymdi alls stađar ađ til ađ vinna í síld. Ţá varđ til kveđjan sem hefur fylgt okkur síđan " sćll félagi ". Viđ upplifđum líka alvöru kreppu ţegar síldin hvarf. Fátćktin kenndi okkur nćgjusemi og ţakklćti.  Allir ţekktust, börn voru örugg, umferđaóhöpp nánast óţekkt. Flest hús stóđu opin allan daginn og sum allan sólarhringinn. Ţá ríkti traust.

Á vetrum var félagslífiđ nokkuđ gott og samskipti íbúa međ miklum ágćtum. Haldir voru dansleikir og settar upp stórar leiksýningar. Öflugt kórstarf, tónlistarskóli og mikil tónlistariđkun. Nokkrar hljómsveitir störfuđu og eftirminnilegt er ţegar efnt var til söngvakeppna í Hnitbjörgum nokkur ár í röđ. Ţađ var nýlunda ţá en nú er ţetta vinsćlt sjónvarpsefni.  Á einni ţeirra var Páll Ţormar kynnir og međal keppenda var auđvitađ Angela Ragnarsdóttir.

En tíminn leiđ, börn uxu úr grasi, fólk flutti burt og leiđir skildu. Ný reynsla og alvara lífsins tók ađ gera vart viđ sig.

Heimur grimmur sýnir sig

er sjá menn ástvin dáinn.

Kom hann nú og kyssti ţig

karlskömmin međ ljáinn.

Mörg höfum viđ upplifađ ţađ ađ missa kćran ástvin og sumir fleiri en einn. Ţađ er erfiđ reynsla. Sálin brotnar og mađur grćtur endalaust. Lengi á eftir sćkir sorgin á mann á sárum tímamótum, í róti minninganna. Klisjan " tíminn lćknar sárin " sýnist bara asnaleg og ótrúleg. Ţađ er ţó mín reynsla og ţá verđur mađur ótrúlega ţakklátur fyrir minningarnar. Sárin gróa um síđir en örin sitja eftir ásamt nýjum skilningi á lífinu og auknum ţroska.

Ţó ađ hverfir ţú í burt

og ţungi sé hugum yfir,

ekki verđur um ţađ spurt

ćtíđ ţín minning lifir.

Í tilfelli Angelu finnst mér tíminn ómögulegur. Hún var alltof ung til ađ fara. Nú eru líka jólin međ tilheyrandi samgöngutruflunum fyrir okkur sem vildum svo gjarnan fylgja henni síđasta spölinn í virđingarskyni.

Kćra Angela. Takk fyrir samferđ í ţessu lífi svo langt sem hún náđi.  Ţú varst öllum góđ, alltaf skilningsrík, vingjarnleg og glađvćr. Ţú gafst mikiđ af ţér og skilur eftir ţig stóran og gerđarlegan hóp af ungu kraftmiklu fólki.

Góđa ferđ og góđa endurfundi viđ ţitt fólk sem fariđ er.

Ég votta syrgjendum mína dýpstu samúđ.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Yndislega falleg minning og kveđja <3

Iris (IP-tala skráđ) 28.12.2011 kl. 13:45

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Afskaplega fallegt Kolla mín.

Helga Kristjánsdóttir, 28.12.2011 kl. 17:55

3 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Takk fyrir, báđar tvćr. Ţetta er bara minn ţankagangur og tilveran eins og hún var og er í mínum huga. Angela hefđi orđiđ 62 núna 8. janúar og mér finnst eins og hún hafi misst af ellinni. Ég hinsvegar trúi ţví ađ nú hefjist nýr kafli hjá henni. Ég veit líka ađ ţegar mađur nćr ađ sleppa ástvini sínum úr huga sér, ţá fer ađ myndast bati í sálartetrinu og mađur nćr aftur tökum á lífi sínu.

Ég hef ekki kynnst konu sem er eins blíđ og skemmtileg og Angela. Ţau hjónin, Páll Ţormar og Angela, voru óvenju hresst og skemmtilegt fólk og virk í félagslífi.

Helga fyrir ţig af ţví ţú ţekkir ekki ţessar fermingarstúlkur ţá er Angela sú sem er aftast í röđinni ef taliđ er frá gítarleikaranum.

Bestu kveđjur

Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 28.12.2011 kl. 22:04

4 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Kolla mín- alltaf svo gott sem kemur frá ţer- og gömlu árin-sem voru mer ekki góđ- höfđu samt sína stemningu sem eg hefđi ekki viljađ missa af. Kannast viđ stulkuna semţú talar svo fallega um.

 Kv.

EA

Erla Magna Alexandersdóttir, 28.12.2011 kl. 23:42

5 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sćl Erla. Leitt ađ heyra ađ ţér hafi ekki liđiđ vel á Raufarhafnarárunum ţínum en ég man ađ ţú varst mjög "spes". Ég hafđi ekki áđur séđ jafn íturvaxna konur og ţađ áđur en mađur fór ađ hugsa um slíka hluti. Ţegar ég hugsa til baka ţá minnir ţetta mig á stúlkuna í Mávahlátri sem var svo allt öđruvísi en fávís almúginn, dularfull og spennandi og kannski međ einhvern yfirnáttúrulegan hćfileika, kannski göldrótt.  Já afar sérstök varstu og ert enn en ég vona ađ ţú sért hamingjusamari í dag. Gangi ţér allt í haginn og gleđilegt nýtt ár  kveđja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 30.12.2011 kl. 18:59

6 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

"konu" á ţetta ađ vera hjá mér... ţ,e, ţú Erla ;)Kveđja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 31.12.2011 kl. 14:43

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 121920

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband