Leita í fréttum mbl.is

Æ ég er svo gömul

Í morgun fór ég í golf fyrir allar aldir og tók níu holur á Mýrinni. Það er nú orðið þannig að það er ekki nóg að mæta kl 6,30 til að vera öruggur með rástíma. Það voru þegar nokkur holl byrjuð að spila. Það má segja að það sem var svo gott og öruggt í fyrra sé það ekki lengur. Það var golfari á eftir mér og á áttundu braut sá ég að þetta var kona sem ég hitti í fyrrasumar, einmitt á þessum ókristilega golftíma. Ég kallaði til hennar hvort hún vildi ekki slá með mér síðustu brautina í stað þess að bíða eftir að ég kláraði. "Nei blessuð vertu " sagði hún " ég slæ svo stutt, ég er svo gömul". Ég lagði smávegis að henni en hún afþakkaði ákveðin. Hún var komin á teiginn þegar ég var búin að slá á níundu svo ég spurði hvað hún væri þá gömul. Hún brosti breitt og sagði " ég er nú 82 ára í dag" Það var mikið hóað og hæað yfir þessu og ég kyssti hana á vangann. Ég hældi henni í hástert bæði fyrir hvað hún væri ungleg og ekki síður hve dugleg hún væri að spila golf ennþá og það eldsnemma dags. Hún sagðist bara hafa þennan tíma því það væri svo mikið að gera hjá henni. Maðurinn væri orðinn lélegur og hún sæi um allt í kringum þau og þeirra líf. Þetta var yndisleg upplifun og óvenjuleg á golfvellinum. Það má fullyrða að lífið sé margbrotið og manneskjurnar elskulegar. Ég hef hugsað með hlýhug til þessarar elskulegu konu í allan dag og vona að hún hafi fundið það og notið dagsins.   

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, það var frábært að hitta þessa fallegu fullorðnu konu og gaman að sjá að "allt er áttræðum fært" og svona upplifun hefur mikil áhrif á mann. Miðað við hana getum við átt mörg ár eftir í golfinu. Mæta bara klukkan 0600 þá ættum við að vera nokkuð örugg með rástíma.

það er líka eitt af því sem er svo frábært við golfið að maður kynnist svo mikið af fólki, unga sem aldna, sem eru upp til hópa skemmtilegt og kurteist.

Atli Ágústsson (IP-tala skráð) 9.6.2010 kl. 08:54

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Já Alti það er margt fólk , skemmtilegt og kurteist, í golfi. Hvort menn eiga vísan rástíma eða líftíma  veit ég ekki en trúi þér þegar þú segir það. Þetta er mikið ellimannasport og sívaxandi vinsældir hjá ungu kynslóðinni. Vona að ég eigi allavega 20 ár eftir  ég elska þetta sport. Kveðja Kolla. 

Kolbrún Stefánsdóttir, 19.6.2010 kl. 09:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 121875

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband