Leita í fréttum mbl.is

Ný nálgun

BorgarálftirAfar fróðlegt var að fylgjast með Silfri Egils síðasta laugardag og heyra Hönnu Birnu fara með gömlu rulluna sem ég og við sem stóðum að óháðu framboði heima á Raufarhöfn  í sveitarstjórnarkosningunum 1982 og aftur 1986 fórum með á þeim tíma. Á Raufarhöfn, þar sem allir þekktu alla, fannst okkur unga fólkinu ekki ástæða til að vera að mynda meirihluta og minnihluta. Fyrir okkar litla samfélag töldum við best að allir ynnu saman. Þetta þótti alveg óframkvæmanlegt á þeim tíma. Þetta er það sama og Hanna Birna borgarstjóri er að tala um núna. Ég verð að taka ofan fyrir henni og segja að mér finnst hún afar skynsöm í þessum málflutningi. Hún hraunaði alveg yfir aðra frambjóðendur og hafði alveg augljóslega gaman af framboði Besta flokksins. Einhvern vegin fannst mér hún hafa minna gaman af oddamanni heiðarlega framboðsins enda búin að vinna með þeim manni allt of lengi. Borgin þarf nú, sem aldrei fyrr, á heilsteyptum og heilbrigðum borgarstjóra að halda. Hanna Birna kann til verka þegar kemur að fjölmiðlaframkomu og kosningabaráttu. Hún skar sig úr hópnum bæði í leikrænum tilburðum, klæðaburði og klókum málflutningi. Hún var tilgerðarlaus og trúverðug. Ekki er heldur á allra færi að hleypa brúnum eins og hún gerir.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Allt er gott sem frá Raufarhöfn kemur! Og enn betra þegar íhaldið tekur það upp. Miðað við færsluna þína "stöðugleikinn og getuleysið" fer ég að halda að þú eigir kannski frekar samleið með því en Frjálslynda flokknum, eða hvað?

Því er ég til dæmis gjörsamlega andsnúinn, að frambjóðendur verði múlbundnir í nafni flokka eins og samþykkt var á landsþingi x-f. Er það ekki einmitt sú gamla alræðishugsun um alvald flokksins sem talið er eitt af meinunum er skóp þær aðstæður er á endanum leiddu til hrunsins? Það finnst mér blasa við, eftir útkomu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Ágúst Ásgeirsson, 18.4.2010 kl. 19:10

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Ágúst. Það má segja að það sé erfitt fyrir lítinn flokk að halda úti fólki í kosningabaráttu sem er svo ekki sterkara á svellinu en verið hefur hjá okkur. Tveir af þingmönnum flokksins hafa fallið fyrir fagurgala Sjálfstæðisflokksins og gengið til liðs við hann á miðju kjörtímabili. Ég er alfarið á móti því að þingmenn fari eftir flokkslínum umfram sína betri vitund og því neita ég gefa eiðstafi sem skarast við þann eið sem fylgir þingmannstarfinu. Hitt kann að vera rétt að ég fari að eiga meiri samleið með XD þegar búið er að skafa af honum spillinguna og hann skánar nú með hverjum degi sem líður  Kveðja Kolla. 

ps. við erum ágætt dæmi um gæði Raufarhafnar Gústi  ekki satt.

Kolbrún Stefánsdóttir, 20.4.2010 kl. 09:46

3 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll aftur Gústi. Ég var að hlusta á þingheim með öðru eyranu í dag og heyrði ekki betur en Pétur Blöndal væri farinn að tala eins og ég um hvernig kenna má íslenskuna. Kannski Sjálfsstæðisflokkurinn sé að koma til mín eftir allt saman  . Birti hér linkinn http://kolbrunerin.blog.is/blog/kolbrunerin/month/2007/10/

Síðan var ég að fá úr smiðju Kristins H Gunnarssonar nýjasta pistilinn hans. Hann er greinilega nokkuð sammála okkur um vinnubrögð þingmanna eins og þau ættu að vera.

http://www.kristinn.is/frettirpage.asp?ID=1364

Bestu kveðjur Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 20.4.2010 kl. 18:42

4 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Varðandi síðustu setninguna í fyrra svari þínu, þá get ég alveg verið sammála ræðumanni . . .





Ágúst Ásgeirsson, 20.4.2010 kl. 20:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 121924

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband