Leita í fréttum mbl.is

Allt að smella

Nánast reddýNú er allt að verða klárt fyrir Eyjaferðina á morgun. Ég er búin að vera að snúast í allan dag með hugann við næstu daga.

Ég fór æfingahring á Mýrinni og skaust yfir á Leirdalinn síðustu þrjár holurna þar. Allt gekk vel og vippin góð en púttin ekki alveg að detta.

Kíkti á nýju golfbúðina í Mörkinni sem er smekkfull af æðislegu dóti og forgjafarlækkandi hjálpartækjum.

Nú er ég búin að fjárfesta fyrir rúm fimmtíu þúsund til að vera boðleg í sveitina hjá GKG. Keypti mér flotta golfskó og meira að segja hvíta sem er ekki alveg minn stíll en FootJoy klassi. Daily golfbuxur svartar í Hole in One og nýtt grip á pútterinn sem er í sverara lagi.  

Fékk lánaðan fjarlægðamæli og síma til að vera með allt á hreinu. Síðast en ekki síst fjárfesti ég í eyrnatöppum en þeir eru nauðsynlegir þegar margir sofa í litlu húsi og mega ekki við að missa nætursvefn. Mikið rosalega hlakka ég til.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

   Það er ekki svo ýkja langt síðan,að þú skrifaðir um byrjun þína í greininni. Nú leika heiti golfáhalda lipurlega (held ég), í færslum þínum. Ég var að hugsa um muninn,á að fara til Eyja eftir að Landeyjar-höfn,komst í gagnið. Ég fór þangað í sumar í dagsferð,í kaffi til systur minnar sem býr þar. Oft hef ég farið sem farastjóri með unga stráka á knattspyrnumót. Það er ólíkt að vera 1/2 tím á sjó en hvað ?? 3 tima rúma.Eitt sinn var það hræðilegt,þeir lágu út um allt skip,ælandi og emjandi. En ég vona að, vandamálið með sandinn þarna sé úr sögunni.Það er svo fallegt þarna að þú kemst í form um leið og þú,berð völlinn augum. Kanski verðirðu í aldurstengdu landsliði,áður en langt um líður. Njóttu þessa og gangi þér ,æðislega.

Helga Kristjánsdóttir, 24.8.2011 kl. 23:33

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Takk Helga fyrir góðar óskir. Ég spilaði í dag í yndislegu veðri, sól og björtu veðri. Ég var þokkalega ánægð með mig, og völlinn, og vona að vel gangi á morgun. Stórmunur finnst mér á sjóferðinni nú eða úr Þorlákshöfn og heyrist að það sé sama hjá öðrum golfurum hér. Mjög yndisaukandi að keyra þessa fallegu leið og skreppa yfir í eyjarnar fögru sem nú  baða sig í sólarlaginu. Kær kveðja Kolla 

Kolbrún Stefánsdóttir, 25.8.2011 kl. 22:18

3 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Fyrsti dagur í keppninni að kveldi kominn. GKG sveitin vann alla þrjá leiki sína í dag og mun spila við GR- kanónurnar á morgun. Þar er valinn maður í hverju sæti og verður örugglega erfitt að sigra þá. Við munum þó verma þeim undir uggum eins og sagt er. Veðrið í dag var yndislegt og stafalogn. Aldrei séð Eyjar eins fallegar og núna og völlurinn var meira en flottur. Við stefnum ótrauðar á að ná gullinu það skýrist á morgun um hvaða sæti við spilum. Vona bara að við verðum í góðu stuði og naum að spila um fyrsta og annað. 

Kolbrún Stefánsdóttir, 26.8.2011 kl. 18:49

4 identicon

Hlýjar kveðjur til ykkar í Eyjum og bestu óskir um gott gengi á morgun  

Atli Ágústsson (IP-tala skráð) 26.8.2011 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband