Leita í fréttum mbl.is

Stöðugleikinn og getuleysið

Tveir kátirMörg orð eru stórlega ofnotuð að mínu mati. Búið er að taka sum þeirra úr umferð en það er enn mikið talað um stöðugleika og getuleysi. Pólitískir andstæðingar gaspra mikið um getuleysi landsstjórnarinnar og öfugt. Kjósendur tala um getuleysi þingmanna. Flokksmenn um getuleysi flokksforystunnar.

Ríkisstjórnin talar mikið um stöðugleika og stöðugleikasáttmála. Allir virðast þrá og leita stöðugleika. Kannski er þetta lausnarorð fyrir marga og er þá væntanlega merki um þörf fyrir öryggi. En af hverju þurfum við svona mikið öryggi núna, fólkið sem var tilbúið að taka óskaplega sénsa fyrir hrun. Er það kannski bara hjarðhegðun rétt eins og græðgisvæðingin áður.

Á nýafstöðnu þingi Frjálslyndra talaði fyrrverandi formaður um stöðugleika. Hann lýsti því yfir að hann og Grétar Mar væru ekki bara þungir heldur einnig fastir fyrir. Ég kaus að túlka það þannig að þeir væru trúverðugir og traustir. Góðir saman. Þyngdar sinnar virði í gulli. Þeir virtust sammála nýrri stefnuyfirlýsingu flokksins um að binda flokksræðið enn sterkari böndum en áður. Þetta kom fram í tillögu stjórnar sem fól í sér að frambjóðendur flokksins skulu nú undirrita eið um að hætta ef þeir verða viðskila við flokkinn, sem væntanlega er þá flokksforystan. Jafnframt var samþykkt gömul tillaga til laga um að vísa megi fólki úr flokknum ef það vinnur gegn honum að mati stjórnarinnar.

Hinn þungi og staðfasti fyrrverandi þingmaður, Grétar Mar, var hálf sjokkeraður yfir því að til væri fólk, meira að segja í framboði til ábyrgðarstarfa fyrir Frjálslynda, sem ekki vildi skrifa undir þetta. Þar var hann að meina mig. Ég benti á að stundum verða menn viðskila við flokk sinn út af breyttri áherslu flokksins á ýmis mál. Margrét Sverrisdóttir lýsti því á sínum tíma að hún hefði ekki yfirgefið flokkinn, heldur flokkurinn hana. Minna má á aðskilnað þingmanna Borgarahreyfingarinnar við sína flokksmenn. Það er ekki öllum sama um drengskap sinn. 

Kosningaloforð við kjósendur voru léttvæg fundin sem rök þó þingmenn séu bara bundnir af samvisku sinni samkvæmt stjórnarskrá. Það er eiður sem menn verða að skrifa undir þegar menn hefja störf á Alþingi. Flokksræði eykur stöðugleika í stjórnun og veitir stjórn flokksins öryggi og völd. En það er aðför að lýðræðinu.

Er kannski stöðugleikinn ofmetinn. Kallar hann á getuleysi. Er það ekki sveigjanleikinn sem við þurfum í dag. Bæði í stjórnun og stefnumótun, gengismálum, skuldaaðlögun og á sem flestum sviðum daglegs lífs.

Mörgu þarf að breyta en fyrst og fremst þarf að breyta lífsgildum. Það sem ég vill sjá vaxa upp úr rústum kreppunnar, sem orsakaðist mest af græðgi, valdníðslu, flokksræði og flokkadráttum, er aukin áhersla á heiðarleika, orðheldni, velvilja og sanngirni.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Ég er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjármálum og stjórnun fyrirtækja.  Ég bý í Kópavogi. Áhugamál mín eru golf, dans, göngur, ferðalög, blak auk ýmissa boltaíþrótta. Hjartansmálin eru svo dæturnar tvær og ömmudrengirnir fjórir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 121926

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband